Vikan


Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 22

Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 22
honum til siðmenningarinnar á ný. Donahue sagðist ekki hafa get- að snúið sér til yfirvalda Astra- líumanna og Hollendinga þar í nágrenninu, þar eð hann var skuldaður bæði fyrir smygl og morð, og því hefði hann ferðast til Bandaríkjanna í von um að geta hjálpað hinum nauðstadda milljónerasyni eftir einhverjum krókaleiðum. Eftir að hafa sagt Machlin þetta kvaddi hann og hefur ekki sést síðan. Þar eð Donahue hafði ekki krafist fjár fyrir sögu sína, var Machlin ekki frá því að eitthvað væri til í henni. Hann flaug til Ástralíu og þaðan til Trobriand- eyja. Þegar þangað kom reynd- ist sagan lygi tóm: eyjan sem Donahue hafði tilnefnt fannst að vísu, en hún var óbyggð með öllu og hafði alltaf verið. En úr því að Machlin var á annað borð kominn þetta langt, vildi hann ekki gefast upp að svo búnu. Næstu mánuðina ferðaðist hann um svæðið í nágrenni Ei- landen-fljóts og spurði og þefaði. Og niðurstaðan sem hann komst að er í stuttu máli þessi: Michael Rockefeller drukknaði ekki, en innfæddir drápu hann þegar hann var í þann veginn að ná landi við fljótsmynnið. Lausnina á gátunni fann blaða- maðurinn þó ekki á Nýju-Gíneu sjálfri. Skömmu eftir hvarf Rockefellers höfðu Hollendingar nefnilega neyðst til að afhenda Indónesum sinn hluta eyjarinn- ar, og leið þá ekki á löngu áður en öllum þeim Hollendingum, sem þar höfðu lifað og starfað, varð óvært með öllu í landinu, enda yfirgáfu þeir það allir sem einn. En það voru einmitt þeir, sem sátu inni með mest af upp- lýsingum í sambandi við hvarfið. Þeirra helztur var prestur einn af Heilagshjartareglunni, Corne- les Van Kessel að nafni. Hann var fyrsti hvíti maðurinn, sem hafði kannað ströndina þarna og einn þeirra fáu, sem kunnu hina torlærðu mállýsku innfæddra þar. Machlin flaug því til Hollands og fór til Haarlem, þar sem séra Van Kessel bjó. Þessi góðviljaði, gráhærði maður hafði þegar lif- að þrettán ár meðal innfæddra á Nýju Gíneu, er fundum þeirra Rockefellers bar þar saman. Presturinn hafði verið milljóna- erfingjanum mjög hjálplegur, túlkað fyrir hann og vísað hon- um veg. Og Rockefeller hafði einmitt verið á leiðinni til trú- boðsstöðvar hans er hann hvarf. Presturinn hafði sjálfur leitað Ein af íþróttum Nýju-Gíneumanna er sú að hafa handtekinn óvin aS skotspæni, þannig að spjótin eiga að hæfa í jörðina þétt við hann öllumegin, en særa hann hvergi. Þessu er haldið áfram unz maður- inn er með öllu umgirtur spjót- um; þá er hann lokslns drepinn. Innfæddur dansmaður með grímu úr höfuðkúpu og leir. Það voru slíkir dansmenn scm skelfdu hol- lenska liðsforingjann svo að hann missti stjórn á sér og hóf á þá skothrfð. meðfram ströndinni á kanó sín- um, en'ekkert fundið. Leitin varð mjög umfangsmik- il, enda ekkert til sparað af hálfu föður hins horfna. Fréttamenn dreif að úr flestum löndum og Rockefeller ríkisstjóri kom sjálf- ur á vettvang ásamt dóttur sinni Mary, sem var tvíburas.vstir Michaels. Tíu dögum síðar var aðalleitinni hætt og tilkynnt að Michael Rockefeller væri drukknaður. En viku seinna fékk Van Kessel bréf frá dr. C. Kenn- eth Dresser, trúboðslækni hjá Evangelíska sambandstrúboðinu. „Það er mögulegt," stóð í bréf- inu,“ að menn frá Otsjanep hafi myrt Rockefeller.“ Framhald á bls. 40

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.