Vikan - 25.09.1969, Qupperneq 36
Hún er níu ára
lifandi gyðja
Framhald af bls. 19.
Auga Búdda á enninu
Leiðsögumaður okkar var mjög
taugaóstyrkur: — Ef þið brjótið
þessi óskrifuðu lög, eigið þið á
hættu að lenda í fangelsi. Eða þá
að myndavélin verður eyðilögð og
þið kaghýdd af trúarofstækismönn-
um. . . .
Ég bað um leyfi til að hitta Ku-
mari í helgidómnum, en fékk nei-
kvætt svar:
— Kumari er gyðja, — þér eruð
ekkert. Kumari getur ekki yfirgefið
helgidóminn, og þér getið ekki
fengið leyfi til að fara þangað.
Við gáfum prestinum tíu rúpíur,
(tæpar 100 krónur) og andartaki
síðar kom Kumari fram í glugga á
annarri hæð, í fylgd með systrum
sínum. Konan mín faldi sig bak við
súlu, og tók þaðan myndir. Hún
kom ekki til mín fyrr en hún hafði
falið myndavélina.
Kumari var að venju klædd purp-
urarauðum fatnaði, mjög mikið
máluð í andliti, svört augnastrik
náðu alveg út að gagnaugum. Enn-
ið var rauðmálað, með gulbláu
auga upp af nefinu. Það var hið
alsjáandi auga Búdda. Hún leit á
okkur, eins og af skyldurækni, en
var sýnilega viðutan; brosti angur-
blitt og veifaði hendinni í kveðju-
skyni.
— En hve hún er dásamlega fög-
ur, sagði konan mín. Og það var
sannarlega rétt. Kumari var undur-
samlega fögur. En þetta var ekki
barnsandlit, hún leit út fyrir að
vera 13 til 14 ára.
Ég rétti poka með japönskum
karamellum að bróður hennar, og
sagði honum að færa hann systur
sinni. Mig langaði mest til að kasta
pokanum upp til hennar, en ég
þorði ekki að gera það. Að öllum
líkindum fengi hún ekki karamell-
urnar. Gyðja borðar ekki sælgæti,
og prestarnir hafa gát á því að hún
verði ekki fyrir freistingum.
Ef allt gengur vel fyrir Kumari
sem nú er, þá á hún eftir þrjú eða
fjögur ár sem gyðja. Þegar hún fær
sínar fyrstu blæðingar, er heilag-
leikinn úr sögunni. Hinn guðdóm-
legi kraftur yfirgefur hana, þegar
hún missir blóð. Þá er hún og fjöl-
skylda hennar burtræk úr muster-
inu, og ný Kumari verður valin.
Það hefur komið fyrir að Ku-
mari hefur þurft að yfirgefa must-
erið fyrir venjulegan tíma. Það get-
ur komið fyrir að hún meiði sig, —
detti og rispi sig, þótt hennar um-
hverfi sé vel bólstrað.
Fólk forSast þær eins
og drepsótt
Þegar Kumari yfirgefur musterið
fær hún 500 rúpíur (tæplega 5000
krónur). Það er töluverður pening-
ur í Nepal, en ekki nægilega til að
tryggja framtíðina. Sú stúlka sem
hefur verið Kumari á mjög erfitt
uppdráttar. Menn forðast hana,
eins og hún sé haldin drepsótt.
Hvaða maður vill kvænast gyðju,
jafnvel þótt langt sé um liðið?
Fjölskyldan snýr baki við henni,
hún hefur enga menntun, það er
gott ef hún kann að lesa, og þess
vegna leiðast þessar stúlkur oft út
í vændi.
Aðeins ein þeirra stúlkna, sem
einu sinni var Kumari, hefur gift
sig. Við fundum hana í kofaræfli (
fátækrahverfi Katmandu, og báðum
hana að segja okkur frá árunum í
musterinu.
Hún var eins og hræddur fugl,
faldi sig bak við eiginmanninn og
börnin tvö. Hann sagði: — Þið meg-
ið ekki minna hana á fortíðina. Það
getur engin Kumari gleymt því að
hún var einu sinni gyðja. Þær ótt-
ast allar hefnd guðanna.
Singer verksmiSjurnar leitasf stöSugt viS
aS bjóSa betri kjör og nýjungar. Einu
sinni enn bjóSum viS vélar undir kjör-
orSinu „Singer er spori framar". MeS
Singer Golden Panoramic fylgir nú
saumastóll og meS Singer 677 getiS þér
saumdS sjólfkrafa 8 gerSir hnappagata.
Singer Golden Panoramic gefur gullna möguleika, meSal
annarra kosta: hallandi nól, frjóls armur, lórétt spóla
fyrir framan nólina, sjólfvirkur nólarÞræðari, ósýni-
legur faldsaumur, teygjanlegur faldsaumur, keðjuspor,
„overlokspor", tveir ganghraSar, 5 ára ábyrgð, 6 tíma
kennsla innifalin, auk Þess sem hún vinnur sjálfkrafa,
allt frá Þræðingu upp í 8 gerðir hnappagata. Með
Singer Golden Panoramic fylgir sem nýjung, saumastóll.
Singer 237 er ódýrasta
Singer vélin. Zig Zag vél
í fösku, saumar beinan
saum aftur á bak og
áfram. Saumar rennilás,
festir tölur, faldar, rykkir,
fellir og gerir hnappagöt.
Verð kr. 11.275,—
Singer 670, Zig Zag vél saumar nú sjálfkrafa allt
frá Þræðingu upp í 8 gerðir hnappagata.
Allir, sem eiga gamla saumavél,tegund skiptir ekki móli,geta nú látið hana sem
•greiðslu við kaup á nýrri Singer.Kaupum gömlu vélina á allt að 7.000.—kr.
Singer sölu- og sýningarstaðir:
Liverpool Laugavegi, Gefjun Iðunn Austurstræti, Rafbúð S(S Ármúla 3, Kaupfélag Borgfirðinga, Kaupfélag
(sfirðinga, Kaupfélag Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga.Kaupfélag Eyfirðinga, Kaupfélag Þingeyinga, Kaup-
félag Héraðsbúa, Kaupfélag Skaftfellinga,Kaupfélag Rangæinga, Kaupfélag Árnesinga, Kaupfélag Suðurnesja,
Kaupfélag Hafnfirðinga.
36 VIKAN 39- tbl-