Vikan - 25.03.1970, Side 25
Myndin til hægri er af Mirju og Gttnter í brúð-
kaupsferðinni.
Mirja og Gttnter eiga ekki þetta harn sem verið er
að skíra, þau eru aðeins skírnarvottar.
MIRJA SACHS
ÞARF EKKIAR
KIIÍBA FÁTIEKT
Fyrir nokkru sáum við i
dagblaði að hinn kunni
glaumgosi Giinter Saehs
væri erfingi Opel-milljón-
anna. Það er mesti mis-
skilningur. Nokkru áður
en Giinter fæddist, keypti
General Motors Opelverk-
smiðjurnar, og Giinter á
aðeins nokkur hlutabréf.
Um langt skeið hefur Giinter Sachs verið
kallaður mesti glaumgosi Evrópu.
í Vestur-Þýzkalandi hefur hann líka ver-
ið kallaður kóngur samkvæmislífsins, og það
hefur kostað hann drjúgan skilding. Þegar
vinir hans tala um hin margháttuðu sam-
kvæmi og allar hans tiltektir, segja þeir:
— Hann hefur ekki aðeins peninga, hann
hefur líka hugmyndaflug.
Óvinir hans, og þeir eru margir í Bayern,
ættlandi hans, og ættmenn móður hans,
segja að þessir lifnaðarhættir séu ættinni til
skammar.
Giinter Sachs, sem áður var kvæntur Bri-
gitte Bardot, kvæntist í þriðja sinn í haust,
ungri, sænskri sýningarstúlku, Mirju Lars-
son. Brúðkaupið fór fram í St. Moritz.
Það er auðvitað gleðiefni fyrir Mirju að
vita að hann á einhverja peninga eftir, þrátt
fyrir eyðslusemi undanfarinna ára. Fyrr-
verandi eiginkonur og vinkonur hans hafa
örugglega verið mjög dýrar í rekstri, ekki
sízt Soraja, fyrrverandi Persadrottning og
Brigitte Bardot.
En þó má gera athugasemd hvað Brigitte
Bardot snertir. Gúnter var sannarlega ekki
nízkur við hana, en það var aðallega fyrir
hjónabandið sem hún var kostnaðarsöm. En
samt var hjónaband hans og Brigitte alls
ekki kostnaðarsamt, að minnsta kosti ekki
á hans vísu. Fyrir því voru þrjár ástæður:
Brigitte er að líkindum sjálf jafn rík og
Gúnter, húne r ekkert gefin fyrir skartgripi,
sem venjulega eru dýrastir allra gjafa, og
að lokum; þegar brúðkaupsferðinni var lok-
ið, leið ekki á löngu þar til þau fóru að fara
sínar eigin leið, hvort í sínu lagi.
Sögurnar um það að auðævi Gúnters séu
farin að minnka, eru ekki á rökum reistar.
Að öllum líkindum er það móðurbróðir hans,
Fritz von Opel, sem hefur komið þeim á
kreik og líklega fengið aðstoð til þess frá
Roderich Mayr, framkvæmdastjóra fjöl-
skyldufyrirtækisins, Fichtel & Sachs Werke.
(Roderich Mayr er í ætt við konungana frá
Bayern og einn aðalhluthafi Fichtel &
Sachs).
Til að gera sér grein fyrir auðævum
Sachs, þá verður maður að vita svolítið um
fjölskyldu hans:
Móðir Gúnters, Elinor von Opel er barna-
Framhald á bls. 43
13. tbi. VIKAN 25