Vikan - 03.07.1969, Síða 2
Colgate f luor
gerir tennumar sterkari
við hverja burstun
Spyrjið tannlækni yðar...
hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur
mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar.
Byrjið í dag
- það er aldrei of seint...
Frá allra fyrstu burstun styrklr Colgate Fluor tannglerunginn
og ver tennurnar skemmdum. Með þvi að bursta tennurnar
daglega með Colgate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn
gegn sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt
við að eyðileggi tennurnar, ekki sizt tennur barnanna.
Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aðeins Colgate Fluor tannkrem hefur.
IFULLRI
Stór - Reykvíkingar
hættulegir
Nú eru sumarferðalögin í
algleymingi og flestir, sem
vetlingi geta valdið þeysa um
landið í leit að skemmtunum,
fögru landslagi og hvíld í
heiðanna ró. Okkur veitir ekki
af að halda kyrfilega á spöð-
unum, það eru ekki svo marg-
ir mánuðir, sem nýtast okkur
til ferðalaga og sólar yfir
árið. En kapp er bezt með
forsjá.
Það er áberandi þegar ekið
er um þjóðvegi landsins, hvað
bílar úr Stór-Reykjavík ■—-
flestallir með R, Y og G núm-
erum, eru langverstir viður-
eignar. Þeir fara á æsihraða
yfir blindhæðir og fyrir blind-
beygjur, draga lítið sem ekk-
ert úr ferð í mætingum og
víkja illa, fara fram hjá út-
skotum til að mæta bílum
10—12 metrum lengra og þá
gjarnan á örþröngum vegum.
Að þeim detti í hug, að það
borgi sig að stanza á góðum
stað hinkra ögn, meðan móti-
komandi bíll fer fram hjá —
það kemur alltof sjaldan fyrir.
Þó er stór hópur bílstjóra á
fyrrgreindum númerum, sem
fer svo varlega, að það er
stórhættulegt. Þessir menn
halda sig á miðjum vegi og
fara örhægt og ef þeir rýma
nægilega til svo að hægt sé
að komast fram úr þeim, er
það venjulega móti blindum
vegi eða af því að þeir víkja
fyrir bíl sem kemur á móti.
Það er ástæða til að hvetja
sumarleyfisbílstjóra til að
sýna lipurð í hvivetna í sum-
arumferðinni, víkja vel og
halda sig hægra megin, en
halda ekki umferð fyrir aftan
sig þegar óhætt er að fara
fram úr. Og það er jafnvel
verra að vera ofgráðugur í
að hleypa fram úr sér en gera
það á hættulegum stöðum. í
biblíunni segir, að það sem
þér viljið að aðrir menn gjöri
yður, það skulið þér og þeim
gjöra, og þetta á svo sannar-
lega við í umferðinni ekki
síður en annars staðar. S.H.