Vikan - 25.03.1970, Qupperneq 43
Stúlkan er finnsk, ísskápurinn finnskur (hann er rauður á litinn) og hann faest hjá Pfaff. Vinsamlegast
lesið auglýsinguna hér fyrir neðan.
GULUR, RAUÐUR
samsvarandi og PFAFF- og
CANDY-þjónustan.
BBB —■ SF
Verzlunin Pfaff hefur þá ánægju Frystikisturnar eru norsk gæða-
að tilkynna gömlum og nýjum vara (ITT).
viðskiptavinum sínum, að hún ______________
selur framvegis þrjár gerðir af
kæliskápum, 1 gerð af frysti- Boðf, eru m'ö9 hagstæðir
skápum og 4 gerðir af frysti- greiðsluskilmalar: útborgun 6-
kjstum 10 þusund og afgangurinn á 7
mánuðum.
En hvað á þessi fyrirsögn að
þýða? Hún er ekki alveg út i
bláinn, þar sem kæliskáparnir
fást í fimm litum — gulum, rauð-
um, grænum, bláum og hvítum.
Einmitt fyrir ungu brúðhjónin.
Einmitt þar sem litir lífga.
Kæli- og frystiskáparnir eru
finnsk gæðavara (HELKAMA). Þjónustan verður að sjálfsögðu
Lítið inn við tækifæri í verzlun-
ina Pfaff að Skólavörðustíg 1—3.
Síminn er 13725.
KEFLVÍKINGAR! Lítið inn hjá
Kyndli við tækifæri.
þú segir mér að fara og svo er
ég sný mér við, þá segirðu mér
að vera kyrrum, þá ert....
Elaine sneri sér við og gekk
til dyra. — Vertu sæll, sagði
hún um leið og hún tók um
snerilinn.
-— Elaine... . ?
Hún skellti á eftir sér. Hann
hlustaði á fótatak hennar niður
stigann og svo er hún skellti
útidyrunum. Þá rauk hann út og
á eftir henni. Þegar hann náði
henni var hún nærri því komin
út á horn. — Elaine, sagði hann.
Hún hristi höfuðið og hélt
áfram.
— Elaine?
—- Farðu héðan, sagði hún.
Svo stanzaði hún á gangstéttar-
brúninni, leit niður eftir göt-
unni og gekk yfir.
— Fyrirgefðu mér að ég skuli
hafa sagt þetta, Elaine.
— Benjamín, gerðu það fyrir
mig og farðu héðan, sagði hún
og þurrkaði sér um vangann
með handarbakinu án þess að
stanza.
—- Elaine, sagði Benjamín og
tók í handlegg hennar, en hún
dró hann að sér aftur. — Elaine,
ég meinti þetta ekki.
—- Sérðu ekki hvað þú ert að
gera? spurði hún allt í einu og
stanzaði til að geta horft framan
í hann.
— Hvað?
— Skilurðu ekki? Hvað er að
ske?
Hann starði á hana og yggldi
sig. — Hvað skeður? Þegar hún
svaraði ekki leit hann niður
fvrir sig. — Ja, ég meinti þetta
ekki.
Stúdent gekk framhjá þeim
með fangið fullt af bókum.
Benjamín leit á hann og svo
aftur á Elaine. — Jæja, Elaine?
— Já, hvað?
— Á ég að vera kyrr? Þangað
til ég hef komizt að einhverri
niðurstöðu um hvað ég ætla að
gera?
— Hafðu það eins og þú vilt,
svaraði hún.
-Ég meina — ef þú hefur
áhyggjur af mér þá skal ég
reyna að gera einhverja áætlun
áður en ég fer.
Hún tók hönd hans og horfði
á hann. — Gerðu það sem þú
álítur bezt. Viltu gera það fyrir
mig? Hún sleppti hönd hans,
leit aðeins framan í hann og
gekk svo aftur af stað.
— Elaine?
Hún gekk áfram án þess að
svara eða líta við.
Framhald í næsta blaði.
Miria þarf ekki....
Framhald af bls. 25.
barn Adams von Opel, sem
stofnaði Opel-verksmiðjurnar.
Faðir Gúnters átti vélaverk-
smiðju, Fichtel & Sachs, og
eignaðist hlutabréf í Opel-verk-
smiðjunum gegnum Elinor. Ge-
neral Motors keypti mestan hlut-
an af Opel-verksmiðjunum,
nokkrum árum áður en Giinter
fæddist. Nú er það Fichtel &
Sachs sem Gúnter á sinn hluta í.
Foreldrar Gúnters skildu árið
1935. Eldri sonurinn Wilhelm
varð eftir hjá föður sínum, og
þegar faðirinn framdi sjálfs-
morð, árið 1958, þá varð það
hann sem tók við stjórn fyrir-
tækisins.
Gúnter fluttist til Sviss með
móður sinni, eftir skilnað for-
eldranna. Þegar hún tók upp sitt
fyrra fjölskyldunafn, von Opel,
kallaði Gúnter sig líka Sachs
von Opel. Fritz móðurbróðir
hans hefur í mörg ár barizt
gegn því að hann notaði það, og
nú er hann aldrei kallaður ann-
að en Gúnter Sachs, að minnsta
kosti í Vestur-Þýzkalandi.
Gúnter hefur aldrei haft
áhuga á að blanda sér í málefni
Fichtel & Sachs auðhringsins,
enda hefur hann lengstum búið
í Sviss, og þekkir lítið til ætt-
ingja sinna í Bayern, enda
finnst honum það frekar leiðin-
legt fólk. En hann á helminginn
í hlutabréfunum í tízkufyrirtæk-
inu í Schweinfurt og slangur í
dótturfyrirtækjum. Hann þarf
því eiginlega ekki að gera ann-
að en að klippa arðmiða, til að
fá hjálfa milljón marka þaðan.
Það er því greinilegt að auðævi
hans í Þýzkalandi eru aldrei
minni en 15 milljónir marka, —
líklega þó meira, því að ein síð-
asta framleiðsla þeirra, tvígangs-
vélin, virðist ætla að ná miklum
vinsældum. Þessi auðhringur
hefur 10.000 manns í vinnu í
Evrópu einni, en dótturfyrirtæk-
in eru víða um veröldina, meðal
annars í Sao Paulo í Brasilíu.
En Gúnter hefur fleiri járn í
eldinum en skærin: Hann á fyr-
irtæki í Sviss sem selur bygg-
ingavörur. Hann stofnaði það
árið 1959 og strax árið 1961 var
það farið að gefa góðan arð.
Þetta fyrirtæki hefur líka nokk-
ur dótturfyrirtæki, til að halda
jafnvægi í sköttunum. Fram-
kvæmdastjóri er fyrrverandi
skólafélagi Gúnters. En til vara
á hann töluvert fé í svissneskum
bönkum. Sem eins konar
„hobbý“ á hann 99 fínar smá-
búðir, sem selja tízkuvarning —
víða um heim, og ætlar að setja
á stofn þá hundruðustu í Mosk-
va.
f haust kvæntist hann svo
sænsku stúlkunni Mirju Larsson,
og fóru þau í skemmtilega brúð-
kaupsferð til Rio de Janero.
Þar var hann guðfaðir lítillar
stúlku, og er þetta sjötta guð-
barn hans. En Mirja þráir það
heitast að eignast börn, en eins
og er bólar ekkert á því. *
13. tbi. VIKAN 43