Vikan


Vikan - 11.12.1969, Page 6

Vikan - 11.12.1969, Page 6
MARY QUANT SNYRTI- VÖRUR Eru heimsþekkt gæðavara framleidd AÐ- EINS úr beztu hugsanlegum efnum, óskað- legum húð yðar. Spyrjið þann sem reynt hefur til dæmis ... NATURETINT MAKE UP TITCH NAIL POLISH PERFUME MILK Jólagjöfin „FYRIR HANA” er snyrtivörur frá MARY QIJAMT ★ EYE GLOSS ★ ★ TEAR PROOF MASCARA ★ ★ LIPSTICK ★ Fást hjá: © KARNABÆR KLAPPARSTIG 37, REYKJAVIK SÍMI 12937. ★ APÓTEK VESTURBÆJAR ★ KF. ÞING. HÚSAVÍK ★ LAUGARNESAPÓTEK ★ FÖNN, NESKAUPSSTAÐ ★ BORGARAPÓTEK ★ KF. A-SKAFTFELLINGA ★ KYNDIL, KEFLAVÍK HÖFN, HORNAFIRÐI ★ DRANGEY, AKRANESI ★ PARÍSARBÚÐIN, ★ SUNNU, ÓLAFSVÍK VESTMANNAEYJUM ★ SNYRTIVÖRUV. ÍSAFJ ★ VERZL. KAROLÍNU ÞORST. ★ TÚNGÖTU 1, SIGLUFIRÐI SEYÐISFIRÐI ★ VÖRUSALAN, AKUREYRI ★ HAFNARBÚÐIN, ★ APÓTEK SAUÐÁRKRÓKS HAFNARFIRÐI ★ KF. HÚNV. BLÖNDUÓSI HEILDSÖLUBIRGÐIR: BJÖRN PÉTURSSON & CO. H.F. LAUFÁSVEG 16 - SÍMI 19847. Góðar kökuuppskriftir Kæri Póstur! Ég hef verið tryggur lesandi Vikunnar um margra ára skeið, og hún er orðirm ómissandi þátt- ur í lífi mínu, rétt eins og út- varp og sjónvarp. Ég hef stund- um skrifað þér áður og gjarn- an sent þér tóninn hressilega, ef mér hefur mislíkað eitthvað. En það er ekki réttlátt að láta ein- göngu heyra í sér, ef maður er óánægður, en þegja þunnuhljóði, þegar manni líkar. Þess vegna sezt ég niður og sendi þér kveðju mína. Og erindi mitt er að þessu sinni að hæla Vikunni svolítið, og þá fyrst og fremst fyrir jóla- baksturinn í ár. VIKAN hefur reyndar alltaf gert honum nokk- ur skil, en að mínum dómi aldrei betur en nú. Það var vel til fund- ið að leita til ungra húsmæðra og láta þær koma með uppá- halds uppskriftirnar sínar. Með þessu móti er tryggt að um er að ræða góðar uppskriftir, sem hafa oft verið bakaðar og gefizt vel. Það hefur margt fleira gott efni verið í Vikunni að undan- förnu svo sem framhaldssagan „Fjarri heimsins glaumi“, fram- haldsgreinarnar um Ibsen gamla og sitthvað fleira. Mér þótti reyndar popstjarnan svona og svona, en dóttir mín var stór- hrifin. Með beztu kveðjum. Heimafrú. Guðlast eða spaug? Kæri Póstur! Mig langar til að koma svolít- illi aðfinnslu á framfæri við þig. Sumum kann að finnast hún lít- ilvæg, en mér finnst hún skipta miklu máli. Á forsíðu í síðustu Viku stóð með stórum, hvítum stöfum: „Nýi guðinn: Björgvin“. Nú fer að sjálfsögðu ekki milli mála við hvern er áttt, því að öll þjóðin þekkir hinn unga dæg- urlagasöngvara, Björgvin Hall- dórsson. Hún hefur ekki komizt hjá því að kynnast honum, sér- staklega eftir að sjónvarpið helg- aði honum næstum allan tán- ingaþáttinn sinn. En hvað um það. Það sem ég kann alls ekki við og margir fleiri, sem ég hef talað við, er það uppátæki Vik- unnar að kalla strákinn guð! — Mér finnst þetta vera argasta guðlast og sízt til fyrirmyndar. Með þökk fyrir birtinguna. Sigríður. Við höfum heyrt það víðar en í þessu bréfi, að ekki hafi ofan- g-reind fyrirsögn vakið hrifningu allra. En flestir vita hversu mik- il aðdáun unga fólksins er á stjörnum sínum. Það er beinlín- is um átrúnað að ræða, þótt hann endist ekki alltaf lengi. Það skal játað, að réttara hefði verið að tala um átrúnaðargoð en ekki guð, þótt hafa beri í huga, að auðvitað var þetta sagt meira í gamni en alvöru. Að minnsta kosti datt okkur ekki í hug, að við yrðum sakaðir um guðlast. Upp með sokkana Kæri Póstur! Ég sezt nú niður og skrifa þér í fyrsta sinn á minni lífsleið. f laginu „Jói útherji", sem Om- ar Ragnarsson syngur, er svo- hljóðandi setning: Ólafur, upp með sokkana! En sumir segja að hún sé svona: Þórólfur, upp méð sokkana! Og nú spyr ég þig, Vika mín, hvort er réttara? Ég vona að þú svarir þessu fljótt því hér er um veðmál að ræða. Og að síðustu hin sígilda spurning: Hvernig er skriftin? Kærar þakkir. Ein 16 ára. Þórólfur Beck er einna frægast- ur knattspyrnumaður hérlendis um þessar mundir eða var það að minnsta kosti til skamms tíma. Það er hví líklegt, að nafn hans sé æpt á plötunni. Annars er erfitt að greina það, enda um hróp að ræða. Póstinum hefur alltaf heyrzt sagt „Þórólfur, nið- ur með sokkana". Ef þið hafið hins veear lagt mikið undir, þá er kannski vissara að hafa sam- band við Ómar Ragnarsson sjálf- an eða útgefanda hans, Svavar Gests. Buxnaklæðnaður fyrir fullorðna Kæra Vika! Beztu þakkir fyrir allt gamalt og gott. Framhaldssagan „Kvöld- ið fyrir brúðkaupið“ var geysi- spennandi og nýja sagan um piltagullið hana Batshebu er skínandi saga. En það sem mér nú liggur á hjarta, er buxna- tízkan. Þú leitaðir nýlega álits nokkurra kvenna á henni og 6 VIKAN 50- tbl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.