Vikan - 24.08.1972, Qupperneq 4
¥ Hvað er verið
1 að skamraa mann?
Eru þetta ekki Sommcr-teppin
Jrá Litaveri sem þola allt^P
Teppin sem endast endast og endast
á stigahús og stóra gólffletí
Sommer teppjn eru úr nælon. Þa5 er sterkasta teppaefnið
og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá-
réttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt,
sfslétta áferð og er vatnsþétt.
Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppin
hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu
jámbrautarstöðvum Evrópu.
Við önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum
góða greiðsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verð og
Sonrmer gæði.
UTAVER
GRENSÁSVEGI 22-24
SÍjMAR: 30280 - 32262
PéSTURINN
Jón Þór
Elsku Póstur!
Svo stendur á að ég er hrifin af
strák sem heitir Jón Þór en ég
veit ekki hvort hann er hrifinn
af mér. Við hittumst oft í strætó
eða þá niðri í Halla Þór, en það
er búð og byggingar. Og vin-
kona mín segir að hann sé alltaf
að horfa á mig og ég finn það
oft sjálf. Allar stelpurnar í öðr-
um bekk eða flestar í Árbæjar-
skóla eru hrifnar af honum en
hann er í Landsprófi. Þú hefur
gefið svo mörgum ráð um svona
mál, til dæmis vinkonu minni,
og hún fór eftir því og nú er
hún með stráknum sem hún var
hrifin af. Og láttu nú þetta ekki
í ruslafötuna, ég elska hann út
af lífinu og gæti dáið fyrir hann.
Hvað lestu svo úr skriftinni, —
hvernig er hún?
Ástfangna J.
Fyrst hann er alltaf að horfa á
þig, þá er það nokkuS í áttina.
GerSu þér bara aS reglu aS
horfa nokkuS stíft og einarSlega
á hann á móti; þá hlýtur hann
aS átta sig á hvaS á spýtunni
hangir og gefa sig aS þér, svo
framarlega sem huginn er ein-
hver hans megin.
Skriftin er þvi miSur hörmuleg,
vægast sagt, og því ekkert úr
henni aS lesa.
Hvernig á það
saman?
Kæri Póstur!
Hvernig eiga saman Steingeitin
og eftirtalin merki: Hrúturinn,
Nautið, Tvíburarnir, Krabbinn,
Ljónið, Meyjan, Vogin, Drekinn,
Bogmaðurinn, Vatnsberinn, Fisk-
arnir svo og Steingeit og Stein-
geit?
Takk fyrir allt gamalt og gott.
Hvað lestu úr skriftinni?
Steingeit og Hrútur eiga illa
saman, Steingeit og Naut vel,
Steingeit og Tvíburar heldur
illa, Steingeit og Krabbi illa,
Steingeit og Ljón heldur vel,
Steingeit og Jómfrú vel, Stein-
geit og Vog heldur illa, Stein-
geit og Sporðdreki sæmilega,
Steingeit og BogmaSur heldur
vel þegar til lengdar lætur,
Steingeit og Vatnsberi vel,
Steingeit og Fiskar, getur tekizt
sæmilega, þó viðsjárvert, Stein-
geit og Steingeit, ágætt.
Ur skriftinni má lesa dugnaS og
kappsemi.
Hann var á
Hamranesinu
Elsku Póstur!
Nú vil ég byrja á því að þakka
þér fyrir allt gamalt og gott. Ég
kaupi Vikuna ekki alltaf, en
þegar ég kaupi hana, þá les ég
næstum hvert einasta orð í
henni. þá er nú bezt að é'g snúi
mér strax að efninu. Ég hef
ekki skrifað þér áður, en hef
oft ætlað að gera það. Þannig
er mál með vexti að ég er ofsa-
lega hrifin af strák sem ég var
með í vetur (á balli). Hann var
ekki fullur. Hann á heima í
Reykjavík, en ég á Þingeyri.
Hann var á togaranum Hamra-
nesinu frá Hafnarfirði (þá, ég
veit ekki núna). Mig langar svo
að ná sambandi við hann, en
ég veit ekki hvar hann á heima,
ég veit bara að hann heitir Óm-
ar Svansson, eða Sveinsson og
er held ég ennþá á Hamranes-
inu. Ég er svo hrifin af honum,
og ég held að hann sé eitthvað
hrifinn af mér. Ég verð að ná
sambandi við hann, annars brjál-
ast ég. Vilt þú nú elsku Póstur
minn hjálpa mér að komast að
því hvar hann á heima og helzt
mjög fljótt.
Með fyrirfram þökk.
Túlla, Þingeyri.
P.S. Hvernig er skriftin? Hvað
lestu úr henni? Eru margar vill-
ur? Hvernig eiga steingeitin og
meyjarmerkið saman?
í----------^^
Þér er sjálfsagt eins og öðrum
landsmönnum kunnugt orðið um
hin sviplegu endalok Hamraness-
ins, og má efalítið kaliast mildi
að þar fór ekki ennþá verr. —
Skráðir eigendur skipsins eru
samkvæmt blaðafréttum Jón
Hafdal og Haraldur Jónsson í
Hafnarfirði, en þeir sem gerðu
það út siðast voru þeir Bjarni
Guðmundsson skipstjóri, Hafnar-
firði, og Haraldur Júlíusson í
Vogum. Þú gætir prófað að hafa
4 VIKAN 34.TBL.