Vikan


Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 27

Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 27
I á endann og blaðra einhverja vit- leysu við stjórnmálamenn með stífa flibba.” „Ég skil, Bobby.” „Og ég kem sjálfur með minn eiginn stól. Ég get ekki étið, ef ég er látinn sitja i stól, sem einhver annar á. Og það er bezt að þú vitir það strax, að ég vil ekki hafa of sterk ljós, á meðan ég er að borða. Ef ljósin eru of sterk, þá neita ég að byrja á fyrsta rétt- inum.” „Ljósin mega ekki vera of sterk, ég skil það, Bobby. Að lokum lángar mig bara til að baeta þvi við, hve hreykin við erum öll af þér. Þú ert sannkölluð fyrir- mynd unga fólksins i Ameriku.” Forsetinn leggur tólið á, en hringirsiðan i Richard Helms hjá CIA. „Dick, ég ætla að senda þotuna mina til Islands til að sækja Bobby Fischer. Gerðu mér nú ofurlitinn greiða. Þegar hann er kominn um borð, viltu þá sjá til þess, að flugvélinni verði rænt — Nog lent á Kúbu.” HVITI ÐAUÐINN OG ÆÐAR- DÚNN FORSETANS Siðari úrklippan er ekki siður skemmtileg, en þó með allt öðrum hætti. Hún fjallar ekki nema að örlitlu leyti um einvigið, heldur er hún „kynning” á landi og þjóð. Að sjálfsögðu er ekki við þvi að búast, að útlendingur, sem hefur hér stuttan stanz, geti skrifað grein um land og þjóð, svo að vel sé. Margar villur hafa slæðzt i frásögnina og sumar al- deilis furðulegar. Svarti dauðinn hefur breytzt i hvitan, og ætti höf- undur bara að vita, hvað „hviti dauðinn” þýðir á islenzku. Og annað er eftir þessu. Innan um alla endileysuna virðist klausan um áhuga forsetans á æðardúni einna furðulegast, enda er hún höfð sem fyrirsögn á greininni. En hér fer greinin á eftir i laus- legri þýðingu. Hún birtist i Los Angeles Times og höfundurinn er Joe Alex Morris, jr.: „Reykjavik, tsland. Hér gerist yfirleitt ekki margt. Þó færðist ofurlitið lif i tuskurnar i júlimánuði. Fyrst komu skandinaviskir tannlæknar og héldu ráðstefnu. Slðan kom danskt knattspyrnulið. Danirnir unnu, eins og venjulega. tsland hefur tvisvar gert jafntefli við þá, en aldrei sigrað þá. Loks hófst hið mikla tafleinvigi milli Rúss- lands og Ameriku. Skákáhuga- menn, stórmeistarar og frétta- menn ruddu túristunum út úr góðu hótelunum — öllum fjórum. Rússinn Boris Spassky kom fyrstur, og um tima leit út fyrir, að Amerikanarnir ætluðu alls ekki að koma. Spajsky lét það ekkert á sig fá, var sallarólegur og lék tennis á hverjum degi á velli, sem byggður hafði verið fyrir hann rétt hjá Hótel Sögu. Amerikaninn Bobby Fischer kom, en hvarf gjörsamlega inn i eitthvert einbýlishús. Enginn sá hann lengi vel, nema fáeinir fréttamenn, sem fullyrtu, að þeir hefðu elt hann upp i sveit eld- snemma morguns og séð hann klappa lömbum úti i móa. En þrátt fyrir þetta er fjarska leiðinlegt i höfuðborg Islands. Sjónvarpsstöð landsmanna lokar eins og venjulega allan júlimánuð vegna sumarleyfa. 100 000 Islendingar — helmingur allrar þjóðarinnar — sem býr á höfuð- borgarsvæðinu, neyðist þess vegnd til að horfa á ameriska kanasjónvarpið. Þetta er erfiður biti að kyngja. Rikisstjórnin — eina rikisstjórn NATO-lands, sem kommúnistar eiga aðild að — hefur lýst yfir, að hún ætli að loka herstöðinni, en hún er ekkert að flýta sér að þvi. Ein ástæðan er þessi: Um 700 Islendingar vinna á vellinum. En jafnvel þeir, sem eru hlynntir Bandarikjamöonum, eru gramir yfir þeirri staðreynd, að þeir verða að fara framhjá banda- riskri herlögreglu til þess að komast inn á alþjóðlega flugvöll- inn i Keflavik. Reykjavik er borg drykkju- mannsins. Ibúarnir segja, að veturinn sé timi stórdrykkjunnar, þvi að þá sé myrkur allan sólar- hringinn. En þeir hætta ekki að drekka, þótt bjart sé allan sólar- hringinn á sumrin. Það er ekki óalgeng sjón að sjá velklædda borgara slaga úti á götu kóf- drukkna i skjannabirtu — klukkan tvö um nótt. Veitingahúsin loka nefnilega þá á föstudögum og laugardögum. Aðra daga vikunnar tæmast göt- urnar um klukkan hálftólf. Næturklúbbarnir loka aldrei. Þeir eru nefnilega ekki til — aðeins hótelbarir. Það kemur sér illa, hve veit- ingastaðirnir loka snemma, sér- staklega fyrir þá, sem ekki eru vanir að sofa i björtu og hafa ekki haft vit á að innbyrða nægilega mikið magn af „hvita dauð- anum”, en svo er eitur lands- manna venjulega kallað. 36. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.