Vikan - 03.07.1969, Page 9
mennur flokkur. Og það
sem mig langar að vita er
þetta, Póstur góður:
1. Má hvaða íslenzkur
ríkisborgari sem er stofna
stjórnmálafiokk?
2. Ef svo er, hvað þarf
viðkomandi að vera gam-
all?
3. Er leyfilegt samkvæmt
stjórnarskránni að fylgja
hvaða stefnu sem er, þ.e.
má hún vera yfir öll tak-
mörk hafin?
4. Ef svo er ekki, hver
sker þá úr um hvað er
leyfilegt og hvaða er ekki?
5. Er leyfilegt að auglýsa
flokkinn og stefnu hans í
útvarpi og sjónvarpi?
Vonast eftir svari.
Forvitinn.
Á Islandi ríkir algjört
félagafrelsi og því má hver
sem er stofna hvaða félag
sem honum sýnist, svo
framarlega sem það er ekki
glæpafélag. Engin aldurs-
takmörk cru sett en ætli
þessi flokkur að bjóða fram
til kosningar þarf að
minnsta kosti að hafa náð
kosningaaldri. Flokkurinn
getur fylgt hvaða stefnu
sem er, svo fremi hún
brjóti ekki í bága við
landslög og „almennt vel-
sæmi,“ eins og segir í
stjórnarskránni. Úrskurð-
arvaldið í þessum málum
myndi vera í höndum lög-
reglustjóra og saksóknara.
Engin lög banna flokknum
að auglýsa í útvarpi og
sjónvarpi, en þessar stofn-
anir hafa sjálfar sínar regl-
ur, sem þær hafa til grund-
vallar öllum slíkum aug-
Iýsingum.
ÁST í MEINUM
Kæri Póstur:
Ég ætla að skrifa þér um
vandamál mitt eins og
margir gera, og ég vona að
þú getir fundið svar við
spurningu minni. Þannig er
mál með vexti, að ég er
mjög hrifin af strák, og ég
get ekki um annað hugsað,
og ekki nóg með það, held-
ur gengur mér miklu verr
í skólanum en áður. Nú
veit ég bara ekki hvort
hann er hrifinn af mér.
Hvað á ég að gera, kæri
Póstur?
það vera. Jú nú er skólinn
búinn, og þá ættir þú að
geta farið að einbeita þér
að því að töfra piltinn þinn.
Hvernig? Gefðu honum
pöddu!
SJÚKRALIÐI
Kæri Póstur:
Mig langar til að biðja
þig að gefa mér svör við
nokkrum spurningum. Ég
er tuttugu og tveggja ára,
og langar mjög mikið til að
verða sjúkraliði. Hvert á
ég að leita um inngöngu á
námskeiðið og hvaða
menntunar er krafizt. Hve-
nær hefjast námskeiðin, og
hvað taka þau langan tíma.
Ég vona að þú getir leyst
úr þessum spurningum fyr-
ir mig. Með fyrirfram
þakklæti.
Ein sem bíður
eftir svari.
Bezt er fyrir þig að snúa
þér til Skrifstofu Ríkisspí-
talana því þar færðu beztu
upplýsingarnar, og þar
myndir þú sækja um inn-
göngu á slíkt námskeið.
SIDNEY POITER
Kæra Vika:
Þannig er mál með vexti,
að ég var að finna eldgöm-
ul „prógrömm", og eitt
þeirra var frá myndinni
„Porgy & Bess“; lék Sid-
ney Poiter aðalhlutverkið,
Porgy, og Dorothy Dan-
dridge lék Bess. Nú langar
mig til að vita hvað langt
er síðan þessi mynd var
sýnd hér á landi? Og eru
ekki pantaðar aftur mynd-
ir sem hafa verið sýndar
hér fyrir svoan 20 árum?
Og svo að lokum: Gætuð
þér gefið mér heimilis-
fangið hans Sidney Poiter?
Með fyrirfram þökk
Ein sem dáir
Sidney Poiter.
Mynd þessi mun hafa
verið sýnd hér í kringum
1960, og þá í Laugarásbíói.
Persónulega sér Pósturinn
ekkert athugavert við að
fá hingað eins og 20 ára
gamlar myndir, svo ég tala
nú ekki um myndir eins og
„Á hvdrfandi hveli“, en
því miður, tæknilega mun
þetta nokkrum erfiðleikum
bundið. Heimilisfangið á ég
ekki.
Er bér annt iim teimiirnap?
bá er hezta ráflifl að brífa
bær vel:
Þegar þú burstar tennurnar með venjuleg-
um bursta, hreinsar þú munninn tiltölulega
hægt. Þú burstar tanngarðana beturað utan-
verðu en innan. Framtennurnar betur en
jaxlana.
í hreinskilni sagt: Þú hefur fljótaskrift á
burstuninni.
Þegar þú færð þér Ronson rafmagnstann-
bursta, er engin fljótaskrift. Burstinn fer 11
þúsund sinnum upp og niður á mínútu.
Hann er með nettan haus og mjótt skaft.
Hann nær auðveldlega til jaxlana og milli
tannanna. Leifturhraðar hreyfingr hans gera
það sem gera þarf. Hann nemur burt matar-
leifar og óhreinindi. Fágar glerunginn. Styrk-
ir tannholdið.
Spurðu bara tannlækninn þinn.
Ef þú ert einn af þeim, sem heldur að
þú fáir rafmagnshögg í tunguna, er þér
óhætt að kasta af þér áhyggjunum. Bursta-
skaftið er úr plasti, sem leiðir ekki rafmagn,
og þar að auki er straumurinn af rafhlöð-
unum svo veikur, að þú fyndir varla fyrir
honum.
En nógu sterkur fyrir Ronson tannburstann.
EINKAUMBOÐ:
I. Guðmundsson & Co. hf.
V______________________________________)
27. tbi. VTTCAN 9