Vikan


Vikan - 24.09.1970, Blaðsíða 43

Vikan - 24.09.1970, Blaðsíða 43
Þú ættir'aS far. • fram á kauphækk- \ uni hana, en ég vissi ekki hvað það átti að vera. Og þarna var elsku- legi blindinginn hann Dan, bros- andi út undir eyru og sá ekki skuggann sem læddist yfir svip litlu, fallegu dóttur hans. Ég ýtti Isoldu frá speglinum. — Sjáðu Isolda! Ég lyfti klútnum af einu brauðfatinu. — Sjáðu Sue! — Ó, mamma! Ég veit ekki hvað kom yfir mig, en líklega hefi ég gera kraftaverk í eldhúsinu þennan eftirmiðdag, eða þá að heilagur Judas hefir bænheyrt mig. Við þustum öll fram að útidyr- unum og eftir andartak var gleði og glaumur í forstofunni. Dan setti nýju plötuna á fón- inn og sagði við mig að þessir líkkistumálarar væru hreinustu töframenn. Svo bárum við drykk- inn fram, ég hafði gleymt að setja vodka út í, en það tók enginn eftir því og ég sagði telpunum ekkert frá því. Við Dan höfðum ákveðið að vera inni í stofunni, rétt á með- en gestirnir voru að samlagast, og það tók mig aðeins fimm mín- útur að sjá hvað skeði. Sue stóð í miðjum strákahóp, en Isolde gekk út að glugganum, með handlegginn utan um axlirnar á Daphne Buxton, sem var frekar leiðinleg og ég hafði alltaf heyrt að hún væri ekki afhaldin í sam- kvæmum. Að vísu horfðu dreng- irnir á Isoldu, en það var greini- legt að þeir kunnu ekki við hana í þessari múnderingu. Ég sá fljótt að þótt krakkarnir reyndu að vera eins og fullorðið fólk, þá tókst það ekki sem bezt. Reyndar var hægt að sjá að stúlkurnar voru á þröskuldi full- orðinsáranna, en það var síður en svo að drengirnir væru búnir að slíta barnsskónum. Sue tók strax eftir þessu. Hún fór að segja langa og fyndna sögu af ein- hverri sem hét Ginger og hafði nælt skrípamynd aftan á stærð- fræðikennarann. Mér fannst þessi saga ekkert sérstaklega fyndin, en strákarnir ætluðu að rifna af hlátri. Þeir þrengdu sér fastar upp að Sue, en Isolda og Daphne stóðu við gluggann og töluðu hástöfum um einhverja klassiska bíómynd. — Sue, kallaði ég, — Sue, tal- aðu snöggvast við mig ... Hún þagnaði, horfði í kringum sig og kom auga á Isoldu. Hún kom til mín án þess að segja nokkurt orð. Ég lokaði eldhúsdyrunum. — Sue, heyrðu, sagði ég með ákafa. — Sjáðu, Isolda ... — Ég veit það, mamma, þetta er leiðinlegt? Hún kinkaði kolli eins og gamall mandaríni. — Ég reyndi að hafa áhrif á hana, þú veizt, með kjólinn og hárið, en hún getur sundum verið svo þrá. Hún hefir ekki snefil af fata- smekk, ekki snefil. Hún strauk niður eftir kjólnum sínum og brosti. — En það hefi ég, finnst þér það ekki? Og hamingjan veit að mér veitir ekki af því. Isolda er svo lagleg, en ég. .. jæja, það getur verið að ég lagist, en ég vinn aldrei neina fegurðarkeppni. Ég hné niður á eldhússtólinn og leit undrandi á þetta undar- lega barn, sem virtist hafa þó nokkuð af veraldarvizku. — Þessir strákar þarna inni, hún veifaði hendinni í áttina að stofudyrunum, — eru ennþá mestu bjálfar, þeir eru ósköp in- dælir, en samt eru þeir kjánar. Hún belgdi sig út. — Þeir eru of óþroskaðir til að sjá hve falleg systir mín er. Auðvitað lagast þeir eftir nokkur ár, þeir verða bráðum sjáandi, og þá verð ég að berjast með hnúum og hnefum. Þá hirða þeir ekki um hvernig fötum Isolda klæðist, hvort hún klæðist silki eða gömlum sekk, þeir líta þá aðeins á andlit henn- ar, sem er svo dásamlega fallegt. Lífið er skrítið, finnst þér það ekki? En það sem er ennþá skrítnara, Isolda veit þetta ekki. Hún hefir aldrei haft traust á sjálfri sér. Hún er svo gersamlega laus við að vera hégómaleg og þessvegna þykir mér svo ógur- lega vænt um hana. Hún hló og kyssti mig. — Hafðu engar áhyggjur. Ég gleymdi mér snöggvast og mundi ekki eftir því að Isolda þarf duglegan um- boðsmann. Korndu nú inn, ég skal kippa þessu öllu I lag. Og það gerði hún. Hún tvístr- aði strákunum, með svo einstök- um þokka, að hver stjórnmála- maður hefði mátt öfunda hana. Hún dreifði úr hópnum, kom Daphne í samband við pilt, sem greinilega var sama sinnis. Hún dró Isoldu til sín og fór að segja frá því hvað hún væri sniðug, ef eitthvað bilaði, væri hún enga stund að kippa því í lag. Strák- arnir voru stórhrifnir og Isolda ljómaði af ánægju. Svo kom Sue ölium í leik, ekki of barnalegan, en samt ekki flókinn. Allir skemmtu sér konunglega — allir. Angistin var yfirstaðin, Isolda og Sue voru eiginlega meira en systur, þær voru vinkonur, og þær yrðu ábyggilega alltaf hrifn- ar hvor af annarri. Isolda myndi framvegis líta í spegil og virða fyrir sér laglegt andlitið, án þess að .hafa áhyggjur og Sue stæði við hlið hennar og fitjaði upp á kartöflunefið, hlæjandi, án öf- undar. Og ef við Sue leggjum saman, þá getum við haft áhrif á lélegan fatasmekk Isoldar. Ég var komin í ljómandi skap. Ég gaf Dan merki. Við flýttum okkur fram í eldhús og Dan blandaði drykk handa mér. Við sátum á eldhúsborðinu og fliss- uðum, eins og krakkakjánar. Dan lyfti glasi sínu. — Skál fyrir matreiðslumeistaranum, Guð blessi hana! Hann kysti mig. — Þetta var stórkostlegur matur, 39. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.