Vikan


Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 26

Vikan - 07.09.1972, Blaðsíða 26
HVITI DAUÐINN OG ÆÐARDÚNN FORSETANS Tvær erlendar úrklippur um einvigi aldarinnar það. „Drottning Daniel átta. Biskup Bjarni fimm. Hrókur Hannes fjórir...” Þannig hljóðar söngurinn, sem glumið hefur i eyrum okkar i allt sumar. Þeir sem kunna ekki nema rétt mannganginn eru búnir aðfá nóg fyrir löngu. Hinir, sem lengra eru komnir, hafa lik- lega lifað sitt skemmtilegasta sumar, þrátt fyrir sólarleysi og sifellda rigningu. Það er búið að skrifa slik ókjör um þetta blessaða einvigi aldar- innar, að maður veltir þvi fyrir sér, hvernig blöðin fari að, þegar þvi loksins lýkur. Á þriðja hundrað erlendir fréttamenn hafa komið hingað til þess að skrifa um einvigið fyrst og fremst, en land og þjóð i leið- inni. Fæst af skrifum þessara manna koma nokkurn tima fyrir augu íslendinga. Vikan fékk á dögunum óvænta sendingu frá ónefndum lesanda sinum, sem búsettur er i Los Angeles i Bandarikjunum. Hér var um að ræða safn af úrklippum með skrifum um einvigið og land og þjóð. Það var býsna fróðlegt að glugga i þessar úrklippur, og tvær þeirra tókum við út úr bunk- anum og ætlum að leyfa les- endum að njóta þeirra með okkur. og landið sem hélt BUCHWALD, NIXON OG BOBBY Hin fyrri hefur að geyma lik- lega eitt af þvi skemmtilegasta, sem skrifað hefur verið um ein- vlgið, enda er höfundurinn enginn annar en húmoristinn frægi, Art. Buchwald. Pistillinn hljóðar svo: „Innan skamms þarf Nixon for- seti að taka eina mikilvægustu ákvörðunina i valdatið sinni. Hann þarf að ákveða, hvort hann á að voga sér að hringja til íslands, ef Bobby Fischer vinnur heimsmeistaraeinvigið I skák. Langt er orðið siðan önnur eins antihetja og Bobby Fischer hefur risið upp á meðal vor. Hegðun hans fyrir og meðan á einviginu stóð-varð þess valdandi, að einn af lesendum Washington Post skrifpði blaðinu: „Fischer er eini Amerikaninn, sem getur fengið hvern einasta mann i Bandarikj- unum til að halda með Rússum.” Með hliðsjón af hegðun Fischers á Islandi gæti simtal forsetans hljóðað eitthvað á þessa leið: „Halló, Bobby, þetta er Nixon forseti. Mig langaði bara til að óska þér til hamingju með sigur- inn á Islandi.” „Vertu þá fljótur að þvi. Ég er þreyttur.” „Þetta er merkilegur dagur i WfBmm sögu Ameriku, Bobby.” „Hann er merkilegri fyrir mig. Ég vann 150.000 dollara og sýndi þessum islenzku skriðdýrum i tvo heimana.” „Þú veizt, Bobby, að ég komst nærri þvi I skákliðið, þegar ég var I skóla.” „En gaman” „En ég sneri mér að fótbolt- anum I staðinn.” „Hringdirðu I mig bara til að segja mér þetta?” „Nei, biddu við, Bobby. Ég hringi alltaf I þá, sem vinna heimsmeistaratign fyrir Ameriku. Mig langar til að halda viðhafnarkvöldverð i Hvita hús- inu, þegar þú kemur aftur.” „Hvað fæ ég borgað fyrir að koma?” „Borgað? Ég borga ekki fólki fyrir að borða i Hvita húsinu.” ' „Hvað græði ég þá á þvi?” „Ég mun bjóða rikisstjórninni, hæstarétti, forsetum þingsins og hverjum einasta rikum repúblik- ana i landinu, sem kann mann- ganginn. Og ég ætla að fá Guy Lombardo til að spila eftir mat- inn. Það er það minnsta, sem ég get gert fyrir þann, sem sigrar hinn mikla Spassky.” „Allt i lagi, ég kem. En kröfur minar eru þessar: Þú sendir for- setaþotuna til Islands til að sækja mig. Þú tekur sjálfur á móti mér á flugvellinum, útvegar mér limúsin, lúxusibúð, einka tennis- völl, sundlaug fyrir mig einan og tiu öryggisverði, svo að blöðin komist ekki á snoðir um neitt.” „Ég býst við, að ég geti séð um þetta, Bobby.” „Og engar kvikmyndavélar.” „Engar kvikmyndavélar?” 4,Ég hata kvikmyndavélar. Þærgera mig óðan. Ef ég sé eina einustu kvikmypdavél við kvöld- verðinn, þá geng ég út.” „Hafðu engar áhyggjur, Bobby. Það verða engar ^ kvikmynda- vélar”. ,,Og ekkert kjaftæði, á meðan ég er að éta. Ég get ekki étið, á meðan fólk er að kjafta allt i kringum mig.” „Það er mjög erfitt að halda viðhafnarkvöldverð i Hvita hús- inu og leyfa ekki neinum að tala.” „Það er þitt vandamál. Ef ég heyri nokkurn minnsta hávaða, þá verðurðu að útvega þér annan heimsmeistara I skák.” „Eins og þú vilt, Bobby. Kvöld- verðurinn er haldinn þér til heiðurs.” „Hvenær á þetta skrall að byrja hjá þér?” „Um áttaleytið, býst ég við.” „Þá kem ég klukkan niu. Mér likar ekki að þurfa að standa upp 26 VIKAN 36. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.