Vikan - 29.01.1970, Page 16
1
Húsið númer 8 við Aðalstræti, „Breiðfjörðshús“, byggði Valgarð Breiðfjörð
kaupmaður. Það var reist í áföngum á árunum 1876—1893. Þetta er elzta leik-
hús í bænum. Fenginn var danskur sérfræðingur til landsins til að aðstoða við
leikhússmíðina. Húsinu var síðar breytt í kvikmyndasal. Nú hafa Silli og Valdi
l>arna vörugeymslu.
Allir þekkja húsið, sem
stendur við Skálholtsstíg
7, sem Magnús Stephen-
sen, landshöfðingi,
byggði og er síðan kall-
að „Landshöfðingjahús“
eða „Næpan“ eftir hin-
um sérkennilega turni
þess. Ekkert er vitað um
höfund hússins, en við
nýlega rannsókn kom í
ljós, að byggingin var
mjög vel viðuð. Menn-
íngarsjóður á eignina og
hefur á síðastliðnu ári
endurbyggt og lagfært,
svo að til eftirbreytni
er. Þetta er eitt af fáum
húsum, sem ekki hefur
verið klætt með báru-
járni.
„Bærinn er skrítinr
hann er fullur af
i Þingholtsstræti eru mörg merkileg hús, cins og tii dæmis þetta
hér, sem er Þingholtsstræti 12. Helgi Helgason, tónskáld, teikn-
aði það og hjó í því sjálfur.