Vikan


Vikan - 13.03.1969, Side 9

Vikan - 13.03.1969, Side 9
NO. 3 TIL nnitn DultH Unl ÚRSLITA Rósa Björg er 15 ára að aldri, fædd 7. júlí 1953, dóttir Helga Eggertssonar, kaupmanns, og Lilju Jónsdótt- ur. Hún er 165 cm á hæð, bláeyg og ljóshærð. Hún er í landsprófsdeild Gagnfræðaskóla Austur- bæjar, og uppáhaldsfög hennar eru málin. Einna leiðinlegastar þykja henni lesgreinar á borð við landafræði og náttúrufræði. Hún hefur ekki ráðið við sig, hvort um frekari skólagöngu verður að ræða að landsprófinu loknu, en síðar meir ætlar hún að verða snyrtisérfræðingur. Á sumrin hefur hún verið í unglingavinnunni. Hún segir tómstundirnar ekki ýkja margar, því námið taki mikinn tíma. En þegar færi gefst, hlust- ar hún á tónlist og hefur yndi af öllum greinum hennar. Svipað er um bóklestur að segja, og hún fer mikið í bíó. Hins vegar horfir hún lítið á sjón- varp og hlustar ekki mikið á útvarp. Hún hefur einnig gaman af ballett og lagði um hríð stund á ballettnám. Hún gerir lítið af að fara á böll, segir enda ekki rnikið um skólaböll í sínum skóla, en í örfá skipti fór hún í Las Vegas. Skömmu eftir að unglingahúsið í Skaftahlíð (Lídó) var opnað, fór hún þangað að skoða sig um, og leizt mjög vel á staðinn. Þegar þetta er ritað, hefur hún þó ekki farið á skemmtun þar. Spurningin um annað þjóðerni en íslenzkt þótti henni harla fávísleg, hafði aldrei leitt hugann að því hvernig væri að vera annað en íslenzk. Eftir nokkra umhugsun stakk hún þó upp á Englandi sem mögulegu fósturlandi, enda líklegt að hún yrði að leita til London varðandi menntun sína sem snyrtisérfræðingur. n. tbi. VIKAN 9

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.