Vikan


Vikan - 03.07.1969, Side 36

Vikan - 03.07.1969, Side 36
"\ RAFHA-HAKA 500 er sérstak- lega hljóðeinangruð. — Getur staðið hvar sem er án þess að valda hávaða. Öruggari en nokkur önnur gagnvart forvitnum börnum og unglingum. Hurðina er ekki hægt að opna fyrr en þeytlvindan er STÖÐV- UÐ og dælan búin að tæma vélina. RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yðar mun ávallt skila yður full- komnum þvotti ef þér aðeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi, þ. e. það sem við á fyrir þau efni er þér ætlið að þvo. Með hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar. Þvottakerfin eru: 1. Uilarþvottur 30° 2. Viðkvæmur þvottur 40° 3. Nylon, Non-Iron 90° 4. Non-Iron 90° 5. Suðuþvottur 100° 6. Heitþvottur 60° 7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90° 8. Heitþvottur 90° 9. Litaður hör 60° 10. Stifþvottur 40° 11. Bleiuþvottur 100° 12. Gerviefnaþvottur 40° Og að auki sérstakt kerfi fyrir þeytivindu og tæmingu. hreisna munina á gamla mátann og fann þá upp auðvelda aðferð við að ná mold og leir af þeim, með þv( að sprauta uppleysandi efnum ( þá með venjulegri sprautu. Hún skrifar aldrei, meðan hún er í leiðöngrunum. — Ég hefi aldrei tíma til þess, ég hefi alltaf nóg að gera við að hjálpa manninum mín- um. Ég fæ auðvitað hugmyndir, en þær gæti ég fengið hvar sem er. Þessutan er ég ákaflega eftirtektar- laus. Ég tek aldrei eftir því hvort fólk hefir fengið sér nýja flík, eða skipt um húsgögn, — það er oft óþægilegt. Baráttan milli húsmóðurstarfanna og rithöfundarstarfanna hefir aldrei verið neitt vandamál fyrir Agöthu Christie, sem hefir meiri ánægju af rithöfundarstarfinu sjálfu, heldur en heiðursyfirlýsingum og virðingar- votti. En það er oft margt sem er mál- um blandað. Þótt Agatha Christie sé hrifin af manni sínum og starfi hans, þá er hún ekki hrifin af ýms- um sögum sem ganga um þau, eins og þeirri að „fornleifafræðingur sé bezti eiginmaður sem hægt sé að fá, vegna þess að því eldri sem kon- an er, því skemmtilegri sé hún, og því meiri áhuga hafi hann fyrir henni." Hún sver og sárt við leggur að hún hafi aldrei sagt þetta, og hún segist geta myrt þann slúður- dálkahöfund sem kom þessari sögu á kreik. Það er nú eiginlega synd að eng- inn fótur skuli vera fyrir þessu, þetta hefðu verið skemmtileg og eðlileg tilsvör frá þeirri konu sem skapaði Hercule Poirot.... ☆ Þannig dó doktor... Framhald af bls. 17 niður, dró það dilk á eftir sér fyrir Erdstein. Hin fasísku yfir- völd lands hans voru ekkert hrif- in af einkaframtaki hans í málinu og höfðu í hyggju að setja hann inn fyrir vikið. Hann slapp þó úr landi og er nú í Bretlandi. Þar lýsti hann vígi Mengeles á hendur sér og hefur látið hafa eftir sér sitthvað fleira um nas- íska flóttamenn í Suður-Amer. íku. Meðal annars fullyrðir hann að sá margumtalaði Bormann búi djúpt inni í frumskógum Para- gvæ, hafi þar um sig marglt manna og ströng varðhöld. Þessi fyrrvgrandi staðgengill Hitlers kvað nú mjög farinn að heilsu, en síður en svo þrotinn að and- legum kröftum. Hann er sagð- ur lifa í þeirri trú að end- urreisn heimsveldis nasista — stofnun fjórða ríkisins - sé að- eins tímaspursmál. Hann er ör- uggari en í fljótu bragði mætti virðast því að í Suður-Ameríku eru nasistar ekkert sérstaklega ill séðir. Þar er margt Þjóðverja, og Erdstein fullyrðir að margir þeirra séu heittrúaðir nasistar og enn fleiri hafi meiri eða minni samúð með stefnunni. Hann er sannfærður um að kúl- urnar, sem hittu Mengele á Para- ná-fljóti, hafi orðið honum að bana en auðvitað verður það ekki fullkomlega sannað. Mörgum þeim, sem um sárt eiga að binda af völdum þessa ómennis mun ef til vill finnast að hann hafi slopp- ið fullvel með að hljóta svo auð- veldan dauðdaga. Þeir sem á annað líf trúa hugga sig þá kannski við að örlög Auschwits- læknisins og hans líka hinum- megin verði eitthvað á þá leið sem í vísunni segir: Óskapnaðar út í rið öndin nam sér steypa, því sjálft helvíti velgdi við vofu slíka að gleypa. dþ. Hvers vegna ekki.... Framhald af bls. 13 þessa er lagið „Pinball Wizard“. Það er hálf flatneskjulegt í mono, en þannig heyrum við það í út- varpinu. Forráðamenn plötufyrirtækis- ins „Island Records“ eru sama sinnis og þeir hjá „Track Re- cords“. — Áður en langt um líður verða allar plötur, sem við gef- um út, í stereo, en þannig úr garði gerðar, að þær bíða ekki tjón, þótt spilaðar séu á plötuspil- urum, sem ætlaðir eru fyrir mono plötur. Á síðasta ári gáfum við út tveggja laga plötu í stereo með Dave Mason. Þetta gaf svo góða raun, að við höfum ákveðið að halda áfram á sömu braut. Þess má geta, að ein stærsta útvarpsstöð í Þýzkalandi hefur þegar hafið útsendingar í stereo. Gert er ráð fyrir, að allar út- varpsstöðvar þar í landi muni út- varpa í stereo, áður en þetta ár er úti. Það gefur því auga leið, að allar hljómplötur þar í landi munu verða gefnar út i stereo, hvort heldur þær eru tólf eða tveggja laga. ☆ _ E-ég er ekki húsbóndinn, ég er að spyrja um hann! 36 VIKAN 27 tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.