Vikan - 25.03.1970, Blaðsíða 18
VIKAN-
KARNABAR
uncn Kvnsióom
Þá hafa stúlkurnar sex, sem keppa um titilinn fulltrúi ungu
kynslóðarinnar 1970, verið kynntar í Vikunni. Og til
frekari glöggvunar birtum við nú í einu lagi mynd
af þeim öllum, svo að lesendur geti betur glöggvað sig á þeim
og borið saman fegurð þeirra. Fyrirkomulag keppninnar er
með svipuðu sniði nú og undanfarin þrjú ár, að því
undanskildu, að héreftir mun keppnin helga sér eitt
baráttumál sem snertir unga fólkið. Að þessu sinni verður
barizt gegn notkun hinna nýju eiturlyf ja, marijúana
og hashish, en um þau hefur mikið verið rætt
að undanförnu. Til dæmis birti Vikan
í upphafi keppninnar ítarlega grein um
þetta mál. — Flestum er nú kunnugt í hverju
sjálf keppnin er fólgin. Ekki er eingöngu dæmt eftir
útlitsfegurð, heldur einnig framkomu og persónuleika,
almennri þekkingu og hæfileikum. Á skemmtuninni, sem
haldin verður í byrjun næsta mánaðar og nánar verður aug-
lýst síðar, koma stúlkurnar sex allar fram, sýna meðal ann-
ars einhverja af hæfileikum sínum og einnig gefst þá dóm-
nefndinni kostur á að spyrja þær nokkurra spurninga. —
Keppninni lýkur á því, að kjöri Fulltrúa unga fólksins 1970
verður lýst, og síðan fer krýningin fram.
LJÖSMYNDIR: SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
18 VIKAN 13-tbl-