Vikan - 25.09.1969, Side 9
RÓSU INGÓLFSDÓTTUR má skrifa ábyrga
fyrir klukkurammanum fræga, fyrir „afsak-
ið hlé“ og fleiri skilti sem birtist á skermin-
um. Rósa er nefnilega teiknari sjónvarpsins
og þarf ekki að skammast sín fyrir það. |
TEXTI:
ÓMAR VALDIMARSSON
MYNDIR:
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
SJÓNVARPSSTÚLKUR
A BAK VIÐ SKERMINN
Fæstir gera sér sennilega grein fyrir því hversu mikil vinna liggur á bak við
hverja og eina útsendingu íslenzka sjónvarpsins, og eflaust eru margir þeirra skoð-
unar að eina fólkið sem eitthvað kveður að við stofnunina séu þulirnir. Það er auð-
vitað hin mesta fjarstæða, því starfsJið sjónvarps er nú farið að nálgast eitt hundr-
að manns, bæði karlar og konur.
VIKAN hefur áður gert sjónvarpsþulunum ýtarleg skil, en við sjónvarpið
vinnur auk þeirra, myndarlegur hópur kvenna, sem margar gegna mikilvægum
störfum.
Á þessunr síðum
ætlum við að leitast við
að kynna þær.
4 Það er AUÐBJÖRGU
ÖGMUNDSDÓTTUR að
þakka að þeir sem koma
fram í sjónvarpi eru ekki
eins og hvitar skellur á
skerminum. Auðbjörg er
sem sé snyrtidama
(sminkari) í stóra húsinu
við Laugaveginn, og það
er liún sem smyr alla þá
sem koma fram — svo
framarlega sem það er
tekið í upptökusal sjón-
varpsins.
AUÐUR ÓSKARSDÓTTIR er aug-
lýsingastjóri sjónvarpsins. Starf hennar
er að safna auglýsingum í sjónvarpið,
koma þeim á framfæri og raða þeim nið-
ur í auglýsingatímana. Hún bendir við-
skiptavinum á aðila sem gera sjónvarps-
auglýsingar og gefur góð ráð í því sam-
bandi.