Vikan


Vikan - 03.07.1969, Qupperneq 13

Vikan - 03.07.1969, Qupperneq 13
Þetta er nýleg mynd af Hollies. Nýjasti liðsmaðurinn, Terry Silvester, er lengst til hægri. Trymbillinn Bobby Elliot stendur við hlið hans. Bobby er nú búinn að fá sér hárkollu, en hárum er farið að fækka mjög á höfði hans. Hingað til hefur Bobby haft hatt á höfðinu til þess að opinbera ekki hárleysi sitt, en nú virðist vera séð fyrir endann á þeim raunum. þessu lagi tekst Hollies að seiða fram mjög skemmtilegan og sér- kennilegan hljóm. Lagið „Blowing In The Wind" rekur síðan lestina á hlið I á plöt- unni. Þetta mun vera frægasta lag Dylans, lag sem allir þekkja. Hollies fá til liðs við sig í þessu lagi stóra sveit strengja og horna. Söngurinn er dæmigerður fyrir Hollies, en frá- vikið í millikaflanum kann hugsan- lega að valda harðsoðnum Dylan unnendum hugarvlli. Á hlið númer II er fyrst lagið „Quit Your Low-Down Ways", sem er tiltölulega lítt þekkt. Hollies segja sjálfir, að þeim hafi þótt ráð- legt að láta líka fljóta með lög, sem ekki láta kunnuglega í eyrum. Þá kemur lagið „Just Lika A Wo- man". Helzta skrautið þar er kirkju- orgelspil Bern Calvart. Manfred Mann & Co. gáfu þetta lag út á tveggja lag plötu sem kunnugt er, en útgáfa Hollies er gerólík. Hér reynir á raddbönd Allans, því að mikið raddsvið þarf til að gera lag- inu góð skil. Allan kemst svo til klakklaust í gegnum lagið. Lagið „Times They Are A-Chang- ing" hafa Hollies lengi haft á efnis- skrá sinni á hljómleikum, og það er líka á plötunni. Endirinn er stórbrot- inn, og þar er orgelleik'arinn í feikna stuði. Kannski muna menn eftir banda- rísku hljómsveitinni Byrds. Þessi hljómsveit hlaut frægð fyrir að flytja lög eftir Bob Dylan, m.a. lag- ið „All I Wanna Do". Sú útfærsla þótti hin ágætasta. Ekki er útgáfa Hollies síðri. í laginu „My Back Pages" eru tré- blásturshljóðfæri notuð og gefa þau góða raun. Síðasta lagið á plötunni er hið fræga „Mighty Quinn". Hér er mik- ið um blástur og banjóspil. Svo aftur sé vitnað til vísustu manna, eins og í upphafi þessa máls, má búast við, að þetta lag muni ná mestum vinsældum, ásamt laginu „Blowing in the Wind". Þá er allt upptalið: 12 lög eftir Dylan flutt af Hollies á einni plötu. ☆ Þannig spyrja margir og ekki að ófyrirsynju. Hæggengar hljóm- plötur eru fáanlegar í mono og stereo og margar stereoplötur eru þannig úr garði gerðar, að þær má spila á glymskröttum, sem aðeins eru gerðir fyrir mono- plötur. Heita slíkar plötur „stereo compatible“ á ensku máli. Hvers vegna gildir ekki hiS sama um tveggja laga plötur? Þetta mál var til umræðu í ensku mús- ikblaði nýlega. Blaðamaðurinn bar sig upp við nokkra plötuút- gefendur, fyrst EMI. — Hér í landi eiga menn yfir- leitt ekki svo góða plötuspilara, að þeir þoli stereo-plötur. Þeir eru ekki nógu margir, sem eiga stereo-plötuspilara. Blaðamaðurinn benti stúlkunni sem varð fyrir svörum hjá EMI á, að plötueigendur gætu hæglega orðið sér úti um „hausa“ á plötu- spiiara sína með tveim nálum, annari fyrir mono, hinni fyrir stereo. Þá stóð stúlkan á gati og sagðist þurfa að ráðfæra sig við yfirmenn sína. Að því loknu sagði hún: — Fólk mundi bara ekki gera sér það ómak að skipta um nál. Og við fengjum svo plöturnar í hausinn með þeim ummælum, að þær væru gallaðar. Sá, sem var fyrir svörum hjá Decca sagði: — Þeir, sem kaupa hæggeng- ar hljómplötur, eiga yfirleitt vandaðri plötuspilara en þeir, sem kaupa tveggja laga plöturn- ar. Það má vel vera, að tveggja laga plötur í stereo komi í um- ferð seinna meir, þegar plötuspil- arar verða orðnir vandaðri. Eins og málin standa nú er réttast að yfirgefa hugmyndina um tveggja laga plötur í stereo. Þeir hjá PYE sögðu: — Málið er undir stöðugu eft- irliti. Við ætlum að sjá til, hvern- ig þessi mál æxlast; hvort það borgi sig að gefa út tveggja laga plötur í stereo. Það er ekki víst, að réttlætanlegt sé að gefa út tveggja laga stereoplötur. Lögin eru yfirleit það stutt, að það tek- ur því ekki. Skömmu eftir að þessi ummæli birtust, gerðist það, að forráða- menn eins af dótturfyritækjum PYE, „Head Records", lýstu því yfir, að framvegis mundu allar tveggja lag plötur þess útgáfu fyrirtækis verða í stereo. í yfir- lýsingunni sagði m.a.: —• Við erum þeirar skoðunar, að stereo plötur séu eðlileg þróun í hljómplötuiðnaðinum. Við ráð- getum líka, að lögin á tveggja laga plötum okkar verði heldur lengri en títt er, en á þennan hátt munum við ná til þeirra mörgu hljómplötukaupenda, sem ein- ungis kaupa 12 laga plötur og hirða ekki um tveggja laga plöt- urnar sökum þess, að þær hafa hingað til ekki fengizt í stereo. Hjá plötufyrirtækinu Track Records hafa verið gerðar til- raunir með útgáfu tveggja laga platna í stereo. Nefna má tvær plötur með Jimi Hendrix: „All along the Watctower“ og „Cross- town Traffis" og eina með Who: „Pinball Wizard“. Þeir hjá Track efndu til skoðanakönnunar, áður en hafizt var handa um útgáfu á þessum stereoplötum og þeir segja, að engri plötu hafi verið skilað aftur á þeim forsendum, að hún væri gölluð. Þeir segja: -—• Ef sýnt er, að hljómplata verði áheyrilegri í stereo, þá gef- um við hana út þannig. Dæmi Framhald á bls. 36. BARRY BG BÍUINN Barry Ryan, söngvarinn brezki, er nú sem óðast að ná sér á strik eftir brunasár, sem hann hlaut, þegar sprengingin varð í síma, er hann sat við í auglýs- ingaskyni fyrir þýzka unglinga- blaðið Bravó, en frá þessum at- burði sögðum við ekki alls fyrir löngu. Hann hefur nú komið sér upp skeggkraga, sem hylur sárin og örlar því hvergi á neinum um- merkjum eftir óhappið. Eins og títt er um nafntogaða menn hef- ur Barry mikið dálæti á gömlum og fágætum bílum. Á myndinni sjáum við Barry við gamlan og virðulegan Mercedes-Benz, sem metinn er á sex þúsund pund. 27. tbi. VIKAN 13

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.