Vikan - 25.09.1969, Page 41
ir þú að fara að koma þér í rúm-
ið. Vertu nú skynsöm, svo þú
verðir ekki grútsyfjuð á morgun.
— Jæja þá, sagði Vibeke fýlu-
lega. — En ég er að skrifa í dag-
bókina mína. Ég er átta dögum
eftir tímanum.
— Átta dögum! Þú verður að
bíða með það til morguns.
— Ó, mamma, þetta tekur að-
eins nokkur augnablik. Ég hefi
ekkert sérstakt að skrifa. Þetta
hefir verið svo venjuleg vika.
— Venjuleg vika! Aðeins
venjuleg vika! hugsaði frú Hjort.
— Lítur hún þannig á þetta? Jú,
auðvitað, í hennar augum ....
Og allt í einu fannst henni að
vikan, sem var nýliðin, svo örlítið
brot af lífi þeirra beggja, hefði
slitnað úr samhengi, eins og á-
þreyfanlegur hlutur, svifi nú í
loftinu, og að þær skoðuðu hann,
hvor frá sinni hlið....
Það er þetta sem gerir allt svo
erfitt, í þessu lá hættan, hugs-
aði hún. Ef ég gæti þess nú, að
við fjarlægjumst ekki hvor aðra,
hefi gát á því sem sameinar okk-
ur, og því sem aðskilur okkur,
munum við eflaust vera færar
um að víkka sjónmálið, líta á
hlutina frá báðum hliðum.
Hún brosti til dóttur sinnar og
sagði:
— Já, það er rétt hjá þér, vina
mín. Þetta hefir vejrið ósköp
venjuleg vika....
☆
Kvöldið fyrir
brúðkaupið
Framhald af bls. 21
Klukkan var sex að kvöldi.
Birtu var tekið að bregða og úti
á götunum kviknaði á ljósastaur-
um og auglýsingaskiltum.
— Það þýðir þó ekki, að þeir
liggi ekki undir grun, hélt hann
áfram. — Hver þeirra getur haft
einhvern í vitorði með sér, sem
sér um viðskiptin við ungfrú
Rogers.
Hann gekk að gríðarlega
stækkaðri loftmynd af gatnamót-
um Fimmta strætis og Cranston.
— Ungfrú Rogers leggur biln-
um hér og bíður eftir fyrirmæl-
um. Við verðum með fimm
hreyfanlegar einingar á þessum
stöðum.
Hann benti með priki á stað-
ina, og stöðvaði það síðan á
ákveðnum bletti:
— Og hér verður ein eining
enn, sem á að reyna að finna á
hvaða rás maðurinn sendir, og
síðan hvort mögulegt er að miða
hann út. Sé hann á fæti, er það
vitaskuld mjög illgerlegt. Þar að
auki ber að skýra frá því, að
okkur hefur ekki lukkazt að fá
unnusta ungfrú Rogers, Frank
Mitchell, til að halda sig fjarri
staðnum. Við höfum myndir af
honum.
Hann rétti Barney bunka af
myndum til að dreifa um salinn.
— Skjöti hann upp kollinum,
hafið þá hendur í hári hans og
sjáið til þess, að hann verði ekki
fyrir þar til þessu líkur.
Hann reyndi að núa þreytuna
úr augunum. Vinnudagurinn
hafði verið langur. Hann fann, að
hann átti ekki að leggja í fyrir-
tæki sem þetta, eins og komið
var fyrir honum. Lúinn gat haft
sljóvgandi áhrif á dómgreind
hans.
Hann hélt áfram: — Helzta
markmið okkar, og það mikil-
vægasta, er að vernda líf ung-
frú Rogers. Við ættum að geta
myndað um hana öryggishring
"\
NÝTT! HRÍFANDI * NÝTT!
Jane H
ELIEN'S
„NYSILVER“ varalitir:
101
Ettan
102
Tvaan
103
Trean
104
Fyran
Einhver þessara giæsilegu varalita mun
hæfa ySur:
59 CARNABY
60 WHITE PEARL
61 COME ON BOYS
62 SUNNY & SHEER
63 FIFTY-FIFTY
64 CHELSEA ROSE
65 TWIGGY BROWN
66 GO-ON HONEY
67 TOP ZOOM
68 LAST CHANGE
69 KISS ME CLYDE
70 TENDER TRAP
71 HYPNOTIC PINK
72 GIPSY GOLD
73 BIBA GOLD
* AÐEINS RR.: 92.-
Einnig fyrirliggjandi:
NýrJane Hellen „Eye Shadow“
5 BLUE
7 TURKOS
18 WHITE
19 GOLDBEIGE
20 OLIVE
JANE’S EYE SHADOW STICKS:
Blue, Turkos, Guld, Argent Blue, Argent Green.
JANE’S Cake Eve Liner: Black, Blk-brown, Grey.
JANE’S Make up í túbu: Attitude, Fashion, Success.
Cace Mascara.
HIÐ BEZTA FYRIR HÁR YÐAR ....
Jane’s Shampoo Blondering
Jane’s Blonde Tone
Jane’s London Set
Jane’s London Gel
Jane’s Hair Balsam.
„JANE HELLEN“ er systurfyrirtæki „PIERRE ROBERT"
Það tryggir gæðin.
ISLENZK-
cAm&riókci p
Kirkjuhvoli. Pósthólf 129, Reykjavík. Sími 22080.
V
39. tw. VIKAN 41