Vikan - 29.01.1970, Side 7
slíkt fólk, að því er sagt er. En
við ráðleggjum þér að hafa ekki
áhyggjur af svona lögnðu. Stórt
nef þarf alls ekki að vera ljótt.
Þvert á móti getur það farið vel
og verið myndarlegt Fegnrðin er
ekki endilega bundin við það sem
er lítið og- nett, allra sízt á okk-
ar dögum. Smekkur manna hef-
ur einmitt breytzt mikið í seinni
tíð hvað útlit fólks snertir. Það
sem áður þótti fínlegt og fallegt
og lítið og nett þykir nú ekki
eins eftirsóknarvert og áður,
enda verður maður fljótt leiður
á „sætri“ fegurð. Við lesum það
út úr skriftinni, að þú sért hæði
falleg og myndarleg — og nefið
alls ekki til lýta!
Æsingur
Komdu sæll og blessaður Póst-
ur minn'
Eg er ein af mörgum lesend-
um þínum og á við vandamál að
stríða eins og aðrir, sem leita til
þín. Ég er 17 ára og er með svo
voðalega stór brjóst. — Er ekki
hægt að láta minnka þau? Mér
líður svo illa að vera með svona
stór brjóst. Svo glápa allir á
mig. Svo er það annað; ég er
svo kynæst. Ef ég er með strák
eitt kvöld, þá hleypi ég honum
of langt. É'g vill ekki verða neitt
allra manna gagn, en ég get ekk-
ert að þessu gert. Gefðu mér góð
ráð — og enga útúrsnúninga.
P.S. Hvernig er skriftin?
Tobba.
„Þótt náttúran sé lamin með
lurk, þá leitar hún út um síðir“,
segir gamall málsháttur. En
gamanlaust mun vera hægt að
ráða hót á þessu með hormóna-
gjöfum, svo að við ráðleggjum
þér að leita til góðs kvenlæknis.
Hann mun auðveldlega bæta úr
þessu — og þú þarft ekkert að
blygðast þín, því þetta mun síð-
ur en svo einsdæmi.
— Taktu þvf með stillingu, Kristján,
þetta er bara einn af þessum nýju
kvöldbúningum.
Við unga fólkiö
Kæri Póstur!
Nýlega gekkst Æskulýðsráð
Reykjavíkur fyrir myndarlegri
sýningu í Tónabæ, þar sem kynnt
var starfsemi ýmissa æskulýðs-
félaga og klúbba í höfuðborg-
inni. Kenndi þar margra grasa
— og ætti þessi sýning að hafa
afsannað í eitt skipti fyrir öll þá
kenningu, sem að vísu er nokk-
uð fáheyrð orðin, að æska lands-
ins gangi iðjulaus alla daga. Var
þessi sýning öllum sem að henni
stóðu til mikillar fyrirmyndar
og mikil hvatning til frekari
dáða.
Æskulýðsráð Reykjavíkur er
nú hartnær 15 ára gömul stofn-
un og hefur unnið mikilsvert
starf á þessum árum. Samt er það
nú svo að alltaf hefur mér fund-
izt meira af „nei-um“ en „já-um“
í sambandi við starfsemi ráðsins
og því hefur það aldrei virkilega
náð til þeirra sem það á að ná
til. Ástæðan er vafalaust sú að
unga fólkið á svo hverfandi lít-
inn þátt í starfsemi og skipulagn-
ingu ráðsins sjálfs, enda er það
pólitískt skipað sem flest annað
á þessu feðranna Fróni. Enn sem
komið er á æskan sjálf engan
fulltrúa í ráðinu, en komið hef-
ur til tals að fá hlutlausan
áheyrnarfulltrúa til að sitja
fundi ráðsins!
í spjalli við einn af starfs-
mönnum Æskulýðsráðs fyrir
skömmu kom fram sú hugmynd
að stofna hér í Reykjavík „Borg-
arstjóm unga fólksins". Yrði það
að siálfsögðu að vera gert í fullu
samráði og samvinnu við „al-
vöruborgarstjórnina“ um leið og
þess yrði vandlega gætt að eng-
in pólitísk öfl réðu vali þeirra
sem sæti tækju í þessari Borg-
arstjóm unga fólksins.
Vissulega er ekki hugmyndin
að þessi „borgarstjórn" fari með
öll málefni unga fólksins, heldur
gæti sú sem situr sent henni ým-
is æskulýðsmál til umsagnar og
athugunar, og tekið álit unga
fólksins (sem væntanlega væri
laust við allar kreddur og flokka-
drætti) til athugunar.
Það hafa áreiðanlega komið
fram verri hugmyndir í þessu
sífellda þrasi okkar unga fólks-
ins um að fá að taka virkan þátt
í uppbyggingu þjóðfélagsins.
Valdi.
Þetta er ef til vill ekki svo frá-
leit hugmynd. Slík borgarstjórn
unga fólksins yrði að sjálfsögðu
einungis ráðgefandi og setrði
fyrst og fremst álit sitt á þeim
málefnum, sem snerta æskuna.
Að minnsta kosti er hugmyndin
þess virði, að tekið sé undir hana
og vakin á henni athygli.
Strákurinn, sem ég er með,
gaf mér minnsta kveikjara sem
ég hef séð — svo lítinn að ég fæ
varla nógu litla steina í hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti í siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki man ég,
hvorn ég lét róa fyrr,
kveikjarann eða strákinn.
Ég er alltaf að kaupa
eldspýtur, en þær misfarast
með ýmsum hætti.
En eld þarf ég að hafa.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
TILVALINN TIL TÆKIFÆRISGJAFAR
Mig langar svo í einhvern af þessum
'
Milady gas kveikjari
Comet gas kveikjari
;-v
Adonis gas kveikjari
Kmpress gas kveikjari
Til gefenda RONSON kveikjara: Áfyllingin tekur
5 se:kúndur, og endist svo mánuðum skiptir. Og
kveikjarinn — hann getur enzt að eilifu.
RQNSON
Einkaumboð:
I. Gnðmundsson i Co. hf.
5. tbi. vnCAN 7