Vikan - 24.09.1970, Blaðsíða 5
Ringo Starr í „Candy“
í sumar hefur verið frumsýnd
víða í Evrópu kvikmyndin
„Candy“ en í þeirri mynd leikur
mikill fjöldi þekktra leikara, svo
sem Charles Aznavour, Marlon
Brando, Richard Burton, James
Coburn, John Huston, Sugar Ray
Robinson og Elza Martinelli. En
sú, sem mesta athygli vekur í
myndinni, er ung, sænsk stúlka,
Ewa Aulin, en hún leikur titil-
hlutverkið, Candy, sem er nú-
tímabarn í fyllsta máta og gjör-
sneydd öllum siðferðishömlum.
Ewa var næstum óþekkt, þegar
henni var fengið þetta hlutverk,
en hafði þegar aflað sér frægðar,
meðan á töku myndarinnar stóð.
Á meðfylgjandi mynd sjáum
við Ewu Aulin ásamt Ringo Starr
sem leikur lítið hlutverk í mynd-
inni.
# visur vikunnar
Út af kvæði Davíðs Stefánssonar, Dalakofanum,
orti Vilhjálmur Benediktsson frá Brandaskarði:
Illt er að eta einn úr skel
og eiga fátt til vina,
en sælt er að vera saddur vel
og syngja um fátæktina.
Eftirfarandi tvær snilldarvísur eru eftir séra
Helga Sveinsson:
Þegar sektin sækir að
sálarfriði manna,
flýja þeir oft í felustað
frjálsu góðgerðEfnna.
Til að öðlást þjóðarþögn,
þegar þeir aðra véla,
gefa sumir agnarögn
af því sem þeir stela.
Úr umferSinni
Það var biðröð við afgreiðsluop
það i réttarbyggingunni, þar sem
tekið var á móti greiðslum upp í
sektir fyrir umferðarbrot. Einn
maðurinn í röðinni var aldeilis
óvenjulega fýlulegur á svipinn,
þegar hann greiddi sekt sína.
Þegar afgreiðslumaðurinn fékk
honum kvittun fyrir greiðsluna,
tautaði maðurinn illskulega:
— Og hvað á ég svo að gera
við þennan snepil?
— Geyma hann, svaraði af-
greiðslumaðurinn glaðlega. — Og
svo þegar þér eruð búnir að fá
tíu svona snepla, þá fáið þér
reiðhjól!
Mao hefur nýja herferð
39. tbl.
VIKAN 5