Vikan - 16.03.1972, Qupperneq 18
Gullplata á salemisskálina
Poppstjarna heimsins árið 1971, Rod Stewart,
opinberar sjálfan sig.
Nod”s As Good As A Wink To
A Blind Horse, hvergi komizt
á blað, enda er nafnið það bezta
við hana:
Nú á dögum dettur yfirleitt
engum poppara annað i hug en
að klæðast gallabuxum og að
sjá til þess að ímynd sín sé
álíka_snjáð og tilfallandi og
þær sömu, gömlu gallabuxur.
Poppstjörnur árið 1971 (enn er
ekki vitað hvað þeim dettur í
hug í ár) reyndu að láta svo
líta út, sem þeir vildu ekki
skera sig úr frá fjöldanum og
voru notuð til þess ýmis brögð,
Rod Stewart gerði samt akkúrat
það gagnstæða. Hann íklæðist
ekki öðru en æpandi klæðnaði
úr silki og satíni. Hann keyrir
um í Rolls Royce, á höll i
Southgate (sem kostaði 90.000
pund, eða rúmar 20 milljónir
íslenzkar) og segist vera öðru-
vísi en fjöldinn.
A sviði er hann æstur og
íjörugur, stekkur í allar áttir
og tætingslegt hárið flagsast til
og frá þar sem hann hendir
hljóðnemanum í allar áttir, dill-
ar sér eins og virðuleg starfs-
, stúlka i St. Pauli og syngur
með sérstæðustu rödd sem
heyrzt hefur síðan Joe Cocker
kom fyrst fram á sjónarsviðið.
Það eina sem hann hefur
áhuga á fyrir utan músík er
fótbolti, sem hann spilar um
helgar með liði sínu, Highgate
Redwings. Frægð hans virðist
þó ætla að verða honum dulít-
ið vandamál; ekki alls fyrii'
löngu sparkaði markmaður and-
stæðinganna í hann þegar Stew-
art ætlaði að skalla boltann og
þar sem poppstjarnan lá stynj-
andi á vellinum sagði mark-
maðurinn snúðugur: „Þú ættir
að halda þig að söngnum, lagsi!'1
Uppáhaldsfótboltaspilari Stew-
arts er Dennis Law, sem leikur
með Manchester United.
Áður en Stewart fór út í
músík — og knattspyrnu —
stundaði hann nám við lista-
skóla og ánægjulegustu minn-
ingar hans þaðan eru frá því
að leika knattspyrnu með Ray
Davies, aðalsprautunni í Kinks,
en hann er sagður nokkuð góð-
ur knattspyrnumaður.
Áður fyrr bjó Rod, sem þá
kallaði sig „bítnik" (fyrst voru
það bóhemarnir, síðan bítnik-
ar, þá hippar og nú er það
Jesúfólk), ásamt félögum sin-
um um borð í gömlum húsbát
við Shoreham. íbúar bæjarins
mótmæltu þessu „skítuga
pakki“. og lögreglan svældi
Stewart og hina 19 út með
vatnsslöngum. Síðan var bátur-
inn dreginn út á haf og sökkt
þar. Daily Mirror notaði þetta
sem forsíðufrétt.
Ekki eru meira en tvö ár
síðan að sá, sem haldið hefði
því fram að Rod Stewart ætti
eftir að senda frá bezta rokk
árið 1971, hefði verið álitinn
annaðhvort fullur eða vitlaus
— nema hvorttveggja væri. Ég
hef áður látið þess getið, og
geri það aftur hér, að skoðun
mín ér sú, að undarlegt sé að
eftir því sem Rod Stewart fer
fram sem söngvara og músíkant,
því ákafar staðna félagar hans
í Faces. Gasoline Alley og Ev-
ery Picture Tells A Story eru
óumdeilanlegar frábærar plöt-
ur og þrátt fyrir grunna og
ryðgaða rödd er Rod Stewart
frábær söngvari, en engin
þriggja platna Faces kemst í
hálfkvisti við það sem skeður
þegar Stewart tekur sjálfur við
stjórninni. Hann var um allan
heim kjörinn einn af beztu
söngvurunum, Melody Maker-
lesendur völdu hann bezta
söngvara í Bretlandi ’71 og
Rolling Stone lýsti hann popp-
stjörnu ársins. Á sama tíma
hefur nýjasta plata Faces, A
PÓSTHÓLF
533
Kæri vinur:
í Pósthólfinu þínu þann 17.
febrúar varst þú spurður hvort
þú vissir hvaða söngvari það
væri, sem Robert Plant sagði
nauðga áheyrendum með sviðs-
framkomu sinni. Þar sem þú
manst það ekki, þá var það
Jim Morrison, hinn látni söngv-
ari DOORS.
Virðingarfyllst,
Baldur Þorsteinsson,
Hljóðfærahúsi Reykjavíkur.
Takk fyrir bréfið og eins það
fyrra. ÞA œtti það sem sé að
vera á hreinu.
18 VIKAN 1 1. TBL.