Vikan


Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 20

Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 20
NANNfTDRN&t Fyrir átta árum hvarf Michael Rockefeller, sonur Nelsons Rockefellers, eins mesta auðmanns í heimi, ríkisstjóra í New York og mikils framámanns í flokki Repúblíkana, við suðurströnd Nýju-Gíneu. Opinberlega var gert ráð fyrir að hann hefði drukknað, en marga grunaði annað. Nú telur bandarískur blaðamaður sig hafa leyst gátuna um örlög billjónaerfingjans. Rockefeller ríkisstjóri, faðir hins Milt Machlin spjallar við innfæddan týnda, með riki sitt. í haksýn. kvenmann. En lausn gátunnar varð hann að sækja til Hollands. Það var einn sólfagran dag í nóvember átrið 1961 að Miehael Rockefeller fór frá Agats, frum- stæðri byggð í þeim hluta Nýju- Gíneu er þá laut Hollandi en heyrir nú til Indónesíu. Ákvörð- unarstaðurinn var þorp að nafni Atsj í fjörutíu kílómetra fjar- lægð. Sér til fylgdar hafði hann fjörutíu og fjögurra ára gamlan hollenskan þjóðfræðing, dr. René Wassing, og tvo innborna burð- armenn. Þessi hluti strandar Nýju-Gíneu er mjög afskekktur og var þá aðeins að nokkru rann- sakaður en hinn ungi erfingi Rockefeller-billjónanna leitaði þar listaverka, gerðra af inn- fæddum snillingum. „Tímarnir eru ekki rómantísk- ir,“ sagði hann, „en ég er hald- inn óviðráðanlegri ævintýra- löngun.“ En þetta ævintýri fékk illan enda. Farkostur Rockefellers var tíu metra langur seglbátur með átján hestafla hjálparmótor, og honum hafði verið margsagt að þessi fleyta stæðist ekki öldurn- ar sem verða í ósum sumra fljót- anna þarna og geta risið í sjö metra hæð. Um miðjan dag var báturinn kominn í ós Eilanden-fljóts. Öld- urnar gengu yfir hann og gerðu hjálparmótorinn ónothæfan. Mennirnir misstu stjórn á bátn- um, og rak hann á sjó út. Þegar hann var kominn fjóra kílómetra frá ströndinni, ákváðu báðir þeir innfæddu að synda í land og sækja hjálp. Tuttugu og fjórar stundir liðu, og enn sáu þeir Rockefeller og dr. Wassing ekki bóla á neinni hjálp. Þá var það að Rockefeller ungi ákvað að synda sjálfur í land og leita hjálpar. Þjóðfræð- ingurinn, sem vel þekkti siði landsmanna, réð eindregið frá því. „En Rockefeller var margt betur gefið en þolinmæðin,“ sagði dr. Wassing síðar. „Hann þoldi ekki þetta ástand, að láta berast um á stjórnlausum bát, en sitja sjálfur aðgerðalaus.“ Rockefeller bjó til flotholt úr tómum dunkum og stökk svo með þetta út í Arafura-hafið. Dr. Wassing starði á eftir hon- um. Hann fjarlægðist óðum, varð loks að litlum dökkum depli á haffletinum og hvarf þvínæst al- veg. Þetta var hið síðasta, sem hinn siðmenntaði heimur sá af einu sínum ríkasta erfðaprinsi. Skömmu síðar kom flugbátur

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.