Vikan


Vikan - 13.03.1969, Blaðsíða 41

Vikan - 13.03.1969, Blaðsíða 41
OauijER l,UFUR DRVKKUR Instant DÁILY cr súkkulaði- drykkur. DAILY lcysist upp á augabragði í mjólk eða vatni. Ein eða tvær teskeiðar nægja í eitt glas. Aðcins þarf að hræra og þó er tilbúinn undra- Ijúffengur súkkulaðidrykkur, heitur eða kaldur, eftir þvi sem hver óskar. Ðk"-'í meí roit^ Andri fsaksson Framhald af bls. 21 Vandinn, sem um ræðir, er svo alvarlegur, að til þess verð- ur að ætlazt af hinum ábyrg- ustu meðal ungra, miðaldra og gamalla þjóðfélagsþegna, að þeir reyni að skilja og viðurkenna hverjir aðra, ræða saman og stuðla að friðsamlegri lausn. En heildarlausn vandans verður þó líklega vart eygð, fyrr en vold- ugustu ráðamenn heimsins hætta að stefna honum á heljarþröm með vígbúnaðarkapphlaupi og áhrifabaráttu, sem ekki vandar meðul sín sem skyldi. ☆ Leifur Jóelsson Framhald af bls. 16 laugardaginn hefði komið úr dómsmálaráðuneytinu. Við send- um þá lögreglunni bréf með til- kynningu um gönguna eftir Sig- túnsfundinn, en heyrðum ekki stunu eða hósta frá lögreglu- stöðinni fjn-r en klukkan hálf- sex um kvöldið. Við Ragnar Stef- ánsson höfðum þá verið í aug- lýsingadeild útvarpsins að aug- lýsa gönguna, og starfstúlka í deildinni hringt í lögreglustjóra sjálfan og spurt, hvort leyfilegt væri að birta auglýsinguna. Lög- reglustjóri kvaðst ekki mundu banna það. Þegar við Ragnar vorum á útleið úr húsinu, hlup- um við beint í flasið á þeim lög- regluforingjunum Bjarka Elías- syni og Óskari Ólasyni, sem höfðu haft veður af okkur þarna, og fylgdumst með þeim niður á stöð til viðræðna. Bjarki sagði þá að við mættum ganga um miðbæinn, þar eð hann yrði hvort eð vœri lokaður jyrir bíla- umjerð, en við buðum á móti að ganga Austurstræti, Aðalstræti, Hafnarstræti, Hverfisgötu, Frakkastíg, Laugaveg, og Banka- stræti, sem sagt allt af með um- ferð. Um þetta var þjarkað í klukkutíma og gekk ekki saman. Lögreglumennirnir buðu að lok- um að rjúfa vítahringinn um miðbæinn og leyfa okkur að labba smátúr upp Hverfisgötu, um Ingólfsstræti og niður Banka- stræti. — En hversvegna brugðuð þið þá á það ráð að ganga upp Bankastræti, móti umferð? — Auðvitað er ekki nema rétt og sjálfsagt að taka tillit til um- ferðarinnar, en meðan á fundin- um stóð í Sigtúni höfðum við spurnir af liðssafnaði lögregl- unnar við Alþýðuhúsið, þannig að. greinilegt var að einnig átti að loka fyrir okkur leiðinni upp Hverfisgötu. Af tvennu illu álitlum við þá skjárra að leyfa lögreglunni að brjóta þessa göngu á bak aftur svip- að hinmii fyrri, en að þessu sinni fyi'ir augum ahra í mið- bænum, einmitt á þeim stað sem mestur fólksfjöldi var á ferh. Hefðum við hinsvegar farið upp Hverfisgötu, hefðu miklu færri vegfarendur orðið vitni að fimdi okkar og lögreglunnar. Nú, ég var x fremstu röð göngunnar, þegai' hún mætti fylkingu lögreglunn- ar í Lækjargötu, og lenti þá and- spænis Bjarka Elíassyni. Spurði ég hann þá enn einu sinni hvort lögreglan féllist ekki á mála- miðlim okkar, en hann svaraði neitandi. í næstu andrá þrýst- ust fylkingar saman. Bjarki lét ekki sitja við orðin tóm, því að hann ætlaði að handtaka mig án frekari umsvifa og náði á mér tökum, en varð að sleppa mér í troðningnum; tókst þó að rífa úlpu mína og slíta af mér arm- bandsúr, sem ég hef ekki séð síð- an. En maður kemur manns í stað, og annar lögregluþjónn sótti að mér, en lið kom á millum okkar svo að hann náði mér ekki heldui'. Ég barst þá aftur fremst í hóp göngumanna og lenti þá andspænis þremur lögreglu- mönnum, sem virtust þekkja mig og vera staðráðnir í að hjálpa mér úr þessum táradal. Ég sner- ist á hæli og ætlaði að hverfa í hópinn, en fékk þá kylfuhögg aftan á hvirfilinn og annað neð- ar í hnakkann. Nærstaddir fé- lagar mínir komu mér út úr þvögunni og í leigubíl, sem ók mér á slysavarðstofuna. Ég var með