Vikan - 29.01.1970, Side 18
ANNE BANCROFT
Anne Baneroft var mjög ung þegar
hún ákvað að verða leikkona, og má í
rauninni segja að hún hafi lært það í
stofunni heima hjá sér við lestur sagna
og leikrita. Síðan fór hún að leika í
sjónvarpsþáttum og myndum og þaðan
komst hún inn í kvikmyndimar.
Fyrsta kvikmyndahlutverk hennar var
í myndinni „Helen Kelier", og fyrir
hana hlaut Anne Óskarsverðlaunin.
Síðar fékk hún verðlaun brezku kvik-
myndaakademíunnar, sem bezta út-
lenda leikkonan i myndinni „The
Pumpin Eater".
„The Graduate" er fyrsta mynd
Anne í tvö ár, en með þessari mynd,
hefur hún sýnt að hún er leikkona i
fremstu röð.
Benja:mín Braddock útskrifað-
ist frá litlum háskóla á austur-
ströndinni bjartan og fallegan
júnídag. Svo flaug hann heim.
Kvöldið eftir héldu foreldrar
hans honum samkvæmi. Klukk-
an átta voru flestir gestirnir
komnir, en Benjamín var ennþá
uppi í herberginu sínu. Faðir
hans kallaði upp til hans, en fékk
ekkert svar. Loks hljóp hann upp
og gekk að herbergi sonar síns.
— Ben? sagði hann og opnaði
dyrnar.
— Ég kem niður á eftir, svar-
aði Benjamín.
— Ben, gestirnir eru allir
komnir. Þeir sitja niðri og bíða
eftir þér.
— É'g sagði að ég kæmi seinna.
Hr. Braddock lokaði dyrunum
að baki sér. — Hvað er að? sagði
hann svo.
Benjamín hristi höfuðið og
gekk út að glugganum.
— Hvað er að, Ben?
— Ekkert.
— Nú, af hverju kemur þú þá
ekki niður og heilsar upp á gest-
ina þína?
Benjamín svaraði ekki.
— Ben?
— Pabbi, sagði hann og sneri
sér við, — ég er að hugsa núna.
— Um hvað?
— Bara hitt og þetta.
— Geturðu ekki sagt mér hvað
það er?
— Nei.
Hr. Braddock starði á son sinn
í nokkur augnablik, leit síðan á
úrið og þá aftur á Benjamín. —
Ben, vinir okkar eru þarna
niðri. Vinir mínir og vinir móð-
ur þinnar. Þú verður að vera
kurteis.
— Segðu þeim að ég verði að
fá að vera einn í augnablikinu.
— Hr. Robinson er úti í bíl-
skúr að skoða nýja sportbílinn
þinn. Farðu niður og renndu með
hann einn rúnt eða svo.
Benjamín fór í vasann og dró
upp tvo glansandi lykla. —
Hérna, sagði hann.
— Hvað?
— Láttu hann hafa lyklana.
Hann getur keyrt bílinn sjálfur.
— En hann langar til að hitta
þig.
— Já, en mig langar ekki að
hitta hann alveg strax. Mig lang-
ar hvorki til að sjá hann né
nokkurn ar.nan Robinson. Mig
langar bara ekki til að sjá einn
eða/ neinn á meðan ég er að
hugsa.
— Ben, hr. Robinson og ég
höfum verið með sameiginlega
lögfræðiskrifstofu hér í borginni
DIISIM HOFTMAN
Þaö er ekki hægt að segja annað en
að Dustin Hoffman hafi hafið feril
sinn sem kvikmyndaleikari á toppin-
um. Þessi kvikmynd var fyrsta
mynd hans, og eru menn sammála ura
að það hafi verið mikið tjón að hann
skuli ekki hafa verið uppgötvaður fyrr.
Hann hafði leikið í nokkrum leikrit-
um á sviði þegar Mike Nichols fékk
hann til Hollywood til að reyna við
Benjamín Braddock í myndinni „The
Graduate". Dustin var svo tauga-
óstyrkur að jafnvel Nichols missti
vonina um að hann yrði nothæfur
leikari. En hann var útnefndur sem
mögulegur Óskarsverðlaunahafi fyrir
frammistöðu sína í myndinni.
18 VIKAN 5-tbl-