Vikan - 24.09.1970, Blaðsíða 34
SÁ BEZTI
REYNIÐ RUSKOLINE KRYDDRASP
crumb dressjng
FÆST í N/ESTU MATVÖRUVERZLUN.
HEILDSÖLUBIRGÐIR: JOHN LINDSAY H.F.
SÍMI 26400 GARÐASTRÆTI 38, R.
ATHUGIÐ
Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og
jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það
hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón
er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali.
Gott verð.
LITAVER
œSVEGI 22-24
30280-322G2
34 YIKAN 39- «>1.
STJÖRNUSPÁ*^
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Stofnaðu ekki til kynna við persónur sem þú veizt
lítil deili á, þótt viðkunnanlegar séu og skemmti-
legar. Þú verður að taka á þolinmæðinni gagnvart
manni sem þú umgengst um stundarsakir.
>,SiÉff»rr''
5®
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Vertu hress og kátur og æstu þig ekki út af smá-
munum sem ganga úrskeiðis. Þú verður ráðgjafi
þér eldri persónu og gerir henni greiða, en verður
að taka á móti alls konar vanþakklæti annars aðila.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú verður að vera nokkuð ákveðinn ef þú ætlar að
komast hjá því að verða tættur í sundur milli
tveggja aðila. Þú lendir fyrir tilviljun í hópi manna
sem eru að skemmta sér og tekur nokkurn þátt 1.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Vinnufélagar þínir níðast mjög á trassafengnum fé-
laga ykkar. Hversu sem talið snýst þá láttu ekki
skoðanir þínar í ljós. Vanræktu ekki fjölskyldu
þína og ættingja. Taktu boði um skemmtiferð.
m
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Reyndu að hafa góð áhrif á ættingja þinn sem er
í þann mund að demba sér út í fjármálaævintýri.
Um stundarsakir verðurðu að umgangast fólk sem
þú átt enga samleið með. Iþróttaiðkun kjörin.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú ert talsvert óánægður og argur út í tilveruna.
Þér veitir ekki af að fá þér andlega og líkamlega
hressingu og gleyma þessu hversdagslega og leið-
inlega. Hafðu meira samband við kunningja þína.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú ert neyddur til að sýna ákveðnum persónum
gestrisni og greiðasemi vegna slæmrar aðstöðu þinn-
ar. Hvað sem á dynur láttu ekki sjóða upp úr.
Eyddu frítímunum við rólega tómstundaiðja.
&
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Eitthvert nauðsynlegt áhald við vinnu þína svíkur
þig og kostar þig talsverða fyrirhöfn. Notaðu hvert
tækifæri sem þér gefst til að lyfta þér upp, einkum
þó og sér í lagi í faðmi fjölskyldunnar.
Bogamannsmerkið (23. nóvember -- 21. des.):
Þú færð tækifæri til að meta réttilega aðstæður
þínar og vera ánægður með hvemig til hefur tek-
izt. Þú verður að vinna verk sem þú ekki kannt en
eigi að síður tekst þér allt vel og þú hefur gaman af.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú hefur í huga stórfelldar ráðagerðir sem skipta
framtíð þína miklu. Láttu ekki einþykkni og eðlis-
lægt sjálfstæði standa þér fyrir þrifum. Haltu heim-
boð fyrir ktmningjana.
nSsH^
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Góðlyndur eldri maður, líklega yfirmaður þinn,
kemur nokkuð við sögu í vikunni. Þú reynir að
hagnast á einhverju braski en útkoman getur brugð
izt til beggja vona. Þér er nauðsynlegt að slappa af.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Atvik nokkurt verður til að breyta afstöðu þinni til
vissra persóna allmikið. Vertu mjög varkár í öllum
dómum þínum. Þú ættir ekki að leggja út í neina
fjárfestingu, rétti tíminn er ekki ennþá kominn.