Vikan


Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 5

Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 5
svona til huggunar, að mega taka haustpróf í september. Það þýðir, að ég þarf að haetta mán- uði fyrr í vinnunni, en ég hafði ætlað mér, eins og ég er nú sárt þurfandi fyrir peninga. Ég sé nú ekki annað ráð en að segja mig samstundis til sveitar . Ætlunin var ekki að skamma þig fyrir þetta, kæri Póstur, heldur biðja einhvern úr háttvirtri landsprófsnefnd að lúta svo lágt að útskýra þetta með því að svara eftirfarandi spurningum: 1. Hver skipar landsprófsnefnd? 2. Hve lengi situr hver nefnd? 3. Starfa ríkislaunaðir kennarar og landsprófsnefndin ekki sam- an? Gefa þessir tveir aðilar ekki einkunnir eftir sama skala? 4. Er það rétt, sem heyrzt hef- ur, að landsprófið í ár hafi ver- ið óvenjulega þungt og fyrir- gjöfin strangari en venjulega vegna þrengsla í menntaskólum landsins? 5. Gerir landsprófsnefndin sér Ijóst, að hún hefur örlög margra reikulla unglinga í höndum sér, sem við hvert mótstreymi geta brotnað niður? (Ég þekki það af reynslunnni). Jæja, nú fer ég að slá botn- inn í þetta, áður en of mikið er sagt. Ég vona, að þetta bréf mitt verði birt, því að ég veit, að margir íslenzkir landsprófsnem- endur hafa svipaða sögu að segja og vilja fá svar við þess- um spurningum. Með virðingu. Skrúlla. Póstinum finnst bréfritari hafa verið beittur hróplegu ranglæti. Það er fráleitt, að hægt sé að tilkynna nemanda, að hann hafi náð prófi, en hringja síðan í hann síðar og segja honum, að hann hafi alls ekki náð því. Þar sem fullt nafn og heimilisfang fylgir þessu bréfi, er ekki nema sjálfsagt að birta það — í von um að landsprófsnefnd svari fyr- ir sig. Útvaðandi í kattar- hárum Kæri Póstur! Getur þú ráðið fram úr miklum vanda, sem hefur komið upp hér á heimilinu. Svoleiðis er að við fengum okk- ur lítinn kettling síðastliðið haust, sem nú er orðinn auga- steinn allra á heimilinu, en það er eitt vandamál sem fylgir hon- um, hann fer alltaf svo mikið úr hárum að það er allt orðið út- vaðandi I kattarhárum og hefur maður alls ekki undan við að þrífa þau. Hann var alls ekki svona þegar við fengum hann, hann byrjaði að fara úr hárum rétt eftir áramótin, og það stend- ur yfir enn. Nú langar mig að spyrja: er ekkert hægt að gera við þessu? Getur verið að hann vanti eitthvert efni í sig, eða þarf kannski að fara með hann til dýralæknis? Og hvar er þá helzt að finna? Mér finnst anzi lítið um dýralækna og maður sér aldrei auglýsingar frá þeim, að þeir taki á móti veikum dýr- ur. Góði Póstur, gef mér nú eitt- hvert gott ráð við þessu, því að köttinn viljum við alls ekki missa. Kattamamma. SÁ STÓKIER ilLDKEI OF STÓRI FRYSTIKISTUNA Það sakar áreiðanlega ekki að hafa samband viS dýralækni. í símaskránni er skráSur Brynjólf- ur Sandholt, héraSsdýralæknir, Safamýri 91, sími 3-83-45. — VitjanabeiSnir virka daga klukk- an 8:30—10, aSra daga klukkan 9:30-10. Pennavinip Daniel Artaud, „L'Ostange", 71 Tournus, France og Marie-Pierre Travaux, „Au Pas Fleury", 71 Tur- nus, France, tveir franskir piltar, 17 ára gamlir, sem óska eftir bréfaskiptum viS jafnaldra íslenzk- ar stúlkur, sem skrifa ensku og helzt frönsku líka. Mr. & Mrs. Robert Taylor, 1635 W 17th St. Long Beach, California 90813, U.S.A. Amerísk hjón sem gjarnan vilja skrifast á viS íslend- inga. AZC Robert N. Lavow, Namtradet 3023, U.S. Naval Air Station, Ala- meda, California 94501. 24 ára BandaríkjamaSur, sem vill skrifast á viS 18—24 ára ísl. stúlkur. RAFTORG SÍMi: 26660 RAFIÐJAN SÍMi: 19294 CANON er mest selda rafeinda-reiknivélin á íslandi í dag. Sendum myndir og verð, eftir beiðni, hvert á land sem er. SKRIMIELIN Box 1232 Suðurlandsbraut 12 Reykjavík, sími 19651 SCáiwn UMBOÐIÐ 36. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.