Vikan


Vikan - 03.07.1969, Síða 4

Vikan - 03.07.1969, Síða 4
Trúmál haf'a verið mjög til umræðu undanfarið, og allt í einu virðast allir vita allt um þann hluta samfélagsins. Það er einkum tvennt, sem hefur átt þátt í að koma þessari umræðuöldu af stað; í fyrsta lagi hinar svokölluðu Pop-guðþjónust- ur, og svo uppátæki reykvísks borgara sem gerzt hefur all aðsópsmikill í helgihaldi borgarinnar, og hefur hvað eftir ann- að truflað guðþjónustur með alls kyns frammíköllum og afneitunum á þeirri kirkju, sem hann segist hafa verið neyddur í sem ómálga barn. Hér skal enginn dómur lagður á þetta, en í framhaldi af þessum umræðum sneri VIKAN sér til nokk- urra ungmenna, og lagði fyrir þau spurninguna: HVERS VEGIfl LESTU FERMA ÞIG? TEXTI ÓMAR VALDIMARSSON MARGRÉT ÞORLEIFSDÓTTIR, fermd 1969: Aðallega til að komast í kristinna manna tölu, þótt umstangið i kringum þetta hafi að sjálfsögðu haft sitt að segja. Ég tei mig hafa gert mér fulla grein fyrir hvað ég var í rauninni að gera. ICRISTÍN PÁLSDÓTTIR, fermd 1966: Er það hara ekki skylda að láta ferma sig? Ein- hvernveginn hefur mér alltaf skilizt það. En mér finnst að það ætti tvimælalaust að hækka ferming- araldurinn. Langflcstir á þessum aldri hugsa bara um gjafimar í sambandi við ferminguna. STEINAR VIKTORSSON, fermdur 1966: Nú, það er haldin veizla, maður fær peninga og góðan mat og fleira skemmtilegt. Og þar sem yfir- leitt allir aðrir eru kristnir, þá er gaman að vera það líka. Ekki veit ég hvort ég hef nokkuð batnað við ferminguna, en varla versnað. SIGRÍÐUR MARÍA JÓNSDÓTTIR, 10 ára: Það er nú ekki búið að ferma mig, en ég ætla að láta gera það, þegar þar að kemur. Að visu veit ég ekki hvaða þýðingu þetta á að hafa, en ég trúi þó á guð. GIJÐFINNUR ÓLAESSON, fermdur 1969: Ja, mér var nú bara sagt að láta ferma mig, það var engin spurning um neitt annað. Mér finnst þetta hafa haft lítil áhrif á mig, þó það hafi það kannski á suma. GUÐJÓN KNÚTSSON, fermdur 1967: Sennilega hefur gróðasjónamiðið ráðið þar mestu um, en kannski líka vegna þcss að maður trúir aðeins á guð. Varla þennan gamla gráskeggjaða í hæðunum, heldur eitthvað sem allir bera virðingu fyrir og enginn þorir að lítilsvirða. 4 VIKAN 27 tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.