Vikan - 25.03.1970, Síða 5
• vísur vikunnar
Margan um upphefð dreymdi dátt
sem dansar á réttum línum
og pólitísk séní pískra lágt
um prófkjör í flokknum sínum.
En vesöldin stundum virðist köld
og viðsjál er heimsins kæti
það hyggja víst margir á hefð og völd
en hafna í neðsta sæti.
Á braut vorri margur boðinn rís
og brigðular heimsins listir
en samt er að lokum sigur vís
þeir síðustu verða fyrstir.
Þumalinn niður og
brjóstið upp
Ilmvatnsdrottningin Héléne
Rochas og höggmyndameistarinn
César hittust einu sinni í sam-
kvæmi, og það varð til að brjóst-
ið var tekið fram yfir þumal-
inn. Madame Rochas, sem er eig-
andi ilmvatnsfyrirtækisins Roc-
has (Femme, Moustarhe, Ma-
dame Rochas) vildi fá eitthvað
til skrauts fyrir utan fjrrirtæki
sitt. í Poissy í Frakklandi. César
fannst þumalfingurinn (sem var
þar) vera ágætur, en kvenbrjóst
væri kvenlegra og táknrænna,
svo það varð úr að brjóstið var
valið. Þessi höggmynd vegur 5
tonn og er táknræn fyrir verk
Césars, nákvæm eftirlíking af
konubrjósti, en þúsund sinnum
stærri.
# korn
• Aldrei skyldu menn lasta
gamlar kerlingabækur. Svo seg-
ir í þeim, að bezti ektamakinn sé
sá, sem kitlar mest, og einnig
áttu slíkir menn að vera gáfað-
astir, næmastir og gæddir mestri
ábyrgðartilfinningu. Vísinda-
menn og sálfræðingar hafa nú
komizt að raun um, að kerlinga-
bækurnar höfðu mikið til síns
máls. Rannsóknir hafa leitt í
ljós, að 50% allra karlmanna
kitlar og 85% kvenna. Þeir hafa
líka fært sönnur á, að þetta fólk
er yfirleitt næmara og betur
fallið til að takast á hendur
mikla ábyrgð.
• Víkjum nú sögunni til
fornra menningarlanda. f Persíu
bjó eitt sinn hefðarmaður. Hann
átti kvennabúr, eins og þar var
siður með höfðingjum. Aldrei
fékk hann sér svo konu í
kvennabúr sitt, að hann hefði
ekki látið einn af þjónum sínum
ganga rækilega úr skugga um,
að konuna kitlaði vel.
O í Kína lítur sérhver kona
svo á, að henni sé mikill heiður
Fimmburar ....
Rosemary Letts, enska konan
sem við birtum nýlega grein
um í Vikunni, heldur hér á
fimmburum sínum í fyrsta sinn.
Börnin eru þarna mánaðar göm-
ul, og frúin er hjartanlega
ánægð. Þegar þetta birtist verð-
ur hún eflaust búin að fá öll
börnin heim, því að þau virðast
dafna vel. ☆
gerður, ef hún er kitluð af karl-
manni. Ef kínverskur eiginmað-
ur hættir að kitla konu sína, veit
hún fyrir víst, að hann er hætt-
ur að elska hana.
• En því miður hafa kitlur
ekki eingöngu verið meðal ást-
Á fimmbura ofan
Fimmburafæðingar eru orðnar
nokkuð algengar, og ekki eins
mikill heimsviðburður eins og
forðum, þegar hinir frægu
Dionne-fimmburar fæddust, og
voru eiginlega stöðugt í fréttun-
um. Það er ekki langt síðan sagt
var frá því að ein þeirra hafi
látizt. Um þær var skrifuð bók
og jafnvel læknirinn sem tók á
arinnar. Þær hafa líka verið öfl-
ugt pyndingartæki, ef svo má að
orði kveða. Ivan keisari í Rúss-
landi, sem fékk auknefnið „hinn
grimmi“, lét pynta andstæðinga
sína á þann hátt, að hann Iét
kitla þá, þangað til þeir urðu
gersamlega vitstola.
móti þeim varð frægur maður.
Hér er mynd af hjónum sem
hafa eignast ennþá eina fimm-
burana. Þau heita Irene og John
Hanson, og börnin eru eitthvað
eldri en Letts fimmburarnir.
Þetta eru bráðmyndarleg börn,
og foreldrarnir virðast hin
ánægðustu og ekki vera sérlega
áhyggjufull út af afkomunni.
. ☆
13 tbl VIKAN 5