Vikan - 25.03.1970, Blaðsíða 44
LAVENITE TVILITU hreinlætistækin eru víðfræg fyrir fegurð og hreinan stíl, enda framleidd af hinu
viðurkennda ítalska fyrirtæki.
Richard-Ginori
(stofnsett 1735)
LAVENITE (skrásett vörumerki) er fyrsta flokks gæðavara úr keramik.
Þessi tegund af glerkenndu postulíni einkennist af því að glerungurinn nær mjög langt inn í leirinn,
þolir vel högg og er ónæm fyrir snöggum hitabreytingum og áhrifum frá sýru (hitaveituvatni) og litum.
Rictiapd - Ginori verksmiðjurnar eru einnig heimsþekktar fyrir framleiðslu sína
á gólf- og veggflísum og alls konar borðbúnaði úr postulíni.
BYGGINGAVÖRUVERZLUNIN
NÝBORG
HVERFISGÖTU 76
s
F
SÍMI 12817
Palladómar
Framhald af bls. 23.
vill gjax-nan sitja á alþingi
og stytta sér þannig vetur-
inn í höfuðborginni. Honum
varð að ósk sinni af þeirri
tilviljun, að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafði ekki á að skipa
aðsópsmeiri kappa í Dölum
og á Snæfellsnesi að taka við
forustunni af Þorsteini Þor-
steinssyni og Sigurði Ág-
ústssyni, er þeir gerðust elli-
móðir. Friðjón Þórðarson
safnar ekki vopnum í búr.
en honum helzt vel á í litlu
heystáli, stráum þeim, sem
til falla um landnám Auðar
djúpúðgu.
Lúpus.
Heiðarlegt fólk
Framhald af bls. 15.
gamla hafi verið innbi’ots-
þjófur.
Jeppesen hristi höfuðið. —
Ég trúi þvi heldur ekki, að
innbrotið hafi verið framið
af gamalli og heilsuveilli
konu. Okkur vantar hleklci í
keðjuna. Við liöfum aðeins
upphafið og endirinn, það er
að segja Bovense gullsmið
og frú Poulsen . ..
— Já, og allt þetta heiðar-
lega fólk, svaraði Flindt og
brosti.
— En svona er það alltaf,
allt þetta fólk, sem við höf-
um ekki minnsta áhuga á,
þyrpist að okkur, meðan sá
eini, sem við verðum að
finna, lætur bíða eftir sér.
— Já, í þessu er starf okk-
ar fólgið. Við skulum enn
einu sinni reifa málið: Fyrir
fimm árum, tilkynnti Karl
Bovense gullsmiður, að brot-
izt hefði verið inn í verzlun
sína. Hann samdi skrá yfir
þá hluti, er stolið var. Við
fundum aldrei þjófinn. og
ti-yggingarfélagið bætti hon-
um skaðann. Við nttðurrif
gamals og virðulegs húss,
finnst þýfið loksjins. Sam-
kvæmt skrá gullsmiðsins var
þarna hver einasti hlutur,
sem stolið var. Eftir því, sem
bezt verður séð, hefur þýfið
verið flutt að Vinarvegi 85,
strax eftir innbrotið og eklci
snert á þvi síðan. Gömul og
heilsuveil kona er eitthvað
við málið i~iðin ...
Flindt kinkaði kolli. —
Og spurningin er, vissi frú
Poulsen að þýfið var geymt
hjá henni? Hver flutti það
þangað? Það er kjarni máls-
ins, okkur vantar alltaf einn
hlekk...
— Einmitt, og ég vildi
óska, að við þyrftum ekki á
þeim lileklc að halda.
Flindt varð undrandi á
svipinn. — Hvernig í ósköp-
unum ættixm við að komast
lijá því? Þú trúir þvi ekki
'sjálfur, að frú Poulsen hafi
verið innbrotsþjófur. Þar að
auki er hún dáin, og getur
þar af leiðandi ekki skýrt
okkur frá neinu. Gullsmiðui’-
inn virðist heldur ekki vita
neitt, sem gæti koiuið okk-
ur á sporið.
— Nei, það eina, er við
höfum okkur til hjálpar er
þýfið sjálft, og það var rétt
af þér að láta Karl Bovense
ekki fá það.
— Hvemig getur það
hjálpað okkur? Gripirnir eru
nákvæmlega jafnmargir og
getið er um í skránni.
Jeppesen kinkaði kolli. —
Úrval
Kemur út mánaðarlega
Gerizt áskrifendur
44 VIKAN 13-tbl'