Vikan - 22.12.1969, Blaðsíða 32
r
Gjafapakki frá
DOROTHY GRAY
er bezta jólagjöfin
gæði vörunnar
óumdeilanlega FRÁBÆR
E
ij og verðið hagstætt.
HEILDSÖIUBIRGÐIR: G. ÖLAFSSON H F.
Aðalstræti 4 - Símar 15668 og 24418
STJÖRNUSPÁ vfc tjc Tpr »*•
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Eitthvað, sem þú hefur kviðið fyrir alilengi dynur nú yfir þig. Eigi að síður þarftu ekki að kvarta, því þú hafðir möguleika til að afstýra þessu. Þú færð afar erfitt verkefni til úrlausnar og tekst það vel. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú verður mjög bjartsýnn og iifsglaður þessa viku, enda munu vonir þínar í sambandi við atvinnu þína rætast. Ástvinur þinn virðist vera nokkuð erfiður i skapinu og verðurðu að vera svolítið tillitssamari.
m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): íní hefur samvizkubit vegna einhverrar ógoldinnar skuldar. Þú ættir að keppa að því að losa þig við hana. Þér hefur borizt bréf eða smágjöf, sem hefur komið þér í nokkurn vanda. Heillatala er þrír. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þér hættir til að beita sjálfan þig of harðri gagn- rýni, þannig að þú verður kjaiklaus og hlédrægur. Þú færð óvænta og gleðilega heimsókn gamals fé- laga. Þér berst tilboð, sem þú ættir að íhuga vel.
Tvlburomerkið (22. maf — 21. júní): Það steðja að þér allskyns freistingar en yfirleitt muntu maður til að standast þær nema eina.... Það ber dálítið á tortryggni hjá þér í garð félaga þinna.. en slíkt hugarfar bætir hag þinn sízt af öllu Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú átt talsverða velgengni komna undir manni sem viðriðinn er stjórnmál eða mikinn lærdóm. Gættu þess að spilla ekki sambandi þínu við þennan mann með of mikilli tilætlunarsemi.
Krabbamerkið (22. júnl — 23. júlí): Þú verður gagnrýndur að ósekju fyrir eitthvað, sem þú hefur framkvæmt í algjöru grandaleysi. Til allr- ar hamingju verða endalokin þér í hag. Síðari part vikunnar færðu gest, sem þér er fremur hvimleiður. £ Stelngeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú munt eiga margar ánægjustundir viö nýtt áhuga- mál. Náinn ættingi þinn kemur þér á óvart með framkomu sinni og geröum. Þú ættir ekki að leggja í neitt, ^em hefur í för með sér fjárútlát í vikunni.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Margir meðlimir þessa merkis munu verða einstak- lega næmir fyrir umferðapestum og liggja af þeim sökum ef tíl vill nokkra daga rúmfastir. Fyrir þá, sem verða heilsuhraustir er laugardagur varasamur. AM Vatnsberamerkið Í21. janúar — 19. febrúar): Þessi vika verður nokkuð með öðrum hætti en þú hafðir gert ráð fyrir, en sízt óskemmtilegri. Þú hef- ur verið í mikilli óvissu um nokkurn tíma, en nú, mjög bráðlega, finnurðu lausnina á þessu máli.
Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Það hefur borið alltof mikið á eigingirni í fari þínu undanfarið, en vegna utanaðkomandi áhrifa breytist hugarfar þitt og framkoma til batnaðar. Vinur þinn, eldri maður, efnir heit sitt, sem betur fer fyrir þig. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Gleymska þín á eftir að koma sér nokkuð illa fyrir þig, en þú veizt að þú getur gert betur. Varastu dökkhærðan mann, sem talar um viðskipti. Dveldu sem mest með fjölskyldunni og sinntu áhugamálum.
32 vikan 52-tM-