Vikan


Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 21

Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 21
frá konunglega hollenska sjó- hernum og barg doktornum. En af Rockefeller fannst ekki tang- ur eða tetur, og var hans þó leit- að víða og lengi. Að síðustu var komist að þeirri niðurstöðu, að hann hefði drukknað, þótt fleiri skýringum væri að vísu hreyft. Nú leið og beið þangað til á síðastliðnu ári, er bandarískur blaðamaður að nafni Milt Mach- lin fékk heimsókn manns, er nefndist John Donahue. Sá kvaðst vera smyglari að atvinnu og hafast sem slíkur við á norð- urströnd Nýju-Gíneu. Hann hafði fyrir skömmu komið á ey eina í Trobriand-klasanum við norðurströnd eyjarinnar miklu, og þar hafði hann, að hann sagði, hitt hvítan mann, illa á sig kom- inn og höktandi á hækjum. Sá hefði sagst vera Michael Rocke- feller og beðið Donahue hjálpar. Samkvæmt sögu Donahues hafði Rockefeller skömmu eftir að hann náði landi klifrað upp i tré og lagst til svefns á grein. En til allrar ólukku brotnaði greinin undan honum og hann skall á jörðina, mikið fall, með þeim afleiðingum að fætur hans brotnuðu báðir. Sem hann lá þar illa á sig kominn fann hann hóp- ur höfðaveiðara, og hlúðu þeir að honum eftir föngum og báru með sér. En sá hópur varð litlu síðar fyrir árás annsrra höfða- veiðara, sem tóku Rockefeller af hinum og fluttu hann með sér fimmtán hundruð kílómetra spöl til eyjar þessarar, sem var heim- kynni þeirra. Þeir héldu hann sæmilega, en vildu ekki skila Michael Rockefeller var vel að manni og tók oft þátt í að stjaka ein- trjáningunum eftir án- um, þegar hann ferðað- ist eftir þeim. Þessi höfuðkúpa, sem Machlin fann í einum innfæddrakofanum virt- ist geta verið af hvítum manni, og Machlin grunaði að þar gæti ver- ið um Rockefeller að ræða. En þeir innfæddu játuðu því hvorki eða neituðu. Hópur þorpshúa í Otsjanep, en þaðan er talið að bana- maður Rockefellers hafi komið. Hollenskur liðsfor- ingi hafði £ æði drepið þrjá þorpsbúa, og því háru þeir haturshug til allra hvítra manna. Michael Rockefeller hafði annars yfirleitt komið sér vel við landsins hörn, eins og þau sem hann sést hér á tali við. Ef tU vill tóku Otsjanep-búar hann fyrir hollcuskan hermann. 7. tbi. VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.