Vikan


Vikan - 13.03.1969, Blaðsíða 14

Vikan - 13.03.1969, Blaðsíða 14
Framsóknarmönnum í Ár- nessýslu var ærinn vandi á höndum við kosningarnar 1956 að velja eftirmann Jör- undar Brynjólfssonar, þegar hann lét loksins af þing- mennsku. Kjörfyigið virtist raunar öruggt, en Jörundur hafði farið með goðorðið lengi við mikinn orstír, svo að ekki taldist á allra færi að leysa hann af hólmi. Sat Jörundur á alþingi sem fulltrúi Árnes- inga 1923—1956, en hafði að auki verið þingmaður Reyk- víkinga kjörtímabilið 1916— 1919, meðan hann starfaði sem kennari í höfuðstaðnum. Þótti liann svipmikill og skap- ríkur garpur og átti jafnan kosningu vísa í Árnesþingi. Gerðist hann nú aldraður og hugðist setjast í lielgan stein. Fyrir valinu varð Ágúst Þorvaldsson bóndi á Brúna- stöðum í Hraungerðishreppi, og kom sú ákvörðun mörgum á óvart. Ágúst taldist að vísu eindreginn Framsóknarmað- ur, en hafði lítt komið við sögu utan sveitar nema í for- setakosningunum 1952. Þá studdi hann Ásgeir Ásgeirs- son rösklega til íorsetadóms í óþökk flokksforustunnar í Reykjavík og meirihluta sam- herja sinna heima í héraði. Átti það tiltæki Ágústs samt drjúgan þátt i framboði hans fjórum áruxn síðar, enda hafði þá tekizt bandalag með Al- þýðuflokknum og Framsókn- arílokknum, og höfðu þeir sameiginlegan lista í Árnes- sýslu í þeirri hæpnu von að hreppa bæði þingsætin. Sýnd- ust horfur á, að verkamenn og sjómenn í þéttbýli sýsl- unnar myndu kjósa Ágúst á Brúnastöðum fremur en þá bændur aðra, sem helzt komu til greina að erfa goðorðið eft- ir Jörund í Kaldaðarnesi. Olli því sérstaða Ágústs Þorvalds- sonar um ætt og uppruna, svo og það, að orð fór af honurn sem greindum og málsnjöllum skapfestumanni, en þeir eigin- leikar höfðu sannazt ótvírætt í forsetakosningunum. Ágúst Þorvaldsson fæddist á Eyrarbakka 1. ágúst 1907, og voru foreldrar hans Þor- valdur Björnsson verkamað- ur og sjómaður þar og kona hans, Guðný Jóhannsdóttir. Naut Ágúst venjulegrar barnafræðslu heima á Eyrar- bakka, en átti ekki frekari menntunar kost, þó að hann teldist næmur og næsta hneigður til bókar. Reyndist hann tápmildll strax í æsku og rækti störf sín af áhuga og karlmennsku. Hann stundaði sjóróðra í Vestmannaeyjum ellefu vetrarvertíðir og virtist ætla að helga slíkri iðju krafta sína, en brá allt í einu á annað ráð vorið 1932 og gerðist bóndi. Kaus hann Brúnastaði í I-Iraungerðíshreppi sér að staðfestu, hefur búið þar alla tíð síðan ftg eignazt fjölda efnilegra barna við konu sinni, Ingveldi Ástgeirsdóttur frá Syðri-Hömrum í Ása- hreppi. Fer naumast milli mála, að Ágúst sé mestur barnakarl þeirra, sem sitja á alþingi. Ungmennafélagshreyfingin og kaupfélagsskapurinn varð Ágústi Þorvaldssyni skóli og málþing eftir að hann gerðist bóndi. Var hann formaður ungmennafélagsins Baldurs í Hraungerðishreppi fyrsta ára- tug búskapar síns og átti sæti i fulltrúaráði Kaupfélags Ár- nesinga 1936—1960. Hefur Ágúst setið í hreppsnefnd frá 1936 og verið oddviti sveitar sinnar síðan 1950, en var for- maður skólanefndar 1939— 1959. Þykir hann myndar- bóndi, þó að fjárhagur hans væri þröngur framan af ævi vegna ómegðar. Skipaði hann sér brátt í fylkingu Fram- sóknarmanna, veitti dyggi- lega að málum Gísla heitn- um Jónssyni hreppstjóra á Stóru-Reykjum og erfði smám saman völd hans og trúnað. Var Gísli hygginn kai-I og ráðsvinnur og beitti and- stæðinga gjarnan hrekkvísri kænsku, en Ágúst er hins veg- 14 VTKAN “•tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.