Vikan


Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 45

Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 45
— Ja, finnst þér það líklegt að ég færi að taka einhverja skít- uga hóru út í móa ef ég væri bláedrú? — Guð minn góður! Frú Braddoek kom inn í stof- una með mjólkurglas og brauð- sneið á diski. Hún setti hvort- tveggja á borðið fyrir framan Benjamín. — Jæja, sagði hún, — segðu mér nú allt um ferðina. Benjamín hristi höfuðið og teygði sig í brauðsneiðina. — Hvað gerðir þú? spurði móðir hans. — Ekkert sérstakt. — Nú, geturðu ekki sagt mér það? — Mamma, ég sá fallegt lands- lag, skemmti rnér og kom heim. — Ertu vis« um að það sé allt í lagi með þig? — Já. — Þú lítur ægilega út. — Farðu að sofa, sagði herra Braddock, — ég vil fá að tala við Ben einan í smástund. Frú Braddock hikaði örstutta stund en fór svo út úr stofunni. — Ben, sagði Braddock, — hvernig lítur þú á málin núna? — Hvaða mál? — Eg meina, ertu . . . finnst þér þú betur undir það búinn núna að slappa af og ákveða þig? Hann kinkaði kolli. — f alvöru’ — Já. — Jæja, hvað ætlarðu þá að gera? Heldurðu að þú farir aft- ur í skóla í haust? — Nei. Herra Braddock gretti sig. — Hvers vegna ekki? — Pabbi, við erum búnir að ræða það. — Þú . . . þú hérna . . . þú ert ennþá sama sinnis um það að fara út í kennslu, ha? -—• Jamm. svaraði Benjamín og teygði sig oftir mjólkinni. — Hefurðu gert einhverjar áætlanir? — Já. - Eins og hverjar? — ííg ætla að slappa af. Hvíla mig og slappa af. — Það var gott, sagði faðir hans. — Mér finnst vænt um að heyra það Slappa af hérna heima og láta fara vel um þig, ha? — Það er hárrétt. — Já, auðvitað er það það skynsamlegasta sem þú getur gert. Þú ættir að hringja í ein- hveria stúlku sem hefði gaman af að sjá þig. — Það er einmitt það sem ég ætla að gera. — Fin, sagði herra Braddock. Hann sat í stólnum á móti Benja- mín á meðan hann lauk við brauðsneiðina og mjólkurglasið. Nokkrum sinnum leit hann upp á Benjamín en svo á gólfið aft- ur. — Ben? sagði hann á endan- um. — Hvað? Framhald á bls. 50. SPYRJIÐ TANNLÆKNI YÐAR . . . Colgate fluor gerir tennurnar sterkari við hverja burstun. Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aðeins Colgate Fluor tannkrem hefur. hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar.- BYRJIÐ í DAG - ÞAÐ ER ALDREI OF SEINT . . . Frá allra fyrstu burstun styrkir- Colgate Fluor tannglerunginn og ver tennurnar skemmdum. Með. því að bursta tennurnar daglega með Col- gate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn gegn sýrum 'þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt tennur barnanna. 7-tbl VIKAN 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.