Vikan


Vikan - 24.09.1970, Blaðsíða 49

Vikan - 24.09.1970, Blaðsíða 49
hann valinn í enska landsliðið og með því gerði hann alls 12 mörk í fimm leikjum, þar af tvisvar sinnum þrennu í leik (Hat-trick). Keppnistímabilið 1927—28 byrjaði Dixie þar sem frá var horfið og gerði alls 12 mörk í 8 fyrstu leikjum Everton í deildar- keppninni. í níunda leiknum sem var á móti Manchester United gerði hann öll mörkin fyrir Ever- ton, sem vann leikinn 5—2. Þá missti hann af einum leik, þar sem hann þurfti að leika með landsliðinu, en í tveim naestu gerði hann þrennu í báðum, á móti Portsmouth og Leicester. f janúar 1928 sló hann marka- met Everton, er hann gerði sitt 38. mark og Everton var orðið efst í deildinni. En þá fór að ganga illa hjá lið- inu. Það tapaði fyrir Arsenal í bikarkeppninni og Huddersfield og Tottenham í deildarkeppn- inni. Og þó Dixie gerði enn einu sinni þrennu í leik, og nú í leik á móti erkifjendunum, Liverjx>ol, var það aðeins til að Everton næði jafntefli í þeim leik. í næstu fjórum leikjum tókst liðsmönnum Everton ekki að gera eitt einasta mark og varð þetta til þess að Huddersfield náði forystusætinu í deildinni, með einu stigi yfir Everton, en Huddersfield hafði leikið þrem leikjum færri. En þá fór allt að ganga í hag- inn aftur og vann Everton 7 af 9 síðustu leikjum sínum og gerði tvö jafntefli. Er þrír leikir voru eftir í keppninni hafði Dixie gert 51 mark og þurfti því níu til við- bótar til að slá ársgamalt met George Camsell’s, sem gert hafði 59 mörk keppnistímabilið næsta á undan. Hann gerði tvö mörk í næsta leik, sem var gegn Aston Villa, en þann leik vann Everton 3—2, fjögur mörk gerði hann er þeir unnu Burnley 5—3, svo hann þurfti að gera þrjú mörk í síðasta leiknum, sem var gegn Arsenal á Goodison Park. Liðsmenn Arsenal byrjuðu vel og fyrr en varði voru þeir komn- ir marki yfir .... En þá tók Dixie Dean til sinna ráða. Áhorfendur, sem höfðu yfir- fyllt leikvanginn og hvöttu hann óspart áfram sáu hann gera tvö mörk á aðeins fimm mínútum. Hið fyrra með góðum skalla, en hið síðar úr vítaspyrnu. Mínúturnar liðu nú hver af annarri og spenningurinn var að gera út af við áhorfendur. Arsen- al hafði tekizt að jafna leikinn 2__2 og aðeins átta mínútur voru til leiksloka. Þá var dæmd horn- spyrna á Arsenal. Alec Troup tók spyrnuna sem heppnaðist fullkomlega. Boltinn þaut á ógnarhraða fyrir markið og hver varnarmaður Arsenal á fætur öðrum reyndi að hoppa upp til að ná að skalla knöttinn frá marki, en engum tókst það. En Dixie Dean sem var lágvaxn- ari en flestir þeirra lagði sig all- an fram við uppstökkið og er enni hans snart boltann, breytti hann um stefnu og þaut í markið án þess að nokkrum vörnum væri við komið... metið var hans og Everton hafði sigrað í deildar- keppninni. ☆ Viðtal við Erlend Framhald af bls. 13. kom oft fyrir að lampar sem héngu í lofti fóru af stað, perur sprungu eða fóru úr sambandi, myndum á veggjum var snúið við og fleira álíka gerðist. Þegar Bender var kvaddur til, byrjaði hann undireins að rannsaka hvort þessi fyrirbæri gerðust ekki sérstaklega oft í námunda við einhvern sérstakan á skrif- stofunni. Hann þóttist fljótlega vita að ein skrifstofustúlkan myndi völd að þessum reimleik- um. Þegar málið var athugað betur, sýndi sig að reimleikarn- ir urðu aldrei nema þegar hún var að vinna á skrifstofunni. Svo var farið með hana til Frei- burg og fylgzt með henni þar, gerð á henni sálfræðileg próf og fylgzt með líðan hennar. Þá kom fyrir að þessi fyrirbæri gerðust líka, þó í minna mæli. En þau gerðust einkum þegar vissir sál- rænir erfiðleikar, sem stúlkan átti við að etja, sóttu á. — Það er auðheyrt að þú not- ar ekki orðið reimleikar í gamla skilningnum, að einhverjar ver- ur handan grafar og dauða standi að baki fyrirbærunum? — Viðvíkjandi þessum reim- leikum í Þýzkalandi, þá hélt því enginn fram að um framliðnar verur væri að ræða. Skýringin sem venjulega er gefin er sú, að hér sé um að ræða orku eða kraft, það sem á útlendu máli er nefnt psychokinesis, sem sagt að í manninum sé kraftur, sem einstaka sinnum geti valdið hreyfingu hluta án þess að vöðvaafl sé notað. Þetta varð til þess að hafnar voru tilraunir til að hafa áhrif á hreyfingu hluta viljandi. Þeim tilraunum hefur parasálfræðin mikið sinnt. Pró- fessor Rhine hefur meðal annars gert tilraunir með að kasta ten- ingum, að fá upp þá hlið sem menn vildu, en ég held að ár- angurinn af því hafi ekki verið mjög jákvæður. Hins vegar hafa tilraunir með fjarhrif og hugs- anaflutning tekizt mjög vel, þannig að enginn efi getur leikið á því að þar sé um raunveru- leg