Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 23
GRUNNAÐFERÐ:
Þvoið ávextina vel. Hlutið þá síðan til helminga og pressið saf-
ann úr. Takið alla kjai na frá og látið þá í grisju, sem síðan er bund-
in saman utan um þá. Hýðið er brytjað smátt, því smærra sem það
er skorið, því betur vinnst úr því hleypiefnið, pectinið. Látið nú
saxaða hýðið og safann — það með talinn sítrónusafa ef hann er
með í uppskriftinni — í pott, ásamt vatni og grisjupokanum með
kjörnunum.. Soðið við vægan hita um 2 klst. Þá á hýðið að vera
orðið alveg mjúkt.
Takið grisjupokann uppúr og pressið úr honum eins mikinn
vökva og hægt er ofaní pottinn.
Sykri bætt í og hrærið í meðan hann er að bráðna. Suða látin
koma upp og bullsoðið unz hlaupstiginu er náð. Það ætti að taka
15—20 mín. Gætið þess að ekki brenni við. Veiðið alla froðu ofan
af og látið síðan ávaxtamaukið kólna í 15 mín. Hrært upp og hellt
í hrein, heit glös. Kringlótt stykki af vaxpappír lagt ofan á í
glasið en sellofan bundið yfir þegar maukið er orðið kalt.
Til þess að kanna hvort hlaupstiginu er náð er eftirfarandi að-
ferð. Takið pottinn af hitanum. Látið eina skeið af mauki í skál,
sem stendur í köldu vatni. Þegar hlaupið er kalt í skálinni á að
vera komin skán ofaná, sem hrukkast ef ýtt er á fingri. Ef
svo er ekki, þarf að sjóða maukið lengur, 5 mín ættu að duga.
EINFALT APPELSÍNUMAUK
1 kg. appelsínur
safi úr 1 sítrónu
Soðið samkvæmt ofanskráðri aðferð
mauki.
APPELSÍNU- OG SÍTRÓNUMAUK
1 kg. appelsínur Vz kg. sítrónur
2% L vatn 3 kg. sykur
Soðið á sama hátt, en sérkennilegt kryddbragð fæst með því að
láta 1—1% matsk. kanel útí um leið og sykurinn.
FÍNT APPELSÍNUMAUK
Hér er notuð dálítið margbrotnari aðferð.
1 kg. appelsínur 2 1. vatn
safi úr 2 sítrónum 1 Vz kg. sykur
Hellið sjóðandi vatni yfir appelsínurnar, síðan eru þær afhýddar.
Allt það hvíta skorið innan úr hýðinu, og hýðið fínbrytjað.
Síðan er það soðið í lokuðum potti ásamt Vi 1. vatns. Suðutími
allt að 2 klst við vægan hita og gætið þess að vatnið sjóði ekki
niður. Ávextirnir sjálfir brytjaðir gróft og soðnir sér í potti í 1 1.
vatns og sítrónusafanum. Lok sett á pottinn og sama suðutíma er
krafizt og á hýðinu.
Næst er soðinu af hýðinu hellt í ávaxtapottinn, en hýðið geymt.
Innihaldi ávaxtapottsins helt upp í grisju, sem strengd hefur verið
yfir stórt ílát (pott) og safinn síaður þannig frá. Látið síast a.mk.
15 mín. (Nota má þvottaklemmur til þess að halda grisjunni á
barmi skálar eða potts).
Grisjan er nú tæmd á ný í tóma pottinn, 'ík 1. sem eftir var af
vatninu bætt útí og maukið soðið á nýjan leik í 20. mín. síðan síað
eins og áður saman við safann sem fyrir er.
Safinn mældur í pottinn, suða látin koma upp og soðið í 5 mín.
Sykri bætt í, áætlið 1 kg. sykur móti 1 1. af safa, látið sykurinn
bráðna við lítinn hita. Soðna hýðinu bætt útí, soðið við góðan hita
um 30 mín. Gætið þess að ekki brenni við. Reynið hlaupstigið. Sé
því náð er potturinn tekinn af hitanum. Froða veidd ofan af og
kælt aðeins. Fyllt á glös eins og áður er frá sagt. ☆
FlJðTGERDIR
EFTIRRÉTIIR
ÁV AXT ARÉTTUR
Hann er gerður úr 1 kg dós af blönduðum niðursoðnum ávöxt-
um og má búa ahnn til í dósinni ef vilL
Leggið í bleyti 5 blöð af matarlimi í kalt vatn í 5 mín. Kreistið
vatnið úr og leysið blöðin upp yfir hægum hita eða vatnsbaði í
litlu íláti, sem þolir hita. Þegar matarlímið er bráðið er því bland-
að vandlega saman við ávextina, gott er að láta dálítinn sítrónu-
safa samanvið, það skerpir bragðið. Kælt í kæliskápnum eða köld-
um stað. í kæhskáp ætti 1 klst. að nægja. Hafi hlaupið verið
búið til í dósinni sjálfri er botninn nú skorinn úr með dósahnífn-
um og stöplinum þrýst út á disk. Skreytið í kring með appelsínu-
bitum eða vínberjum og bezt er að hafa þeyttan rjóma með.
EFTIRMINNILEG EPLATERTA
Botnar:
4 dl. hveiti 1 matsk. edik + 4 matsk.
200 gr. smjörlíki kalt vatn
sykur
Fylling:
2 dl. rjómi og eplamauk
Smjörlíkið mulið í hveiti svo það verður fínkorna, vökvanum bætt
í og hnoðað fljótt saman. Látið deigið kólna í nokkra tíma. Flatt
út í aflanga köku, stráið ögn af hveiti yfir og brjótið kökuna sam-
an í 3 hluta (neðri endann uppundir miðju og efri endann ofan yfir
hinn). Fletjið ögn á langveginn og brjótið eins aftur. Síðan er deigið
flatt vel út og skornir út 3 botnar, þeir lagðir á plötu og pikkaðir
með gaffli. Einn botninn er penslaður með vatni og sykri stráð
yfir. Botnarnir bakaðir við 250° C. 5—7 mín. Rétt áður en tertan
á að berast fram er rjómi þeyttur og látinn milli 2 laga þá er epla-
mauk látið ofaná og efst sykraði botninn.
Það fylgir sögunni að karlmenn hafi einstakt dálæti á tertunni
og ekki ætti það að vera verra.
SÚKKULAÐIBÚÐINGUR
Uppáhaldsbúðingur barnanna. 4 eggjarauður þeyttar ásamt 80
gr. af sykri, í skál sem stendur í heitu vatni. Þeytið unz sykurinn
er fullbráðinn, þá er skálin tekin af hitanum og haldið áfram að
þeyta þangað til hræran er köld. í þetta er blandað 2 dl. rjóma sem
hefur verið stífþeyttur og 60 gr. suðusúkkulaði, sem brætt hefur
verið í 3 dl af heitu rjómablandi. 3 blöð af matarlími lögð í
bleyti, undin vel upp og brædd í ögn af sjóðandi vatni. Síðan er
matarlíminu blandað saman við súkkulaðihræruna. Hellt í skál
eða hringmót og látið kólna og hlaupa. Borið fram með þeyttum
rjóma. ☆
2)4 1. vatn
3 kg. sykur
Úr þessu fást um 4—5 kg af
27. tbi. VIKAN 23