áverka sem þurfti sex spor í viðbót við þau, sem fyrir voru. Við spyrjum Leif um skoðxm hans á undirrót mótmælaaðgerð- anna hérlendis, og hann svarar: — Upphaf svokallaðra mót- mælaaðgerða hér á landi á sér sömu rætur og hliðstæðar að- gerðir erlendis. Þetta hefst með stuðningsaðgerðum við baenda- herinn í Víetnam. En hér sem annarsstaðar verður þess vart að uppúr þessum jarðvegi spretti almenn róttæk gagnrýni á hinu borgaralega „vestræna“ þjóðfé- lagi. Þess sjást æ fleiri merki að menn álíta að það stjórnarkerfi, sem hér ríkir og mótast af á- kveðnum þingmeirihluta sem skapast á fjögurra ára fresti, sé í eðli sínu ólýðræðislegt og þvingandi fyrir hinn almenna borgara. Hér er því um að ræða anga af þeirri lýðræðislegu hreyfingu, sein krefst uppgjörs við það þjóðfélagskerfi, sem rík- ir á Vesturlöndum, og sem reynd- ar er einnig í vexti í löndum Austur-Evrópu, þar sem stein- runnið skriffinnax7eldi verður æ meiri hemill á e<51ilegri samfé- lagsþróun. Þessi lýðræðislega hreyfing er um margt hug- myndalega ósamst,æð og sundur- leit, en flestir meðlLmir hennar myndu efalaust skrifa undir þau orð Karls Marx, sem rituð voru fyrir meira en öld, að framtíðar- markmið heimar sé að skapa samfélag „þar sem frjáls þróun einstakiingsins sé: -skilyrði fyrir frjálsri þróun heildarinnar.“ Þetta er andstætt því sem nú ríkir á Vesturlöndum, er vax- andi undirokun einstaklingsins og persónuleika hans er skilyrð- ið fyrir frjálsri þróun „heildar- innar“, það er kerfisins. Við skil- yrði framleiðsluhátta auðvalds- þjóðskipulagsins á Vesturlöndum krefst vaxandi fjöldaframleiðsla og fjöldaneyzla þess að einstakl- ingurinn sé til fulls innlimaður sem viljalaust tannhjól í vél kerfisins, bæði sem framleiðandi og neytandi. — Að endingu, Leifur, fyrir- hugið þið mótmælaaðgerðir þrí- tugasta marz næstkomandi, þeg- ar endurnýjun Nató-samningsins verður tekin fyrir? — Um það hefur eklxert verið ákveðið, svo mér sé kunnugt um. ☆ Birna Þórðardóttir Framhald af bls. 17 an að mér, þreif utan um mig og reyndi að rífa af mér fán- ann. Ég kallaði þá á nærstadda félaga mína til hjálpar, og brugðu þeir þegar við, en jafnskjótt drifu að fleiri lögregluþjónar til aðstoðar þeim, er fyrstur réðist að mér. Þarna urðu nokkrar sviptingai' — þetta var rétt hjá styttu Jóns Sigurðssonar — og i því rann ég til á hálku og datt, en sleppti ekki taki á fánastöng- inni. Ég var dauðhrædd um að troðast undir og sparkaði því eitthvað frá mér í ofboði, i varn- arskyni en ekki til að hitta heinn. Það er alrangt sem haldið hefru verið fram af lögreglunnar hálfu, að ég hafi ráðizt á einn lög- regluþjónanna að fyrra bragði og sparkað í hann af ásettu ráði. í þeirri svipan brotnaði fána- stöngin og hópixrinn leystist upp, en lögregluþjónarnir náðu fán- anum. Ég komst þá á fætur, hljóp á eftir einum lögregluþjónarma og hrópaði eitthvað, líklega fas- isti eða eitthvað í þá áttina. Mér var runnið í skap, því að ég gat ekki séð að þeir hefðu neina heimild til að rífa af mér fán- ann. Lögregluþjónninn nam þá staðar, tók upp brot úr fána- stönginni og lamdi mig með því í höfuðið án nokkurs formála. — Hversu öflugt var bareflið, heldruðu? — Að. gildleika eitthvað svip- að kústskafti, gæti ég trúað. — Þekktirðu manninn? — Nei, og man ekkert hvernig hann leit út. Nærstaddir fé- lagar mínir spruðu hann um núm- erið, en hann reif það þá af sér. Þeir fylgdu honum eftir á lög- reglustöðina til að kæra verknað- inn, en þar vai' þeim stungið inn í klefa og hótað Síðumúlavist ef þeir hreyfðu frekari mótmæl- um. — Það hefur spurzt, Birna, að þú hafir makað þig alla út í blóði og hrópað síðan á sjón- varpsmenn. — Það er rangt með farið, eins og fleira. Bjai'ki Elíasson lét hafa það eftir sér og Bjarni heiðursdoktor lét sér sæma að n. tbi. viKAN 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.