Vikan - 16.03.1972, Side 5
komast hjá því að nota allar
verjur. Að lokum, er það satt að
Pósturinn sé farinn að hringja
til þeirra sem skrifa honum, ef
svo er, þá viljum við biðja þig
að hringja á milli fjögur og
fimm. Við vonum svo Póstur
góður að þú svarir skýrt og skil-
merkilega og þá helzt í næsta
blaði.
Tvær í óvissu.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni og
hvernig er hún?
\r-------------^
Engin tímabil eru algerlega ör-
U99/ þótt ekki sé alltaf jafnmik-
il hætta á að verða bomm. Ef
þið viljið forðast allar getnaðar-
varnir, ættuð þið því að bíða
eitthvað með að láta undan
strákunum, því að ekki nær það
neinni átt að verða ófrískur á
þessum aldri. (Hvers konar
drengir eru þetta annars eigin-
lega, komnir undir tvítugt og
eru þó að stritast við að fá
krakkakvikindi eins og ykkur,
sem ekki eruð einu sinni orðnar
sextán, í rúmið með sér?).
Á það má benda að eitthvað af
nokkuð fróðlegum bókum um
kynferðismál hefur verið gefið
út á íslenzku, og væri ykkur ráð
að verða ykkur úti um þá lesn-
ingu, svo fremi þið getið ekki
leitað upplýsinga hjá kennurum
eða foreldrum, eins og eðlileg-
ast og sjálfsagðast væri. Varð-
andi hvers konar varnir og verj-
ur er það að segja, að fráieitt
er að láta sér detta í hug að
nota nokkuð svoleiðis nema að
læknisráði.
Nei, Pósturinn hefur enga síma-
þjónustu.
Skriftin er skýr og heldur hrein-
leg, ber vott um reglusemi en
nokkuð viðkvæmt hugarfar.
Love Story
Góði bezti Póstur!
Þetta hljómar eins og neyðaróp!
En ég er í vanda stödd. Ég er
nemandi í kunnum gagnfræða'-
skóla hér í borg. Og ég er með
strák í sama skóla. En í skólan-
um er gert mikið gys að okkur,
og erum við kölluð Love Story-
parið í skólanum. Ég fæ ekkert
við þessu gert. En ástæðuna
fyrir þessu tel ég vera, að við
erum alltaf að kyssast á göng-
unum, en samt er það ekki af
mínum völdum, sem þetta skeð-
ur. Hann er alltaf að kyssa mig
á móti vilja mínum, en ég hef
sagt þetta við hann, en hann
segir að honum komi ekkert við
hvað aðrir segja. Segðu mér
Póstur, hvað get ég gert? Ég
skrifa í fullri alvöru vegna þess
að ég veit að þið hafið sérfróða
menn í þessum efnum. Ég er
ekki vön að taka mér stílvopn I
hönd og skrifa en ég lét þó
verða af því og hér með þakka
ég þér allt gamalt og gott.
Virðingarfyllst, F. Ó.
P.S. Lestu eitthvað úr skriftinni?
Ég vona að þetta bréf lendi ekki
ásamt öðrum í ruslakörfunni. —
Með mikilli fyrirfram þökk fyr-
ir birtingu.
Það mælir heldur en hitt með
drengnum að hann skuli láta
sem vind um eyru þjóta hva'ð
pakkið er að skensast við ykk-
ur. Hins vegar nær auðvitað
engri átt að hann sé hálft í hvoru
að nauðga þér þarna á göngun-
um, ef þér er þá svo leitt sem
þú lætur. Segðu honum bara i
fullri alvöru að þú viljir ekki
hafa svona nokkuð, og hótaðu
að segja honum upp, ef ekki
hjálpar annað.
Skriftin bendir til að þú sért
ekki sem öruggust með sjálfa
þig.
W /l/WWxírW í Ml
SKARTGRIPIR
T=l 1
Modelskartgripur er gjöf
sem ekki gleymist.
- SIGMAR OG PÁLMI -
Hverfisgötu 16a. Sími 21355
l-BUSLOÐ
TáningasettiS Anno
Framleitt í mörgum litum
Bl Js L 0 Ð
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN — SlMI 18520
— Þú verður fljót að venjast
hengikoju!
11. TBL. VIKAN 5