Vikan


Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 14

Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 14
Shady hættir Þær sögur hafa gengið um í nokkurn tíma, að Shady Owens, söngkona Trúbrots, sé að hætta. Því miður hafa þessar sögur reynzt á rökum reistar, en þeg- ar þessar línur eru ritaðar, hefur ekki verið endanlega ákveðið hvenær það verður sem hún fer. Shady ætlar til Bandaríkjanna og segist hafa hugsað sér að vera þar í ca. eitt og hálft ár, að minnsta kosti. Hún þrætti harð- lega fyrir það að markmiðið væri að syngja þar ytra — „en ef mér lízt vel á einhverja hljómsveit og henni á mig, þá veit ég ekki hvað éa aeri.“ safiði hún. .Æe hef verið að hugsa um þetta síðan um jól, eða svo, og mig bara langar að fara. Ef ég get losnað af þessum samningum sem hljómsveitin hefur gert, bæði hér heima og í Danmörku, þá fer ég mjög fljótlega, annars ekki fyrr en í vor.“ Miklar spekúlasjónir hafa ver- ið um það hver komi í stað Shadyar, og hafa menn helzt hallazt á að það verði Björgvin Halldórsson. Það er ekki rétt, því sjálfur segist Björgvin ekki vilja yfirgefa félaga sína í Ævintýri og hjá meðlimum Trúbrots hef- ur það aldrei komið til umræðna. HEYRA MÁ (þó lægra sé Idtið) ÖMAR VALDIMARSSON Frá og með þessu blaði lætur Andrés Indriðason af skrifum í poppdálk blaðsins, vegna anna, og við tekur Ómar Valdimarsson sem verið hefur fastráðinn blaða- maður hjá VIKUNNI um nokkurt skeið. Ætlunin er að breyta nokkuð til um efni þáttarins; við ætlum að reyna að halda okkur meira við íslenzka poppið og svo verður hljómplötugagnrýnin, scm hér birtist í fyrsta sinn, fastur þáttur. — Og auðvitað þurfum við ekki að taka fram að við gleypum við ölium bréf- um og tillögum frá lesendum um efni þáttarins. íslenzka Plastik-bandið Fimm ungir hljóðfæraleikarar hafa nýverið stofnað nokkuð sem þeir kalla hið íslenzka Plastik- band. Þessir fimm eru allt valin- kunnir menn: Björgvin Halldórs- son, söngvari Ævintýris, Björg- vin Gíslason, gítarleikari Nátt- úru, Ólafur Sigurðsson, trommu- leikari Pops, Haraldur Sigurðs- son, fyrrverandi bassaleikari með Sókratesi og Magnús Kjart- ansson, organisti Júdasar. Ekki mun þessi hljómsveitarstofnun alvarlegs eðlis (þannig að fólk þarf ekki að óttast að þarna sé búið að leggja niður nokkrar okkar beztu hljómsveitir) heldur er þetta meira í gamni gert og hljómsveitinni aðeins ætlað að koma fram við hátíðleg tæki- færi. „Þetta á bara að vera nokkurs konar tómstundaiðja fyrir okk- ur,“ sagði Björgvin Halldórsson er við spurðum hann út í þessa plastik-stofnun. „Og ef við kom- um fram, þá verður það á blues- kvöldum og svoleiðis.“ Allir þvertóku drengirnir fyr- ir það að þetta Plastik-band ætl aði að feta í fótspor þess brezka á nokkurn hátt. "tr 14 VIKAN 7 tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.