Vikan - 31.10.1968, Page 23
Þetta sæi Albert 1, cf hann mætti
líta nm öxl af styttu sinni í Brussel.
Uinhverfis garöinn eru mcnningar-
stofnanir, svo sem bókasöfn og lista-
söfn.
Þjóðiistasafnið í Brussel.
Maison du Itoi, konungshúsið, gegnt
ráðhúsinu. I*ar er sögusafn borgarinn-
ar til húsa. Þetta hús er fagurlega
skreytt, allt flúrað mcð gulli, eins og
önnur liús við ráðhústorgið.
Brussel ber þess glögg merki, að liún
er gamalgróin borg með vönduðum og
virðulegum arkítektúr.
túristar með myndavélar á mag-
anum eins og ég. Ég leit í búð-
arglugga og skoðaði verðmiða,
belgíski frankinn er nærri því
hinn sami að verðgildi og ís-
lenzka krónan og gat ég ekki
betur séð, en verðlag væri mjög
svipað. Hins vegar mun kaup-
lag vera hærra í Belgíu en hér,
og það gerir gæfumuninn.
Ég vissi ekki, hvert ég átti
helzt að halda né hvað að skoða,
svo ég lagði á brattann upp frá
miðborginni og var fyrr en mig
varði kominn í menningarhluta
borgarinnar. Ég rakst á styttu
af Albert konungi fyrsta uppi á
hrossi og beggja vegna við
gróskumikinn skrúðgarð með
breiðum stéttum, sem verður
fyrir aftan Albert, eru konung-
lega bókasafnið, nútímamál-
verkasafnið og safn fornra mál-
verka og höggmynda, og var mér
sagt, að í þessum söfnum væru
varðveittir miklir dýrgripir.
■ íc.! æík.
Séð frá flugaftrreiðslu SABENA niður
yfir miðtorgið.
Fram af Alberti rakst ég hins
vegar á skrifstofu Loftleiða. Af
einskærri þjóðrækniskennd gekk
ég þar að dyrum en þær voru
harðlokaðar; hins vegar eru þar
gluggar góðir og í þeim sá ég
myndir af New Yorkskum skýja-
kljúfum og frelsisstyttunni
frægu.
Á þessu rölti mínu var ég
alltaf annað slagið að reka augun
í turnspíru með þeim merki-
legri, sem ég hefi séð. Hún var
geysihá og mjó og til að sjá eins
og fínlega útskorin, með ein-
hverri mannsmynd efst. Nú tók
ég mið á spíru þessa og gekk í
átt til hennar eins beint og göt-
ur leyfðu, sú ganga leiddi mig
aftur á aðaltorgið og inn um
sund, þröngt, sem lá inn á torg
þéttstaðið bílum. En þetta torg,
eða réttara sagt byggingarnar
umhverfis það, er mikið fyrir
augað.
Við mér blasti höll stór og
voldug, og upp úr henni gekk
þessi spíra. Þóttist ég sjá í hendi
mér, að þetta væri ráðhús borg-
arinnar. Hins vegar gat ég ekki
grynnt í hjálparlaust, hvað væri
í öðrum húsum umhverfis torg-
ið, en þau voru einkum merki-
leg fyrir þá skuld, að þau voru
öll ríkulega skreytt með gulli.
Gaf ég mig á tal við lögreglu-
þjón sem kunni skil á enskri
tungu og hann leiddi mig í all-
an sannleika.
Húsið með spírunni var ráð-
húsið, sem mig grunaði. Gull-
I
hæð, sagði þessi góði lögreglu-
maður.
Hann benti mér líka á að skoða
elzta borgara Brussel, sá er af
bronsi gjör og hefur staðið og
sprænt fyrir almenning í rösk-
ar þrjár aldir. Svona pissistrákar
hafa verið stældir úti um all-
an heim síðan, en þennan, hinn
upprunalega, gerði belgíski
myndhöggvarinn Francois Du-
quesnoy snemma á 17. öld. Því
miður tók að rigna aftur í þess-
um svifum, enda komnir þeir
þrír tímar, sem blaðasalinn hafði
úthlutað mér, svo ég tók þann
kostinn að forða mér í skjól og
lét undir höfuð leggjast að skoða
piltunginn.
Forlögin létu mig af tilviljun
leita skjóls í einni merkilegustu
götu borgarinnar, en hún er
heppileg í rigningu, af því hún
er með þaki. Hún heitir Galieres
St. Hubert og við hana eru
Ráðhústurninn er mikil völundarsmíði,
330 feta hár með 16 feta liárri gylltri
mynd af heilögum Mikjáli efst.
Ráðhústorgið. Til vinstri er ráöhúsiö,
cn til hægri sér niður með framhlið
konungshússins. Fyrir miðju eru gild-
ishúsin.
4 Frá torginu upp að
stórhýsi SABENA. í
baksýn er háhús „First
National Bank“.
Við Albertínsgötu er
skrifstofa Loftleiða í
Brussel, með mynduin í
gluggum af himinháum
skýjakljúfum og frelsis-
styttunni bandarísku }
S \ í..
brydduðu húsin í kring voru
hins vegar gildishús, en gildi
þýðir stéttarfélag; flæmskan býr
hins vegar yfir tveim merking-
um á orðinu „guild“ sem þýð-
ir bæði gull og stéttarfélag, og
því þótti við hæfi að gullskreyta
þau. Og húsið fallega, beint á
móti ráðhúsinu, það heitir Mai-
son du Roi, eða konungshúsið, og
þar er sögusafn borgarinnar. Og
hvaða mannsmynd var þetta þá
uppi á ráðhústurninum? Jú, það
var koparstytta af heilögum
Mikjáli, 16 fet á hæð. Turninn
sjálfur er hins vegar 330 fet á
verzlanir, veitingahús og tvö
leikhús. Ég slangraði þarna fram
og aftur og beið þess að stytti
upp, en þegar ekki leit út fyrir
að það yrði í náinni framtíð,
bretti ég frakkakragann upp að
eyrum og ruddist af stað, hljóp
allt hvað af tók upp að flugaf-
greiðslu SABENA og enti þar
með skoðun mína á Brussel.
En þetta er merkileg borg, og
gaman væri að skoða hana betur
í betra tómi. Og ekki minnkar
vegur hennar nú, þegar hún er
auk alls annars orðin höfuðborg
NATO. ☆
43. tbi. VIKAN 23