Vikan


Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 43

Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 43
FRÁ RAFHA 56 LÍTRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill). Klukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ OÐINSTORG - SlMI 10322 okkur: hinu aukna kynfrelsi verður ekki hrundið. Fólk hefur látið sér skiljast að kynlíf er fyrst og fremst gaman. Sú tíð er næstum liðin er kynlíf hefur það meginhlutverk að tryggja að mannkynið lifi áfram. En hvað þá um manninn, sem verður til í tilraunaglasi? Hann veit ekki hverjir foreldrar hans eru, veit ekki hvort hann á systkin. Hann sleppur því við ábyrgðina gagnvart foreldrunum og hann eignast ekki lífsförunaut, er hann þarf að heita tryggð, heldur hefur frelsi sitt full- komið. Hann hefur ekkert að missa og þvf ekkert að harma. Enginn saknar hans heldur, þó hann hrökkvi upp af standinum. Það verður aldrei neinn vandi að fá annan jafngóðan í staðinn. En nú þarfnast maðurinn þess að hans sé þarfnast. Og hver mun þarfnast hans í þessum nýja heimi? Enginn. Engir foreldrar, engin börn, engin systkin, engin eiginkona, engir vinir. Hinn nýi heimur mun ekki skilja merkingu orðsins ást. Manneskjur hins nýja heims munu þvf finna til afskaplega mikillar ein- semdar í veröld, þar sem þær til- heyra engum og enginn tilheyrir þeim. ☆ Frú Robinson Framhald af bls. 31. ætla ég út til að eyða ævinni með hinu raunverulega fólki í henni veröld. — Erum við ekki raunveru- legt fólk? sagði frú Braddock. — Sama gamla tuggan, sagði Benjamín. — Ég einn veit hvern- ig mér líður. Þau luku við morgunverðinn í þögn. Að því loknu tók herra Braddock upp ávísanahefti og fyllti eitt eyðublaðið. — Pabbi, sjáðu til .. . Taktu þetta, svaraði faðir hans. Eg vil það ekki. Herra Braddock undirritaði ávísunina og reif hana úr heft- inu. — Hérna, sagði hann. — Nei — Taktu tékkinn. — Nei. Herra Braddock teygði sig yfir borðið og tróð ávísuninni í vasa Benjamíns. Hann tók hana upp aftur, las á upphæðina og setti ávísunina aftur í vasann. — Þú leysir hana út ef þú þarft með, sagði faðir hans. — Ég þarf þess ábyggilega ekki. — Allt í lagi. En Ben ... — Já, hvað? — Ég veit ekki hversu lengi þetta stendur yfir. Ég hef það samt á tilfinningunni að þú verð- ir kominn aftur áður en þú held- ur sjálfur. — Nei, það verð ég ekki. — Ef þé»- finnst að þú verðir að fara út og hitta og kynnast þessu raunverulega fólki af eigin raun, þá .. Benjamín stóð upp. — Verið þið sæl, sagði hann og rétti fram hendina. Faðir hans tók á móti. — Ef þú lendir í eitthverjum vandræð- um þá skaltu hringja og við borgum símtalið — Ben? sagði frú Braddock, — heldurðu að þú verðir kann- ske kominn aftur á laugardaginn? — Mamma ... — Ja, ég bauð nefnilega Rob- inson-hjónunum yfir í mat. Það hefði verið svo gaman ef þú hefðir verið hér líka. 3. KAFLI Ferðalagið stóð í tæpar 3 vik- ur. Það var komið töluvert fram- yfir miðnætti kvöldið sem Benja- mín kom heim, og foreldrar hans voru löngu sofnuð. Hann ætl- aði fyrst inn um aðaldyrnar, en þær voru læstar. Dyrnar inn í eldhúsið og bakdyrnar voru læst- ar líka. Allir þeir gluggar sem hann reyndi voru lokaðir, svo á endanum gekk hann að aðaldyr- unum aftur og bankaði þar til ljós var kveikt í svefnherbergi foreldra haris.. Hann beið þangað til ljós var kveikt í ganginum, en þá kom faðir hans og opnaði. — Ben, sagði hann. Beniamín gekk inn. — Ben. þú ert kominn aftur, sagði faðir hans. — Já, ég eir kominn aftur, sagði Benjamín og gekk í áttina að stiganum. — Heyrðu, sagði herra Bradd- ock og glotti, — þú ert þó ekki farinn að safna skeggi? — Ég raka bað af á morgun. — Jæja, sagði faðir hans, — hvernig hefur þú það? — Þreyttur. — Alveg útkeyrður, ha? — Rétt. — Hvernig var ferðin? — Ekker* sérstök, svaraði Benjamín og fór að príla upp stigann. — Ben ... Benjamín stanzaði og lét höf- uðið síga. — Pabbi, sagði hann 7. tb! VIKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.