Vikan


Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 5

Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 5
SIGURBORG BORGÞÓRSDÓTTIR, fermd 1968: Ætli það sé ekki eitthvað út af trúnni .... ERNA STEINA GUÐMUNDSD., fermd 1967: Nú, maður fær gjafir og svolciðis, og svo gera þetta bara allir. Jú, og svo trúir maður á guð. En mér finnst að það ætti að hækka fermingaraldurinn. LOVÍSA G VIÐARSDÓTTIR, fermd 1969: Til að komast í kristinna manna tölu, því ég trúi á Krist og minn eigin gnð. IvARL KRISTINSSON, fermdur 1967: Þetta þykir alveg sjálfsagt, og maður kemst í krist- inna manna tölu, sem er gott, því þegar maður fer að læra aðeins um þetta alltsaman, þá kemst maður að því að þetta er rétt, og maður trúir á það. Nei, ég held það hefði ekki breytt miklu þótt þetta hefði átt að ske seinna. HELGA SIGURÐARDÓTTIR, 19 ára: Þar sem foreldrar mínir eru utan Þjóðkirkjunnar, þá kom það eiginlega aldrei til að ég léti fermast. Mér fannst það töluvert undarlegt þá, að vera ekki fermd eins og allir aðrir, en nú cr mér alveg sama. Hitt er annað mál, að ég trúi ekki á guð — og mér finnst það einber hræsni hvernig fólk lætur. Það fer í kirkju einungis til að láta skíra, ferma. gifta og jarða, en sjaldan þcss á milli. Nei, ég reikna ekki með að ég léti ferma mig nú, þó það kæmi tll. GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, fermd 1969: Það gcra það flestir, svo ég sá ekki ástæðu til að gera það ekki líka. Hefði þetta átt að ske eftir nokk- ur ár, þá er ekki gott að segja hvað ég hefði gert. En foreldrarnir ráða nú svona venjulega. Samt finnst mér ég hafa haft gott af þessu, og með því að ganga til spurninga, Xærði ég margt um kirkju og kristin- dóm, sem allir ættu að vita. SKÚLI JÓNSSON, fermdur 1963: Af því að allir aðrir gerðu það. Það virtist vera vani að krakkar á þessum aldri létu ferma sig — eða væru fermd. Ég vissi ekki þá, hvað þetta í rauninni var, en ég tcX mig vita það nú, svo ég efast um að ég léti ferma mig nú ef það stæði til. Maður er í svo mikilli óvissu, og mér finnst þetta allt of stórt atriði, til þcss að hugsa bara um tilstandið sem þessu fylgir. Hvort ég trúi á guö? Ja, nú veit ég ckki... 27. tbi. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.