Vikan - 25.03.1970, Síða 9
það eina, sem Toffee náði að
bjarga, og hann grét vegna þess
að það var hann, sem sjúkra-
stofuna hafði byggt, og það var
líka hann, sem bar ábyrgðina á
henni.
Toffee er fæddur í Lunsem-
fwa-dal.
Þennan dag brann fyrir ríflega
hundrað og tuttugu þúsund
krónur í dalnum þeim. Þau
stóðu þar öll og sáu það gerast,
og ekkert var við því að gera.
Kannski vildu guðirnir hafa það
svona, og þá var ekkert við því
að gera.
Og aftur voru þau ein og yfir-
gefin.
Fjórum dögum síðar lenti
„Clementine" á flugbrautinni,
sem um nokkurt skeið hafði
verið ófær vegna mikillar úr-
komu.
Toffee stóð bísperrtur í gulu
Duncan Andersen læknir rannsakar
einn sjúklinga sinna. Hún var barns-
hafandi, en barnið dáið. Fjölmargir
sjúklinganna ganga margar dagleiðir
til sjúkrahússins og leggja sig í miklar
hættur til að komast yfir fljót og
aðrar torfærur.
nælonskyrtunni sinni og tók á
móti gestunum, sem stigu út úr
flugvélinni með nýnefndu nafni
og af Piper Aztec gerð. Gestirnir
voru flugmaður, læknir og
hjúkrunarkona, sem komu til að
upplýsa þorpsbúa um að þeir
væru ekki lengur einir og yfir-
gefnir, að þeir þyrftu ekki fram-
ar að deyja drottni sínum án
þess nokkuð væri gert til að
fresta því, að ennþá kæmist
13. tbi. VIKAN 9