Vikan - 25.09.1969, Qupperneq 44
MJÖG GLÆSILEGT SÖFASETT. FRAM-
LEITT ÚR BEZTU FÁANLEGUM EFNUM.
LAUSIR PÚÐAR í SÆTUM, MEÐ
STÁLFJÖÐRUM (SPRINGINNLEGGI).
FÆST EINNIG MEÐ FASTSTOPPUÐU
SÆTI.
Húsoaonaverilun KAJ PIND
Grettisgötu 46 - Sími 22584
V______________________________________)
r
Frank, ekki segja nei. Gerðu það
ekki, elsku, elsku Frank minn!
— Ég get það ekki, Helen.
Biddu mig ekki um það. Ég verð
að vera hjá þér.
— Ég verð að biðja ykkur að
hlusta á mig, sagði presturinn.
Helen leit iðrunarfullu augna-
ráði á hann, og klerkur glotti við.
Aldrei fyrr hafði hann staðið
frammi fyrir kærustupari, sem
reifst, meðan hann skírði fyrir
þeim vígsluathöfnina.
— Við förum ekki í gegnum
allt ritúalið, sagði hann, — en
það eru nokkur atriði.
Helen heyrði hann tala, en
greindi ekki orðin. Þegar hann
leit út fyrir að vera nærri bú-
inn, leit hún á klukkuna. Hún
var tuttugu mínútur yfir níu.
— É-ég verð að f-fara, stam-
aði hún. — Ég er m-mjög tíma-
bundin......Og öllum viðstödd-
um til mikillar undrunar þaut
hún fram eftir kirkjunni. Hún
myndi verða klukkutíma að kom-
ast á stefnumótsstaðinn. Hún
mátti ekki verða of sein. Ef hún
yrði nú fyrir umferðartöf....
Þegar hún kom að mótum
Fimmta strætis og Cranston lagði
hún bílnum á hornið norðvestan
megin, fast við krossgötur. Um
leið og hún nam staðar, var
slökkt ljósið í íbúðinni á neðstu
hæð hægra megin við hana. Eft-
ir stundarkorn leit hún út yfir
dimma götuna milli trjáraðanna.
Beggja vegna stóðu gömul, veð-
urbarin leiguhús. Svo langt sem
augað eygði sást hvergi mann-
vera. Ekki svo mikið sem hund-
ur. Hún kveikti sér í sígarettu.
— Fáið mér peningaveskið,
annars sprauta ég ilmvatni á
yður!
— Heldurðu að það sé ekki
kominn tími til að þú komir
heim af fæðingadeildinni?
Wiother bríhiól
fást í þrem stærðum.
Einnig reiðhjól í
öllum stærðum.
Öniifli
Spítalastíg 8. - Sími 14661. - Pósthólf 671.
J
Hún heyrði til hans áður en
hún sá hann, og slökkti óstyrk-
um höndum í sígarettunni í ösku-
bakkanum. Fótatakið var þungt
og hægt. Svo kom hann í ljós,
aðeins fáeina metra frá henni,
miðaldra, þrekvaxinn maður.
Hann kom einnig auga á hana,
hægði á sér og stanzaði svo.
Um leið laut hann ögn fram á
við, til að sjá hana betur, og
augu þeirra mættust.
í myrkrinu í neðstu íbúðinni
hægra megin við hana talaði
Hawk lágum rómi í hljóðnema:
— Maður nálgast á gangstéttinni
.... gengur hægt.... stanzar ....
kveikir í vindli.... lítur inn í
bílinn til hennar .... skuggaleg-
ur, miðaldra, feitlaginn, í dökk-
um sportfötum .... tottar vindil-
inn.... allar einingar tilbúnar
að gera sitt. . . ekkert samband
við ungfrú Rogers .... deild sex:
Fylgizt með honum og athugið
hann.... klárt, búið.
Hann leit á úrið.
— Hálf ellefu, hvíslaði hann
að Barney. — Þeir láta þá alltaf
bíða nokkuð. Ekkert er eins
taugaslítandi og að bíða.
Það brakaði í móttökutækinu
fyrir framan hann.
— Við misstum af Frank á
d'mmri götu. Hann sá við okkur
— Þetta er misskilningur hjá
þér! Þeir sem hentu í okkur
hnetum úr trjánum voru
stærri og höfðu rófu!
V
44 VIKAN 39- tbl-