Vikan - 25.03.1970, Side 6
undir vœngjum “
ÖB Vorlœkkun
Til móts við vorið
Vorið er að koma suður í álfu og Loftleiðir
bregða ekki vana sínum en bjóða nú:
frá 15. marz til 15. maí
hin lækkuðu vorfargjöld til fjölmargra
staða í Evrópu.
Fl/úgiS með Loftleiðum til móts við vorið
og njótið hlnnar rómuðu þjónustu um
borð i Loftleiðatlugvélunum.
Fjöldi þeirra íslendinga, sem nota sér hin
lækkuðu vorfargjöld, eykst með ári hverju.
Loftleiðir fljúga til:
Oslóar - Kaupmannahafnar - Gautaborgar -
Glasgow - London og Luxemborgar.
en selja jafnframt framhaldsferðir með flug-
félögum á öllum flugleiðum heims.
Og enn sem fyrr geta farþegar notið hinna
hagkvæmu greiðslukjara Loftleiða:
FLUGFAR STRAX — FAR GREITT SÍÐAR
Skrifstofur Loftleiða, ferðaskrifstofurnar og
umboðsmenn um land allt veita upplýsingar
og selja farseðla.
toFTLEIDIR
ÞESSAR FERMI NGAMYNDIR ERU FRA
STUDIO GESTS, LAUFASVEGI 18A
I Studío Gests eru í einni fermingarmyndatöku teknar myndir bæði
í og án kyrtils eins og hér er sýnt, og innifalin fullgerð stækkun.
— Tökum einnig allar aðrar myndatökur. — Myndatökur alla daga
vikunnar og á kvöldin. — Pantið tíma. — Studio Gests Laufásvegi
18 a, sími 2-4028.
Reykingarnar næst
Kæra Vika!
Mig langar til að þakka fyrir
greinina um æskuna og eiturlyf-
in, sem birtist nýlega hjá ykkur.
Hún var sannarlega góðra gjalda
verð og Vikunni til sóma að
leggja sitt af mörkum til að berj-
ast gegn eiturlyfjanotkun hér á
landi, þessum skelfilega vágesti,
eins og þið kölluðuð vandamál-
ið réttilega. Einnig vildi ég lýsa
ánægju minni yfir þeirri ráð-
stöfun, að fegurðarsamkeppnin
ykkar hafi að kjörorði að berj-
ast gegn eiturlyfjum. Það hlýtur
að vekja góðar vonir um árang-
ur, þegar málið er tekið svona
snemma föstum tökum að frum-
kvæði æskunnar sjálfrar. Og
ekki má gleyma unga fólkinu,
sem boðaði blaðamenn á sinn
fund og hefur skorið upp herör
til þess að reyna að sporna gegn
ósómánum.
Allt er þetta góðra gjalda vert
og til fyrirmyndar. En betur má
ef duga skal. Enginn dregur í
efa, að marijúana og hashish og
þessi nýju eiturlyf öll séu stór-
hættuleg og geti lagt líf æskunn-
ar í rúst, ef hún ánetjast þeim.
En það eru fleiri skaðvænlegar
nautnir, sem eru viðhafðar í
heiminum en eiturlyf, og þótt
þær séu kannski ekki jafn al-
varlegar, þá er ekki síður ástæða
til að berjast gegn þeim. Það er
sorglega lítið aðhafzt í barátt-
unni gegn áfenginu og árangur-
inn eftir því. Ekki veit ég, hvort
drykkjuskapur unglinga hefur
aukizt í seinni tíð eða ekki, en
mér finnst koma ískyggilega oft
fram í viðtölum við ungt fólk
nú í seinni tíð, að því finnist
drykkjuskapurinn alvarlegt
vandamál. Og hvað með reyk-
ingarnar? Nú er mér kunnugt
um, að úti í heimi er æ meira
gert til að reyna að fá fólk til
að hætta að reykja. Nú þarf ekki
lengur að deila um það, hvort
reykingar valdi krabbameini og
ýmsum öðrum sjúkdómum. —
Þetta er þegar vísindalega sann-
að.
Hvernig væri nú, að haldið
yrði áfram að berjast gegn skað-
legum eit.urefnum og að reyk-
ingarnar verði teknar fyrir
næst? Vill ekki Vikan hafa for-
göngu í þessu máli og birta
fræðsluefni um skaðsemi reyk-
inga til þess að unga fólkið
komist ekki hjá því að vita hvað
það er að gera, þegar það byrj-
ar í fikti og gamni að reykja.
Vænlegast til árangurs er auð-
vitað að reyna að koma í veg
fyrir að unga fólkið byrji að
reykja. Með því móti hlýtur
reykingamönnum að fækka hægt
og hægt.
Ég skora á Vikuna að hefja
baráttu gegn reykingum. Blaðið
mun vaxa í áliti hjá mér og öll-
um hugsandi mönnum, ef það
gerir það.
Með beztu kveðju.
X.
Einmitt um það leyti, sem okk-
ur barst þetta bréf í hendur,
fengum við nýjasta heftið af
World Health, sem er gefið út
af Alþjóða heilbrigðismálastjórn-
inni. í því er ítarleg og uggvæn-
Ieg grein um skaðsemi reyk-
inga, og að sjálfsögðu byggð á
nýjustu vísindalegum athugun-
um í þessum efnum, sem ekki
er unnt að véfengja. Við mun-
um birta þessa grein núna ein-
hvern tíma á næstunni, og von-
andi verður hún „X“ til ánægju
og málstaðnum til góðs.
Ást og hatur
Kæri Póstur!
Ég sé, að svo margir snúa sér
til þín með vandamál sín. Og
þess vegna ætla ég að snúa mér
til þín með eitt slíkt. Ég er bú-
in að vera með strák tvisvar
sinnum og er nú orðin mjög
hrifin af honum. En hann talar
aldrei við mig, og mér er nær
að halda, að hann standi í þeirri
meiningu, að ég hati hann. Mig
langar svo mikið að láta hann
vita, að ég er hrifin af honum.
Eða ætti ég að sleppa því?
Vertu nú ekki með neina út-
úrsnúninga eða merkilegheit! —
Og vonandi lendir þetta ekki í
ruslakörfunni hjá þér.
Ein mjög feimin.
P.S. Hvernig er skriftin?
Þú ert líklega ekki ein um það
að eiga erfitt með að láta hug
þinn í Ijós. Og reyndar hefur
viðhorf kvenfólks til karlmanna
í aldaraðir einkennzt af orðun-
um HALTU MÉR — SLEPPTU
MÉR. En þú skalt engan veginn
gefa hann upp á bátinn, heldur
reyna betur að nálgast hann og
kynnast honum. Fyrst liann álít-
ur, að þú hatir hann, þá er hann
kannski ekki langt frá því að
renna grun í, að þú berir aðrar
tilfinningar í brjósti til hans en
annarra stráka. Það er oft
skammt á milli ástar og haturs
og þetta tvennt tíðum af sömu
rótum runnið. Skriftin er frekar
óregluleg.
0 VIKAN
13. tbl.