Vikan


Vikan - 03.07.1969, Page 11

Vikan - 03.07.1969, Page 11
úr í fjölmenni. Samt gefa Þingeyingar manninum gaum. Þeir viðurkenna snyrti- mennsku hans og líta gjaman á hann sem fulltrúa sinn. Bjartmari hefur og orðið til framdráttar, að sveitungun- um finnst varla taka því að öfunda hann. Þeir hafa í flimtingum þá tilviljun, sem olli frægð hans og metorðum, en láta sér hana vel líka. Á alþingi fer næsta lítið fyrir Bjartmari Guðmunds- syni. Hann tekur þar sjaldan til máls, en starfar dyggilega í nefndum. Þó fær hann stundum fram vilja sinn að tjaldahaki, ef honum liggur eitthvað á hjarta. Helzt mun ])að fyrirgreiðsla, sem vald- hafar og stjórnarherrar álíta sér skylt að láta meinleys- ingjum í té. Bjartmar erfði ekki skapsmuni og bersögli föður síns, en kurteisi lians og þakklæti við hefðarstand- ið og oddborgarana. Hann reiðist aldrei svo, að eftir sé tekið, en líður hægt og stillt áfram eins og fjöl á lygnu vatni. Eigi að síður er tilfinn- ingalíf hans frjótt, gáfurnar dyggar og forvitnin rík, en honum nægir löngum að sjá og heyra. Bjartmar Guð- mundsson ætlaði aldrei að breyta hlutskipti landsins eða örlögum þjóðarinnar. Honum finnst, að þvílík ósköp hlióti að verða þúsund ára þróun. Hann er þannig íhaldssamur að eðli og innræti, líkt og gamall bóndi, sem á allt sitt undir sól og regni. N átt úruf egurð Þingeyjar- sýslu cr við brugðið, og land- gæði reynast þar mörg, þó að misjafnt ári. Bjartmar Guð- mundsson ann héraðinu og kann glögg skil á sögu þess og menningu. Faðir lians sá úr bæ sínum fránum skáld- augum langt lit í heim. Bræð- ur haris fóru suður fjöll og komust til mennta. Biartmar fylgdist með því ævintýri. Af því spratt skyn hans og metn- aður. Gáfur hans voru og nægar að láta um sig muna. Hann vann foreldrum og systkinum af drengskap og skyldu, en vissi einnig sam- tíð og veröld. Bjartmari gafst þannig ungum öryggi og festa, sem átti við skapgerð hans, en hann ól jafnframt með sér vonir og drauma og slapp við þá lamandi minnimáttar- kennd, sem næmlyndum ung- lingum hættir oft við í fásinni og einangrun. Ríki hans var ekki aðeins dalurinn norður við Skjálfandaflóa. Hann átti sér auðugan hugarheim, sem bætti honum upp veruleik- ann. Svo kom á fund hans sendinefndin haustið 19.59. Jónas Rafnar og Magnús Jónsson frá Mel þurftu í at- kvæðaleit sinni um Norður- landskjördæmi eystra við- kunanlegan samferðamann, sem rataði um Þingeyjarþing og myndi þar sæinilega tek- ið. Bjartmar var fús til slíkr- ar þjónustu. Ferðin varð liins vegar lengri en nokkurn grun- aði, er lagt var af stað. Hún lá í spor bræðra hans suður til Reykiavíkur og var farin miklu frægara erindis en þeirra beið. Bjartmar skorti raunar atgervi föður síns í fundarsal og á mannamóti, en hann þurfti sannarlega ekki að kvarta. Forlögin trúðu honum allt í einu fyrir því að greiða atkvæði á Alþingi íslendinga. Það stóð Guð- mundi á Sandi aldrei til boða. Þannig snýst hjól lukkunn- ar sumum hæglátum en far- sælum mönnum. Bjartmar Guðmundsson virtist ekki borinn til áhrifa eða valda, en honum gafst samt upp- hefð, sem var hugkvæmni hans ríkari. Bóndinn á Sandi átti hennar kost af því að hann var kyrr heima í sveit- inni sinni og beið þess, sem duttlungagjörnum forlögum þóknaðist að bjóða, er þau gerðu að gamni sínu honum í vil. Slikur maður á ekki frumkvæði að uppreisn eða bvltingu, en nafn hans geym- ist eisri að síður i albingis- mannatalinu eins og hinna, sem ryðjast þangað af skipu- lögðum ásetningi. Þing- mennskan er Bjartmari eins og kaupstaðarferð um alda- mótin. Lúpus. 27. tw. viKAN 11

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.