Vikan


Vikan - 22.12.1969, Blaðsíða 39

Vikan - 22.12.1969, Blaðsíða 39
vildu ekki framfylgja viðskipta- banninu, og tók af þeim Finn- land. En þegar frá leið, vann tíminn fyrir Breta. Eftir Trafalg- arbardaga var Napóleon svo til flotalaus og innrás í England kom ekki framar til greina. Honum þótti Spánverjcir framfylgja hafnbanninu linlega og tók því til ráða, sem voru dæmigerð fyr- ir hann: steypti af stóli konungs- ætt þeirra, sem var grein af hin- um fyrirlitnu Búrbónum, og hóf Jósef bróður sinn í hásætið í staðinn. Galanthomminn Murat var í stað hans settur yfir Na- pólí. Þarna sýndi Napóleon ótrú- lega glópsku; kastilíönsk skap- gerð er næsta lík þeirri korsí- könsku og keisarinn hefði átt að þekkja sitt fólk betur. Spánverj- ar töldu sér grófa svívirðu gerða með þessari afskiptasemi og gerðu uppreisn, sem naut stuðn- ings flestra stétta þjóðfélagsins. Hin afturhaldssama klerkastétt, sem hataðist við Napóleon sem afsprengi bvltingarinnar, blés að kolunum af öllum mætti og þjóð- ernisstolti almúgans var misboð- ið. Þannig hófst hin fræga spænska guerilla; orðið þýðir eig- inlega „smástríð" á frummálinu og hefur síðan verið alþjóðaorð yfir skæruhernað. Bretar gripu gás meðan gafst og landsettu her undir forustu Wellingtons hertoga á íbera- skaga. Eftir það var ekki um frið að ræða í þeim löndum fyrr en Frakkland Napóleons var fallið. En meðan Frakkar höfðu ekki í önnur horn að líta, stóð þeim enginn meiriháttar voði af Well- ington og Spánverjum. En ófrið- arhornunum fór fjölgandi. Þjóðverjar urðu næstir til að bæra á sér. Til þessa höfðu þeir hlýtt Napóleoni af þeim undir- lægjuhætti, sem oftar hefur ver- ið týpískur fyrir þá, en róman- tíkin hafði gert þá að meira menningarfólki en nokkurntíma fyrr og vakið með þeim sjálfs- traust nokkuð og þjóðerniskennd nýrrar tegundar. Til þessa hafði þjóðerniskennd manna lengstum markast af tryggð við konung og ríki; hjá þýzku rómantistunum varð hún einkum bundin við land og tungumál. Þessi nýja kennd fór eins og logi yfir akur næstu árin. Hún olli miklu um fall Napóleons og hefur haft gíf- urleg áhrif á gang mála í heim- inum til þessa dags, yfirleitt mið- ur heillavænleg. Andspyrna Þjóðverja var lengi framan af aðeins biind(in við Prússland, sem Frakkar höfðu líka leikið verst allra sinna óvina. Meðal forustumanna hreyfingar- innar, sem dró auðvitað í sig mikinn kjark af dæmi Spánverja, voru umbótasinnaðir stjórnmála- menn eins og Stein fríherra og von Hardenberg, heimspekingar og sagnfræðingar á borð við Fichte og Arndt og herforingjar eins og Scharnhorst og Gneisen- au. Á vegum samtakanna var stofnuð neðanjarðarhreyfing, svokallað Dyggðarfélag (Tugend- bund), sem olli Napóleoni nokkr- um áhyggjum, þótt það yrði hon- um aldrei til neinna vandræða á borð við Spánverja. Þessi vaxandi óró í leppríkjum Napóleons varð til þess að Aust- urríkismenn, sem voru sárbeiskir eftir síendurteknar hrakfarir fyr- ir Frökkum, mönnuðu sig upp í að troða vígaslóð á ný, árið 1809. Þeir börðust djarflegar en nokkru sinni fyrr og höfðu betur í orrustu við þorpin Aspern og Essling. Sigurinn var lítill og hafði engin úrslitaáhrif hernað- arlega, en hitt skipti mestu máli að Napóleon hafði sjálfur stýrt franska liðinu, er ósigur beið. Þetta var í fyrsta sinn að hann beið sjálfur lægra hlut í bar- daga. Þessi tíðindi spurðust víða og þóttu mikil, því að til þessa hafði Frakkakeisari sjálfur verið haldinn ósigrandi með öllu, þótt vera kynni að marskálkar hans væru nógu mannlegir til að tapa skæru endrum og eins. En hvað sem því leið, þá sigr- aði Napóleon Austurríki í þetta sinn sem önnur. Það gerðist i orrustu mikilli við Wagram í Móravíu, skammt frá gamla víg- vellinum við Austerlitz, og við eftirfarandi friðarsamninga í Schönbrunn-höll neyddi hann Frans keisara til að láta af hendi mikil landflæmi með hálfri fjórðu milljón íbúa. Sama ár slitnaði endanlega upp úr með þeim Napóleoni og Tall- eyrand. Sá síðarnefndi var orð- inn sannfærður um að pólitík keisarans myndi um síðir eyði- leggja Frakkland, ef henni yrði ekki breytt, og var því farinn að plotta gegn honum, þar á meðal með Fouché innanríkisráðherra og Rússakeisara. Um bandalag þeirra Talleyrands og Fouchés var síðar sagt: þar leiðast þeir Löstur og Glæpur. Napóleon fékk veður af þessu, kallaði ráðherr- ann fyrir sig og hellti yfir hann blóðugum skömmum. „Þér eruð þjófur, ragmenni og svikari,“ æpti keisarinn „Þér trúið ekki á Guð og hafið alla yðar hunds- tíð forsómað skyldur yðar. Þér hafið svikið allt og alla. Yður er ekkert heilagt; þér mynduð meira að segja selja föður yðar ef ein- hver byði í hann. Það væri mak- legast að ég mélaði yður eins og glas.“ Þótt allt þetta væri varla nema satt, þá áttu næstu ár eftir að sýna að Talleyrand vissi hvað hann söng um hin pólitísku veð- ur álfunnar. Allt um það svipti HVAR ER UXIN HAHS NÍA? Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð- um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð- launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram- leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói. Síðast er dregið var hlaut verðlaunin: Hrönn Axelsdóttir, Bæjarhvammi 2. Nafn Helmili Örkln er á bls. Vinnínganna má vitja í skrifstofu Vikunnar. 52. V.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.