fyrirbæri að ræða. Árangur- inn með tilraunir í psychokin- esis hefur aldrei orðið jafn góð- ur og við fjarhrif, en þó nógu góður til þess, að ef þar væri um að ræða fyrirbæri í sUmum vísindagreinum öðrum, myndi enginn efast um að þau væru raunveruleg. Við teningatilraun- irnar kom til dæmis í ljós að nær ævinlega náðist mun betri árangur í fyrstu köstum en er á leið tilraunina. — Fyrirbæri eins og andaglas og andaborð, sem margir hafa áhuga á hér á landi, myndu flokkast undir psychokinesis? — Já, líklega. Þessum fyrir- bærum hefur mjög lítið verið sinnt. Það er sumpart vegna þess að miklu erfiðara er að beita líkindareikningi við svoleiðis nokkuð en til dæmis við tenings- kast. — Þú minntist áðan á Drauma- Jóa. Hefur parasálfræðin ekki fengizt eitthvað við rannsóknir á því sviði? — Jú, með fjarhrif í draum- um hafa verið gerðar umfangs- miklar tilraunir í New York; þar hafa Maimonides Medical Center aðallega sinnt slíkum til- raunum. En flest fyrirbæri, þar sem um yfirskilvitleg áhrif er að ræða, gerast einmitt í svefni. — Er nokkuð vitað hve stór hundraðshluti fólks býr yfir dul- rænum hæfileikum? — Parasálfræðingar eru flest- ir þeirrar skoðunar, að allir menn hafi einhverja dulræna hæfileika, flestir þó að vísu í mjög litlum mæli. — Nú er það vitað mál, að til dæmis hér á landi hefur verið og er fjöldi fólks, sem er skyggnt sem kallað er, sér eða þykist sjá framliðið fólk og hulduverur. Hvað er það í raun og veru sem það sér? — Parasálfræðin fullyrðir ekkert um hvort framhaldslíf sé til eða ekki. Þess ber að gæta í því sambandi að þessi vísinda- grein hefur hvað helzt verið iðk- uð i Bandaríkjunum og Þýzka- landi, og í þeim löndum fyrir- finnast vart menn sem telja sig skyggna á íslenzkan mælikvarða, það er að segja þeir sem sjá eða telja sig sjá svipi framliðins fólks. Þó má geta þess að fyrir nokkrum árum fór fram í Bandaríkjunum víðtæk athugun á sýnum sjúklinga í banalegu, og kom þá í ljós að allmargir -slíkir sjúklingar töldu sig sjá framliðna ástvini og ættingja rétt fyrir andlátið. Það þótti at- hyglisvert að slíkar sýnir voru tíðar hjá fólki, sem hélt fullum andlegum kröftum og var ekki undir áhrifum sterkra lyfja. — Mest er rætt um skyggnifyrir- bæri á íslandi og Bretlandseyj- um. En innan parasálfræðinnar hafa þau því miður lítið verið athuguð. — En dáleiðsla? — Rússar áttu merkan mann á því sviði, Vassilíef hét hann. Hann gerði mjög miklar tilraun- ir með þetta og var sjálfur magnaður dávaldur. Hann skrif- aði um tilraunir sínar bók, sem varð metsölubók í Rússlandi og hefur verið þýdd á mörg tungu- mál. Hann taldi sig meira að segja hafa dáleitt fólk austur í Síberíu heiman frá sér í Lenín- grað. Vassilíef fullyrðir í bók sinni að hann hafi getað fengið fólk til að dotta eða framkvæma ákveðnar hreyfingar í dáleiðslu- ástandi, án þess að stýra því með orðum eða bendingum. Hann byrjaði í sama herbergi og hinn dáleiddi maður, en færði síðan þann sem hann hafði dáleitt lengra frá sér, í næsta herbergi, í annað hús og svo framvegis, unz hinn dáleiddi var kominn alla leið austur í Síberíu. Það kann að virðast einkennilegt, að dulrænum fyrirbrigðum skuli sinnt í svo efnishyggjukenndu ríki og Sovétríkin gefa sig út fyrir að vera. Orðrómur hermir að Rússar hafi varið til þessa m'iklu fé eftir að Nautilus fór yfir Norðurpólinn. Franskt tímarit laug því þá að Banda- ríkjamenn hefðu haft samband við kafbátinn með hugskeytum, meðan hann var undir heim- skautaísnum. Þetta lásu Rússar. — Þú drapst áðan á að skynj- un, sem ætti sér stað án milli- göngu hinna þekktu skynfæra, væri flokkuð í nokkra þætti. — Extra sensory perception er skipt í ýmsar greinar, svo sem clairvoyance (fjarskyggni), telepathy (hugsanaflutning), precognition (forvizku) og psychometry (hlutskyggni). Hlutskyggni er þannig varið að maður, sem hefur þá gáfu til að bera, getur komizt að ýmsu varðandi einhvern fjarstaddan og bláókunnugan mann, ef hann aðeins fær í hendur hlut, sem honum tilheyrir. í Freiburg kynntist ég manni að nafni Or- lob, sem var mjög snjall í þessu. Við Geir Vilhjálmsson, sálfræð- ingur, sem þarna var við nám ásamt mér, tókum þátt í einni slíkri tilraun með honum. Hún var þannig að þátttakendur, sjö eða átta talsins, krotuðu eitt- hvað á blað, og voru blöðin síðan afhent Orlob, sem auðvit- að hafði ekki hugmynd um hverjir mennirnir voru. Hann gaf síðan lýsingu á hverjum þátttakanda, eftir að hafa litið á það sem þeir höfðu krotað. Lýs- — Þú verður að gefa honum drykkjupeninga, svo við losnum við hann! 39. tbi. VIRAN 49

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.