Vikan


Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 47

Vikan - 03.07.1969, Blaðsíða 47
„Hann hlýtur að vera hér í ná- grenninu ennþá,“ sagði lögreglu- maðurinn. „Það er einkennilegt að hann skyldi leggja bílnum hér. Hann virðist leyfa sér sitt af hverju. Hann hefði átt að leggja bílnum úti á götunni.“ „Sjálfsagt fer hann héðan bráðum,“ sagði Mona. „Var það .... er það eitthvað sérstakt?" „Gæti ég kannski fengið vatns- sopa, frú Rope?“ „Hva.... ha, jú auðvitað.“ Hún fór með hann inn í eldhús, hissa á þessari bón, og lét renna í glas handa honum. Hann drakk, þakkaði henni fyrir og gekk svo út um aðaldyrnar. Hann leit enn einu sinni á bílinn á afleggjar- anum. „Viljið þér kannski að ég hafi upp á þessum sölumanni og láti hann færa bílinn?“ „Nei,“ sagði Mona, og henni leið eins og hún væri að springa. „Nei .... það er .... allt í lagi þótt hann sé þarna.“ „Jæja þá. Góða nótt, Frú Rope. Við sjáumst fljótt aftur.“ „Góða nótt, liðþjálfi." Hún sá hann ganga að bílnum á afleggjaranum. Hann lauk upp dyrunum, leit á skrásetningar- skírteini bílsins, fór síðan út á götuna og horfði til beggja handa. Loks steig hann inn í svartan fólksbíl og ók á brott. Hún átti aðeins um eitt að velja. Hún varð að aka á brott frá húsinu. Ef liðþjálfinn væri einhversstaðar á höttunum eftir manninum, myndi hann ekki veita henni eftirför. Hann yrði kyrr og hefði auga með bílnum á afleggjaranum. Jæja, hennar vegna mátti hann bíða alla nótt- ina. Bíllinn frá leigunni yrði auð- vitað ekki færður, og á morgun myndi hún halda fast við fram- burð sinn. Sölumaður hafði lagt á afleggjaranum hjá henni, sölu- maður hafði kvatt dyra hjá henni hún hafði vísað sölumanninum á bug; hún hafði gert ráð fyrir að hann hefði ætlað að kveðja dyra hjá nábúunum, en hversvegna hann hafði ekki náð í bílinn vissi hún ekki. Mona bakkaði blæjubílnum út úr skúrnum, komst framhjá bíln- um á afleggjaranum með því að bakka yfir garðinn og var komin götuna á enda þegar svartur fólksbíll mjakaði sér í veg fyrir hana og neyddi hana til að hemla. Banks lögregluliðþjálfi kom til hennar að opnum glugganum. „Hvar er vinur yðar, frú Rope?“ spurði hann, andlit hans hart sem steinn. Hún hélt sér af alefli í stýris- hjólið. „Liðþjálfi.... þér .... ég veit ekki við hvað þér eigið.“ „Það er sölumannslaust með öllu hér í nágrenninu, frú Rope. Og bíllinn á afleggjaranum hjá yður er frá bílaleigu. Ég hygg að maður hafi verið falinn í húsinu hjá yður. Framhjáhald er ekki stundað af karlmönnum ein- göngu, eins og þér kannski vit- ið. Er það hugsanlegt að þér hafið haft elskhuga um langt skeið? Er ef til vill einnig hugs- anlegt, að þér og elskhugi yðar hafið bruggað eiginmanni yðar banaráð? Er hugsanlegt að elsk- hugi yðar hafi komið þeirri fyrir- ætlun í framkvæmd? Þessar spurningar liggja mér mjög á hjarta, frú Rope.“ „Liðþjálfi," sagði hún með andköfum, „þér ofbjóðið mér al- veg! Ég get hringt í yfirmann yð- ar! Ég get......“ „Já, frú Rope,“ tók hann fram í, „það getið þér gert. Þér skuluð hringja í Poling lautinant og segja honum ....“ „Ó, liðþjálfi, þetta er hrein fjarstæða!" Hún kom út úr bíln- um. „Verið svo góðar að lána mér bíllyklana yðar.“ „Hvað þá?“ hrein Mona tryll- ingslega uppyfir sig. Banks liðþjálfi virti blæjubíl- inn fyrir sér sem vandlegast, og hjarta Monu barðist ákaft. Skyldi leka blóð úr farangurshólfinu? Hún mundi ekki til þess að Fred Taylor hefði blætt.... „Lyklana, frú Rope.“ Banks liðþjálfi rétti út hönd með opn- um lófa og beið. Mona vissi ekki hvað til bragðs skyldi taka. Hún hristi höfuðið. „É'g .... ég skil ekki ....“ „Það er hugsanlegt að þér sé- uð að lauma vini yðar frá hús- inu,“ sagði hann. „Hann gæti verið í felum í hólfinu. Síðar gæti hann komið eftir bílnum.“ Mona veinaði og tók á sprett, en Banks var snar í snúningum. Hann náði taki á úlnlið hennar, skellti henni upp að bílnum og hélt henni þar með þunga sínum. Síðan rétti hann lausu höndina inn um opinn gluggann, rykkti lyklinum út úr kveikilásnum og dró Monu með sér aftur fyrir bílinn. Hann fann lykilinn að hólfinu og stakk honum í skrána. Hann bölvaði þegar lokið hrökk upp, en Mona féll saman á götuna. ☆ Orion og Sigrún Framhald af bls. 12 ney) við texta Eysteins Jónasson- ar, bassaleikara hljómsveitarinn- ar, og „Litla lagið“ (La-la song, upphaflega flutt af Cliff Rich- ard). Ómar Ragnarsson hefur gert ágætan texta við „Litla lag- ig“, texta sem er um nákvæm- lega ekki neitt eða eins og segir á einum stað: er „ekki baun í bala“. Frumtextinn er í sama andanum, og því skal Ómari ekki legið á hálsi fyrir andleysi! f þessu lagi tekur barnakór mjög hressilega undir með Sigrúnu í viðlaginu. Auk ofangreindra laga eru tvö til viðbótar flutt af hljómsveit- inni að viðbættu aðstoðarliði með diverse hljóðfæri: Stef úr kvik- myndinni „The Family Way“ eft- ir Paul McCarteny og „Þriðji maðurinn" (Harry Lime Þemaið). Lögin eru vel útfærð og flutt en tæpast líkleg til vinsælda. Hljóðritun annaðist Pétur Steingrímsson og hefur honum oft tekizt betur upp. * 27. tbi. VIKAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.