Vikan - 25.03.1970, Qupperneq 33
Og p.llar þessar hljómleikaferðir þeirra
félaga færðu brezka heimsveldinu svo
mikinn gjaldeyri, að snemma árs ár-
ið 1967 voru þeir sæmdir heiðursmerki
úr hendi drottningar, Member of the
British Empire. Fjöldi hertoga og
smágreifa skiluðu aftur samskonar
orðum sem þeir höfðu fengið og
tveimur árum síðar skilaði John Lenn-
on aftur sinni orðu til að mótmæla
stefnu stjórnar sinnar í málefnum
Bíafra.
1966 var gerð önnur kvikmynd með
þeim félögum, ,,HELP!“ og fékk hún
prýðilega dóma. Þessi mynd sýnir at-
riði úr myndinni; í frönsku ölpunum.
ÖMAR VALDIMARSSON
Maður opnar varla svo blað
þessa dagana að ekki sé
minnzt á eða birt mynd af
Bítlunum. Hér eru nokkrar
myndir af þeim gegnum
árin.
»
Litmyndin „Yellovv Submarine“ vakti
mikla hrifningu — en þó til hennar
sé hugsað sem „Bítlamyndar“ komu
þeir hvergi nærri — nema að þeir
sömdu tónlistina og teiknaðar fígúrur
þeirra voru uppistaðan.
Og stuttu síðar var stofnað fyrirtækið
APPLE. Bítlarnir keyptu sér hús á
Paddingtonstræti og máluðu það allt
í skærum og æpandi litum. Þarna var
meðal annars bútík sem átti að vera
nokkurs konar menningarmiðstöð fyr-
ir alla helztu bítla og bítlaaðdáendur
í heiminum, en reksturinn gekk ekki
betur en það að þeir hættu við búð-
ina og gáfu vörurnar þeim sem hafa
vildu.
»
En árið 1967 gerðu þeir aðra mynd,
og þá á eigin spýtur og hún hefur
oft verið nefnd „Stóru mistökin Bítl-
anna", en það var myndin „Magical
Mystery Tour“. Paul McCartney lýsti
því strax yfir að myndin væri ekki
sú sem fólk hefði búizt við en hún
væri akkúrat það sem þeir hefðu vilj-
að gera — og því væru mistökin
fólksins megin.
WmW
Tímarnir breytast og mennirnir með,
segir máltækið, þó oftar sé sennilega
réttara að snúa því við. Árið 1962 voru
„The Beatles" (sem réttast er að kalla
á íslenzku TAKTAR) grannir drengir
— en í dag líta þeir svona út — þó að
vísu hafi John látið skafa af sér hár
og skegg. Nýjasta plata þeirra er
komin á markaðinn og auðvitað kem-
ur önnur innan skamms. Paul er ekki
dauður. Enginn þeirra deyr. Þeirra
verður minnst á spjöldum sögunnar
á sama hátt og Beethovens og Shake-
speares.
Bítlarnir hafa alltaf komið á óvart og
það gerðu þeir líka árið 1967 — hvað
eftir annað. Blómaæðið greip um sig,
og allir lágu á vömbinni og einbeittu
sér í hugleiðslu. Það var George sem
hafði kynnzt heilmiklum spámanni I
Indlandi og kom með hann með sér
til Englands, þar sem hann tók þá
sveina upp á arma sér og kenndi þeim
að meta lífsins gæði. Stuttu síðar voru
þeir kærðir fyrir ólöglega notkun
fíknilyfja, sem þeir sögðust hafa not-
að til að læra að þekkja sjálfa sig.
4
Heldur minna hefur heyrzt frá Bítl-
unum sem heildar undanfarið, en
John Lennon dundar við það að koma
á friði í heiminum, eins og frægt er
orðið. Náði hann sér í japanska
kvinnu og skildi við Cynthiu sína, og
stofnuðu hann og sú japanska Yoko
Ono nokkuð sem þau kaila „Plastic
Ono Band“. Myndin er tekin á hljóm-
leikum sem bandið hélt og þar æpir
Yoko.
13 tbl VIKAN 33