Vikan - 03.07.1969, Side 45
MORÐ-
KVENDIÐ
irramhald af bls. 30
sjálfa sig endurtaka, „hefðuð
þér.... hefðuð þér lyst á drykk?
í£g verð að.... já, að fá að
jafna mig.“
Hann virtist undrandi, en eng-
an veginn frábitinn uppástung-
unni. Augu hans léku um hana
og allt í einu ljómaði hann allur.
„Jæja þá, ljúfan, þetta er allt í
framför. Þú ætlar að vera vin-
samleg, ha? Ég býst við að ég
hafi tíma til þess.“
Mona fór fram í eldhúsið. Hann
elti hana. Hún var hrædd, en
þarfnaðist tíma til umhugsunar.
Hún varð að hrinda frá sér þess-
um háska. Hún tók fram flösk-
una með búrbónanum. Hann fór
hrósyrðum um drykkinn. Mona
tók einnig fram tvö glös og opn-
aði íshólfið í ísskápnum. ísbakk-
inn var fastur. Hún barðist við
að ná honum út, en þá var Fred
Taylor kominn fast að henni og
hana langaði til að veina er hann
snerti hana. Hann sagði: „Lofaðu
mér að ná bakkanum út, ljúfan.
Hæ, þvílíkar línur sem þú hef-
ur!“
Hún reyndi að smjúga frá hon-
um, en hann greip um axlir
hennar og beygði sig til að kyssa
hana. Hún sveigði höfuðið und-
an. Munnur hans þrýstist að hálsi
hennar og hann lyktaði illa. Ó-
sjálfrátt setti hún lófana fyrir
brjóst honum og reyndi að hrinda
honum frá sér. Hann rumdi ó-
ánægjulega, en sleppti henni
samt sem áður. Hann var rauður
í framan og andaði þungt.
„Allt í lagi ljúfan, þá get ég
verið án þessarar vinsemdar
þinnar. En aurinn vil ég fá! Náðu
í hann!“
Hún stóð dolfallin og hallaði
höfðinu sitt á hvað.
Hann þreif um axlir hennar og
skók hana illskulega. „Þú ert
með það, krúttið! Þú hefur það
einhversstaðar hérna í villunni!“
„í... í bí-bílnum,“ hvíslaði
hún.
Hún vissi ekki hvaða er-
indi hún átti út í bílskúr nema
þá í örvæntingarfullri leit að
vopni. Hún þarfnaðist einhvers
sem hún gæti varizt manninum
með, losað sig við hann. Var
nokkurt slíkt vopn í skúrnum?
Augu hennar könnuðu skúrinn
en fundu ekkert, og jafnskjótt
var hann við hlið hennar. Hann
hreytti út úr sér: „Bíllinn já.
Jæja. Og hvar þá?“
„í .... í farangurshólfinu ....“
Hún fann lyklana í vasanum og
lauk upp hólfinu. Það gapti við
henni, og tjakkurinn og felgu-
járnið á gólfi þess.
„Krúttið ....“
Hann þagnaði er hún skreið
inn í farangurshólfið og reif í
klæðninguna á bakvið aftursæt-
in. Hún togaði í klæðninguna,
argus auglýsingastofa
M
\y
B Pn
n d u
Til London
fyrir kr. 3.455,-
í sambandi við áætlunarferÖir m/s Gullfoss til útlanda veitir Eimskip
hvers konar fyrirgreiöslu um feröir til allra borga í Evrópu.
2. FARRÝMI 1. FARRYMI
Rvk./ Leith.frá kr. 4.390,oo | Rvk./ Leith ..... frá kr. 6.298,oo
HOPFERÐAFARRYMI
Rvk./Leith..frá kr. 2.863,oo
— /London ... —
— /Kaupmannah. —
— / Hamborg . . —
— 7 Osló....... —
— / Stokkhólmur —
— / Helsinki ... ~
3.455,oo
4.199,oo
5.220,oo
5.280,00
5.975,00
6.790,oo
— /London . . .
— /Kaupmannah.
— /Hamborg . .
— /Osló.......
— /Stokkhólmur.
— /Helsinki . . .
4.S85,oo
5.727,oo
6.748,00
6.808,oo
7.503,00
8.318,00
— /London ... —
— / Kaupmannah. —
— /Hamborg . . —
— /Osló....... —
— /Stokkhólmur. —
— /Helsinki ... —
6.890,oo
8.208,oo
9.229,00
9.289,oo
9.984,00
10.789,00
Njótið þess að ferðast
FerÖizt ódýrt - FerÖizt meÖ Gullfossi
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
FERÐASKRIFSTOFA EIMSKIPS, SÍMI 21460
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
27. tbi. viKAN 45