Vikan


Vikan - 16.03.1972, Síða 33

Vikan - 16.03.1972, Síða 33
hún átti að taka þetta sem mótmæli. Svo heyrðist annar dynkur og einn til . . . allir nemendurnir létu orðabækur sínar detta í gólfið . . . Gérard kom að járnrimla- hliðinu fyrir utan skólann. Hliðvörðurinn hafði auga með þeim sem komu og fóru. Nú var langt síðan verkfallsverðir höfðu staðið við þetta hlið. Gérard kinkaði kuldalega kolli og ætlaði að ganga framhjá verðinum. — Leguen? vörðurinn horfði spyrjandi á hann. Gérard nam staðar og horfði dálítið viðutan á vörðinn. — Ég hef fengið skipun um að hleypa þér ekki inn, sagði vörðurinn. — Hvers vegna? — Skipun frá rektor. Þér hefur verið vísað úr skóla. í svip Gérards vék undrun- in fyrir bitru háði. Hann fleygði skólatöskunni fram fyr- ir fætur varðarins. — Ég skil hana eftir hér. — Hvers vegna? spurði vörðurinn. — Faðir minn getur sótt hana hingað, sagði Gérard og sneri burt. Klíkan hafði ekki yfirgefié þau. Þau höfðu áður haft stefnumót á kaffihúsinu, en nú hittust þau heima hjá Daniéle. Langi Marc og káta Thérése hossuðu drengjunum á hnján- um. Eftir svolitla stund kom Alain. Faðir hans var liðsfor- ingi. Thérése og Gérard fóru að hlæja, þegar þau sáu útbún- aðinn á honum. Pilturinn var klæddur leik- fimibuxum, upplitaðri bóm- ullarpeysu og var í gömlum il- skóm. Hann hafði líka gamla gaddaskó um hálsinn. — Hvaða útgangur er þetta á þér? spurði einn piltanna. — Ég átti ekki annarra kosta völ, sagði Alain vandræðalega. Pabbi vildi ekki leyfa mér að fara út, svo ég neyddist til að segja að ég ætlaði á íþrótta- völlinn. Hann var svo vesældarlegur að þau fóru öll að hlæja. Dani- éle hefði viljað taka þátt í bjartsýni þeirra. En var þetta bjartsýni? Var það ekki frek- ar barnalegt áhyggjuleysi, gleði yfir samstöðunni og ánægja yfir að sýna það í verki að þau gátu farið á bak við þá fullorðnu? Skrifaði pabbi þinn und- ir skjalið? spurði Marc. Alain gretti sig. •— Það er augljóst, sagði hann og stundi þungan. — Reglurnar, þú veizt . . . og hann hristi dauflega höfuðið. — Ég er heppinn, sagði Marc. — Foreldrar mínir eru mjög frjálslyndir. Thérése gekk til Daniéle. Hún fann að eldri konan þurfti á huggun að halda. — Það var aðeins helming- ur foreldranna sem skrifaði undir, sagði hún. Daniéle kinkaði kolli og kreisti fram bros. — Ég veit, sagði hún. Ég var búin að sjá það. — Það hefur verið faðir minn, sem fann upp þetta snilldarbragð, sagði Gérard. Alain kinkaði kolli. — Hann kom heim til okk- ar, karlskrattinn, sagði hann. — Ég hneyksla þig vonandi ekki? bætti hann við og leit til Gérards. Gérard leit niður og hristi höfuðið. Alain leit skjótlega undan. — Hann hringdi til okkar, sagði Marc. Gérard hló biturlega. — Hann fór heim til þeirra, sem voru honum sammála, en hringdi til hinna. Hann hefur þá loksins fengið tækifæri til að nota skipulagsgáfurnar. Honum bauð við þessu öllu saman og var mjög tauga- óstyrkur. Hann var ýmist ofsa- lega glaður eða sárlega von- svikinn, eins og hann vildi slást og gráta í einu. En svo var hringt dyrabjöll- unni. Það varð dauðaþögn. Dani- éle horfði -stórum, angistar- fullum augum á dyrnar. Hún var þreytuleg með dökka bauga undir augunum. Hún hélt á sígarettu með titrandi fingrum. Aftur var hringt. Þetta var stutt og ákveðin hringing. Bók- salinn hringdi ekki þannig. Það var eins og þeim öllum létti. — Farið þið inn í svefnher- bergið, sagði Daniéle. — Svo fer ég til dyra. Unglingarnir hlýddu henni. Gérard fylgdi þeim, glaður yf- ir samhyggð þeirra. Hún opnaði dyrnar og stóð andspænis konu í regnkápu, konu sem hún þekkti ekki. — Ég vil fá að tala við Gér- ard Leguen, ég er félagsráð- gjafi. Hún fór að gramsa í tösk- unni sinni, líklega til að finna skilríki sín. Daniéle gekk eitt skref aftur á bak. Hún studdi sig ósjálfrátt við vegginn. Ask- an úr sígarettunni féll á gólf- ið. Gérard hafði heyrt til þeirra og kom fram. •— Ég er Gérard Leguen, sagði hann. — Er það satt? sagði hún tortryggin. Félagsráðgjafinn virti hann vandlega fyrir sér. Ef til vill hafði hún búizt við að sjá lítinn dreng. Gérard kinkaði kolli. Félags- ráðgjafinn leit svolítið vand- ræðalega í kringum sig. Pappa- spjald með áletrun var fest á einn vegginn og á það mændi hún. — Má ég líta á þetta? Hún beygði sig fram og pírði nærsýnum augunum. — Að elska er að lifa, las hún. — En sniðugt! Þá tók hún eftir því að þau horfðu á hana, án þess að segja nokkurt orð. Hún fann hve óvelkomin hún var og það fór í taugarnar á henni. — Trufla ég, sagði hún, eins og til að eggja þau til svars. Þau svöruðu ekki. Hún reyndi að láta sér detta eitt- hvað í hug, sem gæti rofið þennan þagnarmúr. Svo sneri hún sér að Gérard. — Ég vona að yður sé það ljóst að þetta ástand getur ekki haldið áfram. Þér eruð ekki ennþá myndug- ur. Hún hló ánægjulega. Hún hafði lögin sín megin. Hún hafði þó nokkuð vald og hún naut þess. — Ég skal koma með yður til dómarans, hélt hún áfram. — Hann á að reyna að finna leið út úr þessum vandræðum yðar. Gérard strauk sér í framan. Hann var þreyttur og svefn- laus og honum fannst hann þurfti að fá betri yfirsýn yfir það sem var að gerast . . . — Leyfið mér að hugsa í nokkrar minútur, svo skal ég Framhald á bls. 35. ll.TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.