Vikan


Vikan - 28.10.1971, Blaðsíða 9

Vikan - 28.10.1971, Blaðsíða 9
Tito marskálkur bauff upp á nýjan humar og rauövín frá Króatíu árgang 1892. margir séð hann. Þetta var dá- samlegasta augnablik lífs míns.“ Átta árum síðar giftist hún Tito. „Skæruliðasamtök þjóðfrels- ishreyfingarinnar“ urðu, þrátt fyrir andstöðu Stalin að þjóð- frelsisher, sem rétti Þjóðverjum mikil og þung högg í stríðslok; þessi her var jafnvel viður- kenndur af Bandamönnum á sigurráðstefnunni á Jalta. Ní- undi hver Júgóslavi var þá fall- inn og 800.000 hús hrunin til grunna, tveir þriðju af fjár- stofni landsmanna eyddur og svo að segja allar verksmiðjur landsins eyðilagðar. Það sem eftir var sáu Rússar um, þeir litu á Júgóslavíu sem herfang. Jarðeignaskattur var innheimt- ur frá Sovjet og öll loforð um endurbyggingu svikin. Árið 1945 sló Tito því föstu að Rúss- arnir væru ekkert betri en ó- vinirnir í stríðinu. — Áður voru það Þjóðverjar, sem stóðu í vegi fyrir okkur, nú eru það Rússar. Svo kom hápunktur togstreit- unnar milli Moskvu og Belgrad: Tito neitaði Stalin um undir- skrift sem átti að tryggja yfir- ráð Kreml yfir Júgóslavíu. Stalin ærðist og lýsti „rauða trúvillinginn“ í bann og hélt honum væri eins gott að muna eftir morðinu á Trotsky. Á alls- herjarþingi í Bukarest voru myndir af Tito rifnar af veggj- unum og í Prag hafði Benes forseti áhyggjur af Júgóslövum: — Þetta er furðulegt fólk, sagði hann, — ... það fer alltaf eftir sínu eigin höfði. Baráttumað- urinn Tito svaraði með því að kaupa vopn frá Vesturlöndum. Hann losaði flokkinn við Stalin- isma, fékk bændunum aftur jarðir sínar, sem áður höfðu verið teknar eignanámi, eftir skipun frá Moskvu. Júgóslavar ætla sem sagt að framfylgja sósíalismanum eftir eigin höfði. ☆ „Þetta er verðmætasta gjöf sem ég hef fengið á ævinni," sagði Liz, þegar Tito gaf henni sígarettumunn- stykkið, sem alsett er demöntum, en Burton rak upp stór augu. 43. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.